Feykir - 22.06.1983, Blaðsíða 6
6 FEYKIR
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 198.1
HVER ER MAÐURINN?
Eins og áréttað var í síðasta tölublaði
Feykis verður nú tíundaður afrakstur úr
myndagátum undangenginna blaða. Nokk-
uð hefur borist af fullnægjandi upp-
lýsingum, og þar fyrir utan hafa komið
nokkrar tilgátur, sem við höfum sumar
hverjar getað sannprófað eða eru enn í
athugun. Það er mikilvægt, að fólk láti í sér
heyra, jafnvel þótt menn séu ekki vissir í
sinni sök, því við getum oft rakið okkur
eftir vísbendingum. A Héraðsskjalasafn-
inu eru þegar til skráðar um 7000
mannamyndir og hafi menn ákveðin nöfn í
huga, er á augabragði hægt að fletta upp í
spjaldskrá, sem sýnir hvort til sé skráð
mynd á safninu af viðkomandi persónu.
Þannig er oft hægt með samanburði að
sannprófa tilgátur, sem berast.
Og eftir þennan formála er rétt að snúa
sér að efninu. Mynd nr. 27, sem birtist í
blaðinu 19. nóvember 1982 hefur orðið
nokkurt umfjöllunarefni. Tveir eða þrír
íbúar á Sauðárkróki komu að máli við
okkur á safninu og töldu hana vera af
Þóreyju Ólafsdóttur, konu Guðmundar
Björnssonar á Veðramóti. Við athugun og
samanburð á myndum sem til voru af
Þóreyju skráðar á safninu, varð að hafna
þeirri greiningu. Síðar bárust upplýsingar
frá Vagni Kristjánssyni á Hrafnistu í
Hafnarfirði, að konan héti Guðrún Þor-
finnsdóttir, uppalin á Strjúgsstöðum í
Langadal og myndin tekin af henni 18 ára
gamalli. Höfum við þetta síðan fyrir satt.
Sigurbjörg Tómasdóttir frá Felli veitti
upplýsingar um myndir nr. 35 og 36 sem
birtust í blaðinu 2. febrúars.l. Ámyndnr.
35 taldi hún vera Sigurbjörgu Jónsdóttur,
sem var um tíma á Bollastöðum. Þetta er
þó ekki fullvíst og væri vænt að heyra, ef
einhver gæti staðfest þetta. Á mynd nr. 36
er hins vegar örugglega Þórunn Ingibjörg
Baldvinsdóttir frá Bollastöðum, sem síðar
giftist Stefáni Stefánssyni lækni í Aars á
Jótlandi. Þetta var einnig staðfest með
bréfi sem barst um hendur Sigursteins
Bjarnasonar frá Stafni í Svartárdal og
upplýsingum frá Þórhildi ísberg á Blöndu-
ósi.
Mynd nr. 44 í blaðinu 16. mars s.l. er af
tveim drengjum. Sá t.v. er Sigurður
Sigurðsson frá Fossi á Skaga, en yngri
drengurinn t.h. er Magnús Guðvarðsson
frá Hafragili á Laxárdal samkvæmt upp-
lýsingum frá Dýrleifu Árnadóttur á
Sauðárkróki.
Á mynd nr. 46 í sama blaði er lengst til
vinstri Ari Sæmundsen, upplýst af Þór-
hildi ísberg. Sá í miðið er að okkar ætlan
Gísli Guðmundsson vert á Sauðárkróki,
en vafi leikur á um þriðja manninn lengst
til hægri. Dýrleif Ámadóttir hygguraðþað
sé Gunnar Sigurðsson frá Fossi á Skaga,
síðar kaupmaður í Von, og má það vera.
Við leitum frekara álits um það.
Guðrún Guðmundsdóttir í Hveragerði
hefur tvívegis áður veitt okkur mikils-
verðar upplýsingar um óþekktar myndir
og hringdi nú enn til okkar vegna myndar
nr. 47, sem hún taldi vera af Sesselju og
Margrétu Konráðsdætrum frá Syðsta-
Vatni í Lýtingsstaðahreppi, systrum séra
Helga, sem lengi þjónaði á Sauðárkróki.
Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður,
sem er sonur Sesselju, staðfesti að þetta
væri rétt.
Sigurður Ágústsson á Sauðárkróki og
Þórhildur ísberg vissu um konuna á mynd
nr. 51. Reyndist þar vera Ragnhildur
Sveinsdóttir frá Hindisvík, ógift, var lengi
hjá Sighvati Bjarnasyni bankastjóra á
Amtmannsstíg 2 í Reykjavík.
Séra Gunnar Gíslason frá Glaumbæ
þekkti mynd nr. 58. Reyndist hún vera af
móðursystur hans, Kristrúnu Arnórsdótt-
ur prests frá Hvammi í Laxárdal.
Loks bárust upplýsingar frá Helga
Hálfdanarsyni í Reykjavík um mynd nr. 62
úr síðasta tölublaði. Hún var af Stefáni
Sveinssyni kaupmanni á Hvammstanga,
síðar starfsmanni Kveldúlfs í Reykjavík.
Er þá upptalið að sinni.
Við breytum svolítið til við birtingu á
nýjum myndum að þessu sinni og drögum
fram tvær fjölskyldumyndir. Fjölskyldan á
mynd nr. 63 hefur setið fyrir hjá Eyjólfi
Jónssyni á Seyðisfirði, en Daníel Daníels-
son á Sauðárkróki tók mynd nr. 64 og er
hún því frá fyrsta áratug aldarinnar. Aftan
á hana hefur verið skrifað: Sigurbjörg
Sölvadóttir og böm.
Að endingu skal öllum þeim, sem gert
hafa sér ómak og haft samband við okkur
vegna þessara mynda og við höldum
ótrauðir áfram, því af nægu er að taka.
Utanáskriftin er: Safnahúsið, 550 Sauðár-
krókur, sími 95/5424.
íl° L°°Gr><g°
Hversdags
TÍMAMÓT
SKÍRNIR:
Dóttir Birgis Guðjónssonar og Soffíu
Svövu Daníelsdóttur á Sauðárkróki var
skírð 21. maí og hlaut nafnið Dagmar
Ingibjörg.
Dóttir Halldórs Kristins Olafssonar og
Gunnhildar Hlöðversdóttur var skírð á
Sauðárkróki 22. maí og hlaut nafnið
Halldóra.
Dóttir Benedikts Agnarssonarog Maríu
K. Angantýssonar var skírð á Sauðárkróki
22. maí og var gefið nafnið Sigrún Elva.
Dóttir Þorkels V. Þorsteinssonar og
Lydíu Jósafatsdóttur á Sauðárkróki var
skírð 22. maí og hlaut nafnið Helga Elísa.
Sonur Andrésa/ Helga Helgasonar og
Ásdísar Eddu Ásgeirsdóttur, Tungu í
Skarðshreppi, var skírður 11. júní og hlaut
nafnið Gunnar Þór.
Dóttir Einars Páls Guðmannssonar og
Ingibjargar Ragnarsdóttur á Sauðárkróki
var skírð 12. júní og var gefið nafnið
Margrét Huld.
Dóttir Baldurs Hafstað og Finnu Birnu
Steinsdóttur var skírð 16. júní og var henni
gefið nafnið Þorgerður.
Dóttir Gustafs Adolfs Björnssonar og
Guðrúnar Gunnarsdóttur á Sauðárkróki
var skírð 19. júní og hlaut nafnið Kristín
Brynja.
Dóttir Sigurðar Pálmasonar og Ingi-
bjargar Karlsdóttur, Höfða Kirkjuhvamms-
hreppi, var skírð 11. júní og hlaut nafnið
Marta.
Dóttir Jóhanns Guðjónssonar og Elísa-
betar Bjarnadóttur, Ásbraut 6, Hvamms-
tanga, var skírð 12. júní og gefið nafnið
Aðalheiður.
Dóttir Þóru Jónsdóttur og Stefáns
Karlssonar, Reykjavík, var skírð 17. júní
og gefið nafnið Berglind.
Sonur Haralds Friðjónssonar og Sigríð-
ar Ásu Sigurðardóttur, Litlu Hlíð, var
skírður 12. júní og hlaut nafnið Einar
Ragnar.
Dóttir Ragnars Gunnlaugssonar og
Sigurlaugar Ingvarsdóttur á Bakka var
skírð 12. júní og hlaut nafnið Anna Heiða.
Dóttir Gauks Péturssonar og Elínborg-
ar Bjarnadóttur frá Melrakkadal varskírð
12. júní og hlaut nafnið Vala.
Dóttir Konráðs Péturs Jónssonar og
Jónínu Rögnu Sigurbjartsdóttur, Böðvars-
hólum í Vesturhópi, var skírð Þorbjörg
Helga.
BRÚÐHJÓN:
Nýlega voru gefin saman í hjónaband
Bjarki Hrafn Olafsson og Helga Jóhanna
Haraldsdóttir, Grenihlíð 7, Sauðárkróki.
ANDLÁT:
Ragnar Ófeigsson, Svartárdal í Lýtings-
staðahreppi, var jarðsettur á Sauðárkróki
18. júní s.l.
Ólafía Sigurðardóttir, Laugarnesvegi 58
í Reykjavík, var jarðsett á Sauðárkróki 14.
FERMINGAR:
Ferming í Hvammi, Laxárdal, 19. júní:
Ingibjörg Sigurlaug Gunnarsdóttir á
Skefílsstöðum, Kristín Kjartansdóttir, Þor-
bjargarstöðum.
Ferming í Vesturhópshólakirkju 5. júní:
Úlfar B. Hjaltason, Vesturhópshólum
og Knútur Agnar Óskarsson Levy, Ósum.
Ferming í Víðidalstungu 12. júní:
Guðrún Inga Benediktsdóttir Miðhópi,
Aðalheiður Magnúsdóttir Hrísum, Þór-
unn Herdís Hinriksdóttir Ytri Völlum,
Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir Brún,
Sigríður Alda Björnsdóttir Stóru Borg,
Pétur Þröstur Magnússon Þórukoti og
Jakob Ásmar Hermannsson Litluhlíð.
VÍSUR
Fyrir skömmu birtist fyrripartur eftir
Indiönu Sigmundsdóttur, sem var svona:
Láttu hljóða lagið góða
létt svo bjóða megi hrund.
Við höfum aðeins fengið einn botn og er
hann frá Signýju Gunnlaugsdóttur, Bala-
skarði í Húnaþingi:
Þú sem ljóðar ástaróða
um það góða sprund.
Guðmundur Andrésson f.v. dýralæknir á
Sauðárkróki færði blaðinu dálítiðsniðugar
vtsur sem lesendur hafa örugglega gaman
af að skoða:
1 við : setti sá,
í (vann hann mikið).
gekk svo á
gegnum—.
----Þóroddur
þjónaði ....Tomma.
„Guðmundur
og Gudda ;
Guðmundur kom líka með þessa:
Hljóðfæranna sætur sónn
sjatnaði ekki í viku,
þegar gamall grammófónn
giftist harmoniku.
Ísleifur Gíslason kaupmaður á Sauðár-
króki hefur verið nefndur kímniskáld. Hér
er smá sýnishorn úr kvæði hans „Metra-
kerfið í praksis 1912”.
Einn kílómeter alpakka
átti eg að taka fyrir Möngu,
til þess að bæta treyjuna,
sem táð er sundur fyrir löngu.
Gefðu mjer nú á glasið, sko,
gott er að hressa sig við stritið,
einn hektólíter, eða tvo,
ekki má drekka frá sér vitið.
LÍKA FRÉTT
Bæjarstjórnarfundir á Sauðárkróki eru
greinilega gullnáma fyrir þá sem hlusta eftir
efni sem er „líka fréttnæmt”.
Snorri Björn Sigurðsson bæjarritari sat
síðasta bæjarstjórnarfund í forföllum bæjar-
stjóra. Á meðan Hörður Ingimarsson var að
tala voru þeir Snorri Björn og Magnús
Sigurjónsson að hvíslast eitthvað á við
„háborðið”. Þar sem Hörður var að beina
orðum til Snorra Björns þótti honum hann
ekki taka nógu vel eftir. Brýndi hann þá
röddina og sagði eitthvað á þessa leið:
-Forseti, ég óska eftir því, að þú sjáir til
þess að bæjarritari hafi eyrun vel opin!
Hættu þá hvíslingarnar við „háborðið” og
Snorri Björn lagði undir flatt og drakk í sig
hvert orð af vörum Harðar.
ODDVITINN:
„Róm var ekki byggð
á hverjum degi.”