Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Síða 8

Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Síða 8
Miðvikudagur 4. maí 1994 VESTFIRSKA J FRÉTTAB LAÐIÐ Þrír listar í ■ ■ •• ■ > kjori a Hólmavík - Nauthreppingar á tveimur listum Þrír framboðslistar verða í kjöri á Hólmavík í sveit- arstjórnarkosningunum: l-listi sameinaðra borgara, H- listi almennra borgara og J-listi óháðra borgara. l-listann skipa: 1. Sigurður Vilhjálmsson, bílstjóri 2. Benedikt Grímsson, húsasmíðameistari 3. Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri 4. Gyða Gunnarsdóttir, nemi 5. Bryndís Sveinsdóttir, húsmóðir 6. Daði Guðjónsson sjómaður 7. Viktor Örn Viktorsson, aðst. skólastjóri 8. Sólrún Jónsdóttir, sjúkraliði 9. Ragna Þóra Karlsdóttir, þroskaþjálfi 10. Þorsteinn Sigfússon, svæðisstjóri OV H-listann skipa: 1. Jón Ólafsson, kennari 2. María Guðbrandsdóttir, leiðbeinandi 3. Rósmundur Númason, sjómaður 4. Jónína Gunnarsdóttir, húsmóðir 5. Björgvin Gestsson, sjómaður 6. Indriði Aðalsteinsson, bóndi 7. Eysteinn Gunnarsson, línumaður 8. Jóhanna B. Ragnarsdóttir, húsmóðir 9. Birgir Hafsteinn Pétursson, sjómaður 10. Aðalheiður Steinsdóttir, verkakona J-listann skipa: 1. Jón Arngrímsson, vélstjóri 2. Haraldur V.A. Jónsson, trésmiður 3. Snævar Guðmundsson, bóndi 4. Kristján Guðmundsson, verktaki 5. Bjarki Hólm Guðlaugsson, sjómaður 6. Ragnar Ölver Ragnarsson, rafvirkjameistari 7. Sigrún María Kolbeinsdóttir, húsmóðir 8. Aðalbjörn G. Sverrisson, vélamaður 9. Helga Björk Sigurðardóttir, hárskeri 10. Marta Sigvaldadóttir, bóndi. Tveirlistarvoru íkjöri í sveitarstjórnarkosningunum 1990. Þá hlaut H-listi almennra borgara 72 atkvæði og einn mann kjörinn en listi framsóknar- og sjálf- stæðismanna 160 atkvæði og fjóra menn kjörna. -GHj. Félagsmála- stjóri og fjöl- skylda til Kanada Indriði Kristjánsson félagsmálastjóri á ísafirði hefur fengið ársleyfi frá störfum og er á förum í næsta mán- uði ásamt fjölskyldu sinni til ársdvalar í hafnarborginni Vancouver í fylkinu Bresku Kólumbíu í Kanada. Carolyn Kristjánsson, eiginkona Indriða, er kanadísk að uppruna þótt foreldrar hennar hafi um árabil starfað í Mósambique í Afríku. Hún mun næsta vetur stunda nám við University of British Columbia. Þar hyggst hún leggja stund á meistaranám og afla sér réttinda til þess að kenna útlendingum ensku. í sumar verður Carolyn á undirbúningsnámskeiði við háskól- ann í lowa í Bandaríkjunum. Indriði mun væntanlega taka einhver námskeið í félagsráðgjöf og sálfræði og jafnframt mun hann að líkindum starfa við félagsráðgjöf í Vancouver. íslendingar og fólk af íslenskum ættum, sem býr á litlu svæði á vesturströndinni kringum landamærin, frá Vancouver í Kanada og til Seattle í Bandaríkjunum, skiptir allmörgum þúsundum. Ibúar í Vancouver eru allmiklu fleiri en sem nemur öllum íslendingum, eða nokkuð á fimmta hundrað þúsund. Skaut 31 ref í vetur - friðunarfrumvarpið tóm vitleysa, segir Jón Oddsson Jón (rebbi) Oddsson, refa- skytta á Gerðhömrum í Dýrafirði, hefur skotið 3f tófu síðan á áramótum. Tóf- urnar fékk Jón í útburð í Nauteyrarhreppi og í Alfta- fjarðarbotninum og einnig í Súgandafirði og við Gerð- hamra í Dýrafirði. Jón sagðist mundu fara norður í Sléttuhrepp í sumar til grenjavinnslu og svo yrði hann með sitt grenjasvæði vestan við Djúp eins og áður. Sagði Jón það algeran barnaskap hjá um- hverfisráðherra að ætlast til þess að refurinn yrði friðaður eins og fyrir liggur í frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi. „Við getum bara hugsað okkur hvernig þetta verður eftir nokkur ár“, sagði Jón. „Allt smáfuglalífið er í voða, t.d. mófugl, vaðfugl og spörfugl. Fuglinn mun alveg hverfa því þessi dýr þurfa svo mikið að éta. Sauðfé verður líka í mikilli hættu þegar refastofninn marg- faldast vegna friðunarinnar. Það er talið að innan við tvö Hluti veiðifangs Jóns Oddssonar. þúsund dýr séu nú í landinu. Það er ekki gott ef þeim fjölgar upp í fimm til sex þúsund dýr. Þeir eru líka að missa refi út úr búrunum í refaræktinni. Ég skaut t.d. silfurref á Sauðanesi í fyrra. Hann var orðinn fjögra eða fimm ára. Silfurrefurinn er skæðasta tegundin af ref sem fluttur er inn í landið. Þessi sem ég skaut var hörku bítur og svo er silfurrefurinn afar frjósamur. Þessi læða var með níu yrðlinga í greninu. Þetta er tóm vit- leysa“, sagði Jón Oddsson í samtali við blaðið. -GHj. Nauteyrarhreppur sam- einast Hólmavíkurhreppi - vilja ferjubryggju í Djúpi, segir Snævar á Melgraseyri Á mánudag (2. maí) var gef- in út reglugerð í félagsmála- ráðuneytinu um sameiningu Hólmavíkurhrepps á Ströndum og Nauteyrarhrepps í Djúpi og eru nú sveitarfélögin gengin í eina sæng undir nafninu Hólmavíkurhreppur. Kosið verður sameiginlega til sveitar- stjórnar í hinu nýja sveitarfé- lagagi 28. maí og hafði einn framboðslisti verið lagður fram á Hólmavík. Tveir aðrir listar voru tilbúnir en frestur fékkst til þess að leggja þá fram þar til lögformleg sameining sveitar- féiaganna hefði farið fram. Snævar Guðmundsson á Melgraseyri, hreppsnefndar- maður í Nauteyrarhreppi, skip- ar nú 3ja sæti á lista óháðra við sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Blaðið hafði samband við Snævar á mánudag og spurði hann um sameiningarmálin. „Sameiningin gekk formlega í gildi í dag með reglugerð frá ráðuneytinu“, sagði Snævar. „Það eru um 30 íbúap'í Naut- eyrarhreppi og í Hólmavíkur- Snævar Guðmundsson á Melgraseyri. hreppi voru 1. des. sl. 499 íbú- ar. Það sem fyrst og fremst vinnst við þessa sameinigu er það að vegna þess hve Naut- eyrarhreppur er fámennur og fjárhagslega getulaus getur hann ekki staðið einn lengur. Við töldurn því best að sam- einast Hólmavíkurhreppi vegna þess að við höfum mest tengsl núorðið við það sveitarfélag. Það var haldinn borgarafundur í Félagsheimilinu á Nauteyri á föstudag þar sem 25% íbúanna mættu. Þar var borin upp tillaga um þessa sameiningu og hún samþykkt samhljóða. Það þarf ekki að kjósa um sameininguna þar sem sameinað er eftir fá- mennisreglunni." - Mér skilst að á sameigin- legum fundi hreppsnefndanna 22. apríl hafi verið rætt um ferjubryggju fyrir Fagranesið í Nauteyrarhreppi... „Já, ef Isafjarðarkaupstaður byggir ferjubryggju sín megin, þá fannst mönnum ekki óeðli- legt að hið nýja sveitarfélag legði eitthvað af mörkum til byggingar ferjubryggju hérna megin. Menn vilja fá þessa bryggju sern fyrst því hún kemur til með að verða sveit- arfélaginu til góðs. Sameining- in ætti að þjappa fólkinu saman og ætti að verða hinu nýja sveitarfélagi til góðs,“ sagði Snævar á Melgraseyri. -GHj. Dýrt súrefni Kafari hér fyrir vestan hafði samband við Vestfirska frétta- blaðið og kvaðst undrandi á því hversu dýrt það er að fá súrefni á köfunarkúta hér vestra. Hann áttaði sig reyndar ekki á því hve dýrt það er í samanburði við það sem súrefnisáfylling kostar fyrir sunnan, fyrr en hann var staddur í Reykjavík og fékk á- fyllingu þar. „Ég var í fríi fyrir sunnan og fór að leika mér að kafa þar, og mig rak í rogastans hversu mikill munur er á verð- inu“, sagði kafarinn. Samkvæmt reikningi frá Isa- fjarðarkaupstað fyrir áfyllingu súrefnis á kúta á Slökkvistöð- inni á Isafirði kostar áfylling á fimm kúta kr. 4.233 m/vsk. Á- fylling á sömu fimm kúta í Reykjavík kostar skv. reikningi kr. 1.362 m/vsk. Súrefnisáfyll- ingin kostar sumsé meira en þrjú hundruð prósent meira á Isafirði en í Reykjavík. Kafarinn segir auk þess að í Reykjavík séu kútarnir kældir fyrir áfyllingu og hlaðnir eftir kúnstarinnar reglum, en hjá Isafjarðarkaupstað séu þeir hlaðnir við stofuhita, sem þýði að minna súrefni fari á þá. Odýrar Dan- merkur- ferðir hjá Norræna félaginu áísa- firði Nú er loksins komið suntar hjá okkur og fólk hugsar sér til hreyfings, hvort heldur er innan- lands eða utan. Norræna félagið býður eins og undanfar- in ár upp á ódýrar ferðir til Billund í Danmörku. Flogið er á sunnudög- um. Verðið er aðeins kr. 24.500. Það er alveg kjörið fyrir þá sem eiga vini eða fjölskyldu á Jót- landi, að nota beina flugið í staðinn fyrir millilendingu í Kaup- mannahöfn. Einnig bjóðum við upp á bíla- leigubfla á góðu verði. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér þetta vegna ntikillar eftirspurnar. Á upplýs- ingaskrifstofunni eru bæklingar um sumar- hús, tjaldstæði, far- fuglaheimili o.tl Allar nánari upplýs- ingar á Norrænu upp- lýsingaskrifstofunni, Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði. Síminn er 3393 frákl. 9.00 til 12.00 alla daga. (Frá Norræna félag- inu á lsafirði). Ljósabún- aðinn í lag - klippur álofti Að sögn lögreglu á ísafirði hefur nokkuð verið um að ljósabúnað- ur bifreiða hafi ekki ver- ið í lagi. Þótt nú sé nótt að verða björt eiga menn samkvæmt lögum að aka með ökuljósum og hafa ljósabúnað bifreiðanna í lagi. Einnig eru klipp- urnar alltaf á lofti og klippt óspart af bifreið- unt þeirra sem enn skulda bifreiðagjöldin. -GHj.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.