Feykir - 23.05.1984, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1984
FEYKIR 7
/ Varmahlíð\
26. og 27. maí 1984
Laugardagur 26. maí kl. 21:
Húsið opið kl. 21-23.
Kaffisala, tónlist.
Sunnudagur 27. maí kl. 15.30:
Dagskrá með tónlist kennara og
nemenda frá Tónlistarskólanum á
Akureyri.
Einleikur á fiðlu og lágfiðlu.
Einsöngur með píanóundirleik:
Michael Clark.
Strengjasveit með kontrabassa og
píanói flytur skemmtidagskrá, þ.á.m.
Joplin og Bítlasyrpu.
Aðgangur kr. 200.
Kaffisala til ágóða fyrir hljóðfæra-
kaupasjóð.
Málverkasýning Sigurpáls ísfjörð
stendur yfir báða dagana.
Fjölmennum á
Vordagana
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra
Frá heilbrigðisfulltrúa:
Dagana 27. maí til 8. júní væri gott að gera
hreinsunarherferð um allar sveitir, kaupstaði og
þéttbýliskjarna.
Heilbrigðisf ul Itrúi flytur nú aðsetur sitt í
Heilsugæslustöð Sauðárkróks. Frá 1. júní 1984
verður síminn 95-5400. Símatími kl. 9-11 f.h. og
14-15 e.h. mánudaga til föstudaga.
VIKTORÍA GESTSDÓTTIR
Innritun nemenda
stendur yfir
Innritun í Fjölbrautaskólann á Sauðár-
króki stendur yfir til 5. júní n.k.
Nemendur sem sækja síðar geta ekki
vænst skólavistar.
Heimavist og mötuneyti er við
skólann.
Nám er boðið fram á eftirtöldum
námsbrautum:
1. í iðnfræðslu: Verknámsbraut
(grunndeild) málmiðna, heilsvetrar-
nám; verknámsbraut (grunndeild) raf-
iðna, heilsvetrarnám; samningsbund-
ið nám: Iðnnámsbrautir í tré-, málm-
og rafiðnum.
2. Verslunarnám: Viðskiptabraut, 2 ár;
viðskiptabraut, 4 ár (stúdentspróf).
3. Menntaskólanám: Málabraut, nátt-
úrufræðibraut, samfélagsbraut, upp-
eldisbraut.
4. Aðfaranám að Tækniskóla íslands:
tæknabraut (1 ár), tæknifræðibraut (2
ár). Aðafaranám að Fiskvinnsluskóla
íslands: fiskvinnslubraut 1 og fisk-
vinnslubraut 2. Aðfaranám aðSjúkra-
liðaskóla íslands, heilsugæslubraut 2.
Nánari upplýsingar eru gefnar á
skrifstofu skólans í síma 5488 alla
virka daga kl. 9-15.
Skólameistari.
Kirkjukór Sauðáikróks heldur almenna skemmtun
Á föstudaginn kemur heldur Kirkju-
kór Sauðárkróks almenna skemmt-
un til fjáröflunar vegna Norður-
landaferðar sinnar.
Á dagskrá verður m.a. kórsöng-
ur, kvartett, vísnasöngur, og leik-
þættir og gamanmál undir stjórn
Hilmis Jóhannessonar. Kafft og
pönnukökur verða á boðstólum.
Kórfélagar, sóknarprestur og
fleiri fara til Danmerkur og Sví-
þjóðar í byrjun júní og heimsækja
vinabæi Sauðárkróks þar, Köge og
Kristianstad. Þar kemur kórinn
fram og kynnir íslenska tónlist,
Sauðárkrók og Skagafjörð. Einnig
mun kórinn syngja við messu hjá
séra Ágústi Sigurðssyni og íslenska
söfnuðinum í Kaupmannahöfn.
Ferðaáætlun
Ferðafélags
Skagfirðinga
Ferðafélag Skagfirðinga hefur gefið
út ferðaáætlun fyrir sumarið 1984.
Fimm skipulagðar ferðir eru á
vegum félagsins, en auk þess verður
farið í skála félagsins i haust.
Þórdis Magnúsd.munstýrafyrstu
ferð sumarsins um sögustaði í
Skagafirði 24. júní.
Önnur ferðin verður 7. júlí og er
það gönguferð um Hrolleifsdal.
Ekið verður sem leið liggur fram
fyrir Bræðraá og gengiðframdalinn
og hann skoðaður undir leiðsögn
Stefáns Gestssonar.
Gönguferð á Trölla er á dagskrá
20.-22. júlí og mun Egill Helgason
stýra för. Ekið verður fram að
Kálfárdal og gengið þaðan með
viðlegubúnað i Trölla, gist þar og á
laugardag farnar skoðunarferðir
um nágrennið. Komið verður heim
síðdegis á sunnudegi.
Hinn kunni ferðagarpur Ingólfur
Nikódemusson verður fararstjóri
þegar farið verður í Ingólfsskála
10.-12. ágúst. Á fyrsta degi verður
ekið í skálann, sem stendur upp við
Hofsjökul, og síðan dvalið þar og
farnar gönguferðir um nágrehnið.
Fimmta ferðin verður 25.-26.
ágúst og verður farið í Hvítárnes og
til Hveravalla. M.a. verður virkjun-
arsvæði Blöndu skoðað. Fararstjóri
verður Sigurþór Hjörleifsson.
Brottfararstaður í allar ferðirnar
er frá Pósthúsinu á Sauðárkróki og
þarf að panta far með góðum
fyrirvara og eigi síðar en 4 dögum
fyrir brottför. Upplýsingar og mót-
taka pantana er hjá Sigurði R.
Antonssyni sími 5166 eða 5260,
Sigurði Sigfússyni í síma 5531 eða
hjá Huldu Sigurbjörnsdóttur í síma
5289.
ODDVITINN:
„Það er svo bjart
að maður fær hellur fyrir
eyrun.”
Piltar og stúlkur, takið eftir!
Iðnnem óskast
í setningu
Ég undirritaður vil taka iðnnema á samning í
prentiðn (setningu) nú þegar eða fljótlega.
Umsækjendur þurfa að hafa gott formskyn,
teiknikunnátta er kostur og góð stafsetningar-
kunnátta æskileg. Umfram allt er þó gerð krafa
um samviskusemi og áhuga á starfinu.
Laun samkvæmt kaupskrá Félags íslenska
prentiðnaðarins
Guðbrandur Magnússon
Aðalgötu 2, sími 5757.
Hönnun, tölvusetning, prentþjónusta, forlag.
íbúðarhús til sölu
Til sölu er íbúöarhúsiö aö Kirkjugötu 15, Hofsósi.
íbúðin er 125 m2 nettó, auk bílskúrs fyrir tvo bíla.
Kauptilboð sem greini verð og greiðslukjör óskast
sent undirrituðum fyrir 20. júní n.k. Áskilinn er réttur
til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Kristján Ólason, sími 95-6391.