Feykir


Feykir - 22.02.1984, Blaðsíða 6

Feykir - 22.02.1984, Blaðsíða 6
6 FEYKIR MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984 RÝMINGARSALA! NÆSTU DAGA SEUUM VIÐ NOKKRAR RÚLLUR AF WORLD CARPETS GÓLFTEPPUM Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI. Verð frá kr. 195 pr. m2 JAFNFRAMT VERÐUR VEITTUR 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM DLW VEGGDÚK MEÐAN Á RÝMINGARSÖLUNNI STENDUR. Notiö tækifærið - gerið hagstæð innkaup. Byggingavörusala Eyri. Laugardaginn 28. þ.m. bauð Verka- kvennafélagið Aldan á Sauðárkróki öldruðum og fötluðum til þorrablóts í Bifröst. Blótið hófst kl. 14 og sótti það fjöldi manns. Var vel veitt bæði hvað snertir líkamlegar og andlegar þarfir þessa sérstæða hóps. Önnuðust félagar Óldunnar eingöngu bæði borðhald ogöll skemmtiatriði, utan hvað Ögmundur Svavarsson lék undir kór, sem konur höfðu æft sérstaklega fyrir þetta tæki- færi. Undir borðum var söngur, upp- lestur og ýms gamanmál, ásamt stuttum ávörpum. Þrjár konur lásu upp og léku atriði úr Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson, og skemmtu gestir sér konunglega. Að lokum var fjöldasöngur og allmargir stigu dans til kl. 17. Við hinir fjölmörgu sem nutum, viljum gjafnan biðja Feyki að koma á framfæri kæru þakklæti til Verka- kvennafélagsins Öldunnar fyrir lega ánægjulegan dag. Um myndir þær, sem birtast að þessu sinni, er ekkert að segja utan það, að þær eru allar teknar af Sigríði Zoega ljósmyndara í Reykjavík. Og við væntum enn góðra svara frá lesendum, ef þeir bera kennsl á fólkið. Upplýsingar sendist sem fyrr til Safnahúss Skagfirðinga, 550 Sauðárkróki, eða í síma 95-5424. Hólmfríður Jónasdóttir. GUÐVARÐAR VILMUNDSSONAR Gyða Oddsdóttir og börn. Innilegt þakklœti til allra sem glöddu okkur á gullbrúðkaupsafmœlinu, með blómum, skeytum og heimsóknum. Guð blessi ykkur öll. JÓDÍS OG GUÐMUNDUR Veðramóti. Þökk fyrir stundina, þökk fyrir árin þrotlaust er allt ykkar starf, málsvari hinna mörgu og smáu - hvers manns er hlaut fátækt í arf, en viturt hjarta og hendur traustar og hug þegar mest að svarf. Munið það vinir þann vitring er sagði: Vilji er allt sem þarf. En eitt er að vilja og annað að geta unnið og starfað með þér, að réttindum þeirra sem byrðarnar bera, en brothætt er okrarans ker. Þar hriktir í stoðum og stjórnandi feigur stenst ekki óvígan her. Því sárnar mér örlítið elskurnar mínar hve orðið er lítið úr mér. HVER ER MAÐURINN? Þórdís Friðbjörnsdóttir í Hofsósi hringdi vegna myndar nr. 91 úrsíðasta tölublaði og reyndist hún vera af ömmu hennar, Helgu Friðbjarnardóttur á Staðarbjörg- um á Hofsósi. Einnig barst ábending vegna myndar nr. 89 í sama blaði, er það í nánari athugun. Við þökkum veittar upplýsingar. Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall Hversdags Hagsmunir... Framhald eru i Reykjavík. Þar búa þeir sem þeirra efni ráða. Því mótast efni þeirra mjög af sjónarmiðum fólksins þar. Við vitum það að þar má ekki koma snjókorn úr lofti svo ekki bergmáli allt af neyðarópum en svo getur það gerst að atburðir gerist út á landsbyggðinni án þess að um þá sé að nokkru getið og sé það gert, þá er það oft á villandi og jafnvel rangan hátt. Sveinn: „Við skulum heldur ekki gleyma því að flest blöðin eru málgögn stjórnmálaflokk- anna og áhrifamenn innan þeirra ráða í raun öllum fjölmiðlunum. Því hafa flokkarnir mjög mikil áhrif á hvaða mál fá umfjöllun og hvernig. Og í sambandi við það mál, sem við höfum rætt hér, kjördæmamálið, hefur það fengið mjög einhliða umfjöllun.” Hólmfríður: „Mér fannst at- hyglisvert viðtal sem ég heyrði í útvarpi við blaðamann, sem nýlega er fluttur frá Reykjavík og út á land. Hann sagði að eftir að hann fór að starfa á lands- byggðinni hefði hann séð fjöl- marga hluti í nýju ljósi og hefði skipt um skoðun á ýmsum málum. Hann var þá spurður af útvarpsmanninum fyrir sunnan hvort hann hafi verið heila- þveginn fyrir norðan. „Nei, ég var heilaþveginn i Reykjavík” svaraði maðurinn og þá var fátt um svör og lítið framhald á umræðunni að sunnan”. Heilaþvo fjölmiðlarnir fólk? Hólmfríður: „Já, í ýmsum málum”. Sveinn: „Ég hef rekið mig á það að ef ég ræði við reykvíking, þ.e. reykvíking sem ekki er innarlega í einhverjum stjórn- málaflokki, þá þarf ég ekki að ræða við hann nema fimm mínútur til þess að hann sé kominn af þessari blaðaskoðun og getur vel fallist á það að ekkert réttlæti sé í því að vægi atkvæða sé það sama hvar sem er á landinu”. Aðalbjörn: „Fjölmiðlar hafa verið mataðir á mjög hæpnum upplýsingum um vægi atkvæða í öðrum löndum og þannig kom- ast mjög svo afbakaðar upplýs- ingar til almennings, upplýsing- ar, sem eru langt frá sannleik- anum”. Þið talið öll um það œgivald, sem reykvíkingar hafi á öllum sviðum þjóðlífsins, í flokkunum, í fjármálaheiminum, l fjö/miðlun- um. Ráð til breytinga. Eruð þið á leiðinni með að stofna nýjan stjórnmálaflokk? Örn: „Við erum öll í stjóm- málaflokkum og við erum öll óánægð. Það sem hefur háð okkur er hvað við búum dreift á landsbyggðinni, við náum ekki saman. Augu manna hafa verið að opnast fyrir því misrétti, sem landsbyggðin hefur verið beitt. Persónulega er ég ekki hrifin af því að stofnaður verði enn einn stjórnmálaflokkurinn. Það er ekki til þess að leysa vanda þjóðarinnar. Því verðum við að leggja áherslu á að þjappa okkur saman innan stjórnmálaflokk- anna og efla okkar áhrif á þann hátt. Takist það ekki og við landsbyggðarfólk verðum utan- garðs í núverandi flokkum verðum við að finna einhverja nýlendu til þess að vinna málum okkar framgang, en ekkert slíkt er þó á döfinni sem stendur”. Sveinn: „Markmið okkar sam- taka er að mynda ákveðið mótvægi gegn þeim hagsmuna- hópum innan flokkanna, sem ég hef hér fyrr rætt um. Við þurfum að vinna innan flokkanna mynda þar mótvægi og láta rödd okkar heyrast og á þann hátt hjálpum við almenningi í landinu til þess að mynda sína eigin skoðun á sem flestum málum í þjóðfélaginu. Eðlileg skoðanamyndun verður ekki ef fólk er matað á einhliða og villandi fóðri”. Hólmfríður: „Þaðerekkiunnt að spá neinu um hvað framtiðin ber í skauti sér, en það sem við erum að gera er fyrst og fremst að sameina hugi fólksins í baráttunni fyrir hag lands- byggðarinnar og þar með hag þjóðarinnar allrar”. Björn: „í beinu framhaldi af þessu má velta upp þeirri spurningu á hverju ætlar þjóðin að lifa í framtíðinni. Nú er vaxandi viðskiptahalli og versn- andi lífskjör. Því verður að leggja áherslu á að auka fram- leiðslu í landinu. Það verður ekki gert nema blómleg byggð haldist um land allt”.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.