Feykir


Feykir - 22.02.1984, Blaðsíða 2

Feykir - 22.02.1984, Blaðsíða 2
2 FEYKIR Eeykir Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðbrandur Magnússon. Útgefandi: Feykir hf. Póstfang: Pósthólf 4 - 550 Sauðárkrókur. Sími: 95-5757 Stjórn Feykis hf: Hilmir Jóhannesson, sr. Hjálmar Jónsspn, Jón Ásbergsson, Jón F. Hjartarson, Sigurður Ágústsson. Blaðamaður i Húnavatnssýslu: Magnús Ólafsson. Askriftarverð: 23 kr. hvert tölublað - í lausasölu 25 kr. Grunnverð auglýsinga: 100 kr. hver dálksentimetri. Útgáfutíðni: Annan hvern miðvikudag. Prentun: Dagsprent. Setning og umbrot: Guðbrandur Magnússon. Menntunaraðstaða í dreiíbýli Á síðustu árum hafa nokkur lóð verið lögð á vogarskál jöfnunar í menntunaraðstöðu fólks í dreifbýli og þéttbýli með því að framhaldsskólar hafa verið reistir á Austfjörðum, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og Norðurlandi vestra. Með stofnun þessara skóla hafa m.a. opnast möguleikar á að efla fullorðinsfræðslu og á því að halda meistaraskóla innan kjördæmanna sem vinnandi fólk á að öðrum kosti ekki heimangengt að sækja. Flestir þeir sem áhuga hafa á að stunda meistaranám eru fjölskyldumenn sem bundnir eru af þörfum heimilanna til tekjuöflunar og geta ekki sótt nám fjarri heimahögum. Því má telja meistaraskólanám sem hluta fullorðinsfræðslunnar sem efla þarf víða um landið. Ljóst er að innan Norðvesturlands má halda meistaraskólanám á Sauðárkróki, Siglufírði og Blönduósi ef: 1) áhugi heimamanna er fyrir hendi, 2) val sé á hæfum kennurum og þeir fúsir til að kenna, 3) fjárveiting fáist á Alþingi og frá sveitarfélögum til þessa. Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki er reiðubúinn til að veita faglega aðstoð við starfrækslu þessara meistaraskóladeilda á ofangreindum stöðum ef skilyrðin þrjú eru uppfyllt. Því kemur til kastaallra aðila sem málið snertir ef úr á að rætast. Á vegum menntamálaráðuneytis hefur verið unnið að undirbúningi frumvarps um fullorðins- fræðslu en það hefur dagað uppi í annríkinu. Vonandi verður á næstunni komið á skipan þessara mála með þeim hætti að fullorðinsfræðslu verði haldið uppi sem víðast um landið og hún viðurkennd sem sjálfsagður hluti af hverjum framhaldsskóla hvort sem um er að ræða, öldungadeild í bóknámi eða iðnfræðslugreinum, námsflokka eða meistaraskóla. Því er heppilegast að ákvæði um þetta verði í væntanlegri heildar- löggjöf um framhaldsskóla sem mjög brýnt er að verði sett innan skamms. Lóðin á vogarskálina sem nefnd var hér í upphafi þurfa að vera fleiri því enn hallar mjög á hlut dreifbýlis í menntamálum. Jón F. Hjartarson. Laun dugi til framfærslu Verðbólgan á íslandi hefur hjaðnað með slíkum hraða undanfarna mánuði að hrikt hefur í stoðum þjófélagsins. Laun hafa lækkað mikið hjá öllum, sem hefur haft í för með sér alvarlegt ástand hjá mörgum heimilum, þar sem tekjur hrökkva ekki fyrir nauðsynlegum útgjöldum. Ótrúlega erfitt virðist vera að ákveða í samningum að lægstu launataxtar skuli hækka mest. Andstaðan við slíkt virðist vera bæði í samtökum launafólks og vinnuveitenda. Krafa um laun sem dugi til framfærslu er sanngjörn og sjálfsögð. Vilji ráðandi öfl þjóðfélags- ins ekki sætta sig við hana er þeim ekki vorkunn þó valdi verkalýðshreyfingarinnar verði beitt gegn þeim. Jafn fráleitt og hækkun lægstu launa er sjálfsögð, er að sú hlutfallshækkun dragi upp alla launastiga. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984 Gert klárt í skelina á Hvammstanga. Skugga-Sveini frestað í ár Frá blaðamanni Feykis í Húnavatnssýslu. Mjög harður árekstur varð milli tveggja fólksbíla á Blönduósi í byrjun mánaðarins. Ökumaður var einn í öðrum bílnum og slasaðist hann mikið og var fiuttur á sjúkrahús í Reykjavík. Hann var handleggsbrotinn, axlarbrotinn, nef og kjálka- brotinn og hælbeinsbrotinn, en innvortis meiðsl hlaut hann engin. Er hann nú á góðum batavegi. í hinum bílnum voru þrír farþegar auk ökumanns. Hlutu þau öll minniháttar meiðsl, en fengu að fara heim eftir að gert hafði verið að sárum þeirra. Bílarnir eru báðir gjörónýtir Ný skóbúð að laka til starfa á Sauðárkróki Gylfi Geiraldsson mun á næstu dögum opna nýja skóbúð á Sauðárkróki í húsnæði því sem verslunin Björk hefur verið í að Aðalgötu 10. Þar var áður rekin skóbúð, en nokkuð er síðan sú verslun var aflögð. Að undan- förnu hefurumboðsmaðurstóru happdrættanna, HÍ, SÍBS og DAS, haft þar aðsetur og þegar Gylfi opnar skóbúðina mun happdrættisumboðið flytjast í húsnæðið þar sem verslunin Garðarshólmi var áður, í Kirkju- klauf. og að sögn Frímanns Hilmars- sonar lögregluþjóns var mesta mildi að fólkið slasaðist ekki enn meira. Allir í framsætum voru með öryggisbelti og hjálpaði það mikið. Þetta slys varð til þess að ákveðið hefur verið að fresta því að sýna leikritið Skugga-Svein í eitt ár. Ástæður eru þær að öku- maðurinn, sem mestslasaðist,er Njáll Þórðarson. „Við getum alls ekki hugsað okkur annan en Njál í hlutverk Skugga-Sveins,” sagði Sveinn Kjartansson formaður Leikfé- lags Blönduóss í samtali við Feyki. „Hann hæfir okkar manna best í þetta mikla hlut- verk og er gamalgróinn leikari og mjög virkur félagi í Leikfélagi Blönduóss. Því ákváðum við, jafnvel þó æfingar hefðu verið hafnar, að fresta frekari æfing- um og sýningu verksins í eitt ár og vonumst til þess að þá verði Njáll kominn til fullrar heilsu.” Ákveðið hefur verið að taka Spanskfluguna eftir Arnold og Bach og eru æfingar hafnar. Þetta er ærslaleikur, sem sýndur var við mjög góðar undirtektir hjá Leikfélagi Reykjavíkur árin 1970 og 1971. Leikstjóri hjá Leikfélagi Blönduóss er Eyþór Árnason. ’álÍit Allt efni til sokkablómagerðar Á næstunni verður sýnikennsla í sokkablómagerð. Nánari upplýsingar í versluninni og í síma 5253. oö Skagfirðingar - Sauðárkróksbúar Gefin hafa verið út skuldabréf til að afla fjár í byggingu öldrunarheimila í Skagafirði. Nafnverð bréfanna er kr. 500,00 - 1.000,00 og 5.000,00. Bréfin eru til sölu í Samvinnubankanum, Sauðárkróki, og í Búnaðarbankanum á Sauðár- króki, Hofsósi og Varmahlíð. öldrunarnefnd Skagafjarðar.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.