Feykir - 22.02.1984, Side 8
Miðvikudagur 22. febrúar 1984.
4. tölublað, 4. árgangur.
bæði hólið oe skammimar
Vínarbrauðsspjall
við Ottar Bjamason
bakarameistara
á Sauðárkróki
Starfsfólk í Sauðárkróksbakaríi.
Eigendaskipti urðu á Sauðár-
króksbakaríi um síðustu ára-
mót. Óttar Bjarnason bakari og
Guðrún Sölvadóttir eiginkona
hans keyptu fyrirtækið af Guð-
jóni Sigurðssyni, sem bakað
hefur brauð handa Skagfirðing-
um í rúma hálfa öld.
Nýlega, þegar ritstjóri var í
vínarbrauðsferð i bakaríið, hafði
hann tal af Óttari og spurði
hvernig honum fyndist að vera
orðinn atvinnurekandi.
„Mér lýst vel á þetta allt
saman. Þessu fylgir gífurleg
vinna og tekjurnar eru í engu
samræmi við það fyrst í stað á
meðan verið að að kljúfa þetta
fjárhagslega. Ég vinn ekki undir
átján tímum á sólarhring og er
með allan mannskap í lágmarki.
Það eru engir meiri vinnuþrælar
en þeir sem eru eigin húsbænd-
ur, ég hefði aldrei trúað þvi fyrr
en ég stóð sjálfur frammi fyrir
því. En ég sé vinnuna skila sér og
þá er þetta tilvinnandi. Bæði
salan á brauðum og kökum
hefur aukist mikið undanfarnar
vikur. Stærsti viðskiptavinurinn
er auðvitað Kaupfélag Skagfirð-
inga og salan á brauðum frá mér
í verslunum þess hefur stór-
aukist. Það byggist á því að þeir
fá glæný brauð strax kl. 9 á
morgnana og eru búnir að fá ö!l
brauð fyrir hádegi. Fólk kann
greinilega að meta þetta og
kaupir meira af brauðum.”
A undanförnum árum hefur
prðið bylting í brauðneyslu
íslendinga, þannig að gróf brauð
eru nú orðin aðalframleiðsla
brauðgerða um allt land. Óttar
var spurður hvort þessi bylting
væri afstaðinn og framundan
væri stöðnun.
„Fólk er mjög opið fyrir
nýjum brauðtegundum og ég hef
bakað margar tegundir afbrauð-
um sem ekki hafa þekkst hér og
þessi brauð renna út. Ég held að
þessi þróun haldi áfram, brauð-
tegundum íjölgar, enda er sam-
keppnin miklu meiri en áður
var. Þegar ég kom hingað til
Sauðárkróks fyrir 6 árum var
þessi „grófbrauðabylting” ekki
hafin, það var lítið annað bakað
af brauðum en franskbrauð,
rúgbrauð og heilhveitibrauð.
Nei, það er engin lægð fyrirsjá-
anleg í brauðgerð hér á landi
næstu árin. Þeim sem flytja inn
kom til brauðgerðar hefur fjölg-
að á síðustu árum og samkeppn-
in milli innflytjenda er mikil og
þeir standa fyrir kynningum og
námskeiðum til að hampa sinni
vöru. Á þeirra vegum hafa verið
haldin þrjú námskeið á s.l.
fjórum árum fyrir bakara hér á
Norðurlandi, þar sem danskir,
sænskir og þýskir bakarameist-
arar hafa miðlað okkur af
þekkingu sinni og reynslu. Við
fylgjumst því nokkuð vel með,
því íslenskir bakarar hafa einnig
verið duglegir að fara utan til
að afla sér reynslu og kynna sér
nýjungar. Skagfirðingar munu
t.d. á næstunni geta keypt
nokkrar nýjar brauðtegundir,
sem Danir kynntu okkur á
síðasta námskeiði.”
Það kom fram í spjallinu við
Óttar að hann mun á næstunni
efna til brauðkynninga, þar sem
hann sýnir viðskiptavinum sin-
um hvað er i brauðunum og
hvernig hann meðhöndlar það.
Hjá Sauðárkróksbakaríi hafa
aldrei verið notuð gerviefni í
brauðin, hvorki eggjaduft né
rotvarnarefni, sem stóru bakarí-
in í Reykjavík og víðar nota
talsvert. Slík efni lengja sölu-
hæfni brauðanna, en það kemur
undantekningarlaust niður á gæð-
um. Brauðin eru auðvitað best
nýbökuð, þau batna ekki við
að hossast í vöruflutningabíl frá
t.d. Reykjavík. Þá er einnigfarið
að flytja inn blandað mjöl, sem
ekkert þarf við að gera annað en
hræra saman í vatni og baka.
Slík verksmiðjubrauð verða aldrei
bökuðj Sauðárkróksbakaríi að
sögn Óttars. Hann sagði enn-
fremur að sumt fólk ætlaði vart
að trúa því að hann notaði
eingöngu ekta rjóma og egg í
brauð og kökur, en sem dæmi
um eggjanotkunina sagði hann
að aðeins um síðustu helgi hefði
hann notað um 50 kg af eggjum í
kökubakstur.
Nýlega fór Óttar að hafa
brauðbúðina opna eftir hádegi á
sunnudögum og hefur mátt sjá
þar að fólk kann að meta þá
nýbreytni að geta keypt t.d.
góðar og gamaldags Napóleons-
kökur með nýþeyttum rjóma,
því stanslaus ös hefurverið allan
opnunartímann.
En hverjir eru kostirnir við að
vera „eigin húsbóndi”?
„Ég hef alltaf stefnt að því.
Þegar maður hefur eigið fyrir-
tæki, þá hefur maður eitthvað að
keppa að og þetta er alltaf nýtt
og ferskt viðfangs þegar maður
er uppfullur af hugmyndum. Nú
fær maður bæði hólið og skamm-
irnar, en áður fékk maður bara
skammirnar. Þó svo að Sauðár-
króksbakarí sé eina bakaríið
hér, þá er samkeppnin mikil.
Stóru brauðgerðirnar reyna að
komast inn á þennan markað og
eftir að samgöngur urðu svo
góðar sem þær eru, þá er þetta
raunveruleg samkeppni sem þarf
að glíma við. Hún veitir mér
aðhald og fær mig til að missa
ekki sjónar á því að ef þjónustan
hjá mér er ekki nógu góð þá dett
ég út fyrr en varir. Ég hef aukið
söluna hér um slóðir vegna þess
að ég hef aukið þjónustuna, á
því er ekki vafi. Það má ekki
gleymast í þessu sambandi að ég
tek við góðu fyrirtæki úr hönd-
um Guðjóns Sigurðssonar, sem
á síðustu árum hefur byggt það
upp og endurnýjað þannig að nú
er það mjög vel á vegi statt hvað
tækjakost varðar,” sagði Óttar
Bjarnason að lokum.
Er hægt að bæta flugsamgöngur?
Samgöngur milli Blönduóss og
Sauðárkróks eru mjög lélegar
um þessar mundir. Norðurleiða-
rútan fer nú aðeins um á
þriðjudögum og föstudögum,
þá daga sem mokað er. Póst- og
fólksflutningar á milli Skaga-
fjarðar og Húnavatnssýslu eru
bundnir þessari rútu, sem ekurá
milli Akureyrar og Reykjavíkur
ef fært er og það er því nóg að
ófært verði yfir t.d. Holtavörðu-
heiði til að samgöngur milli
Blönduóss og Sauðárkróks falli
niður.
Arnarflug heldur uppi áætl-
unarflugi milli Blönduóss og
Reykjavíkur fjóra daga vikunn-
ar, þriðjudaga, fimmtudaga, föstu-
daga og sunnudaga, en Flugleiðir
fljúga á milli Sauðárkróks og
Reykjavíkur fimm daga, alla
daga nema laugardaga og sunnu-
daga. Tvo daga þar af er
millilent á Húsavík á suðurleið,
sem lengir leiðina til muna, því
Húsavík er í þveröfuga átt við
stefnuna til Reykjavíkur. Á
landakorti sýnist álíka langt að
fljúga fyrst til Húsavíkur eins og
til ísafjarðar og þaðan til
Reykjavíkur.
Spurningin sem vaknar við
þessar vangaveltur er, hvort
ekki væri hægt að tengja saman
Reykjavíkurflug frá Blönduósi
og Sauðárkróki, en flugleiðin frá
Sauðárkróki til Reykjavíkur ligg-
ur nánast yfir Blönduós. Erfið-
leikarnir því samfara felast í því
að það er sitt hvort flugfélagið
sem flýgur á Blönduós og
307 lögregluskýrslu
Feyki hefur borist yfirlit frá
lögreglunni á Sauðárkróki um
skýrslugerð lögreglunnar á síð-
asta ári um árekstra, slys, ölvun
við akstur og fleira.
Meðal þess sem fram kemur í
yfirliti þessu er að skýrslufjöldi
vegna umferðarmála varð á
árinu 1983 alls 307, en til
samanburðar voru gerðar 228
slikar skýrslur árið 1982.
Keyptur var nýr lögreglubíll á
árinu og annar seldur. Alls óku
lögreglumenn á lögreglubílum
61.812 km árið 1983, auk þess
sem bílaleigubílar voru notaðir
talsvert mestu annatimana.
Lögreglumenn voru kallaðir
til 173 sinnum vegna árekstra i
Skagafirði, þar af urðu 7 slys á
mönnum og eitt banaslys. Öll
slysin urðu utan Sauðárkróks.
Vinnuslys urðu hins vegar þrjú á
Sauðárkróki. Vegna gruns um
ölvun við akstur voru 38 bíl-
stjórar stöðvaðir á árinu.
Fangageymslur lögreglunnar
þurftu 32 einstaklingar að gista
áárinu 1983,allirvegnaölvunar
nema einn, sem sitja þurfti inni
vegna málsrannsóknar.
Langflestar lögreglusektir voru
vegna rangrar stöðu ökutækja,
eða 52.
Af yfirliti lögreglunnar má
ráða, að þrátt fyrir allt sé fátt
stórmála sem koma til kasta
lögreglunnar.
Sauðárkrók og engin samvinna
þar á milli, frekar hörð sam-
keppni.
Samgönguráðuneytið veitir sér-
leyfi á hinum ýmsu flugleiðum,
t.d. hafa Flugleiðir sérleyfi á
flugleiðinni Akureyri - Reykja-
vík, en Flugfélag Norðurlands
hefur leyfi fyrir leiðinni Akur-
eyri - Ólafsfjörður - Reykjavík,
og fer þannig í raun og veru á
bak við reglurnar. Því vaknar sú
spurning hvort Arnarflug gæti
fengið sérleyfi á leiðinni Sauðár-
krókur - Blönduós, þannig að
Reykjavíkurflug væri samtengt
frá þessum tveimur stöðum.
Með því móti væri hægt að hafa
daglegar flugferðir á milli, suma
daga jafnvel tvisvar á dag. Slíkt
myndi auðvitað bæta samgöng-
ur innan Norðurlands vestra,
sem ekki er vanþörf á að bæta,
og einnig við Reykjavík.
Feykir hafði samband við
Guðmund Hafsteinsson hjá inn-
anlandsflugi Arnarflugs og bar
undir hann þessa hugmynd.
Guðmundur, sem vinnur í af-
leysingum fyrir Örn Helgason,
forstöðumann innanlandsflugs-
ins, sagði að sér fyndist hug-
myndin góð, en vissi ekki til að
hún hefði verið rædd hjá Arnar-
flugi. Taldi hann ekki fráleitt að
Arnarflug sækti um þessa flug-
leið, þar sem fordæmi væri fyrir
slíku með Reykjavíkurflugi Flug-
félags Norðurlands. „Annað
mál er svo, hvort samgöngu-
ráðuneytið féllist á slíka beiðni
frá okkur,” sagði hann.