Feykir - 18.07.1984, Blaðsíða 2
2 FEYKIR
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984
Feykir
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Guðbrandur
Magnússon. ÚTGEFANDI: Feykir hf. PÓSTFANG:
Pósthólf 4, 550 Sauðárkrókur. S(MI: 95/5757.
STJÓRN FEYKIS HF.: Hilmir Jóhannesson, Sr.
Hjálmar Jónsson, Jón Ásbergsson, Jón F.
Hjartarson, Siguröur Águstsson. BLAÐAMENN:
Hávar Sigurjónsson og Magnús Ólafsson.
ÁSKRIFTARVERÐ: 23 kr. hvert tbl.; í lausasölu 25 kr.
GRUNNVERÐ AUGLÝSINGA: 100 kr. hver
dálksentimetri. ÚTGÁFUTlÐNI. Annan hvern
miðvikudag. PRENTUN: Dagsprent hf. SETNING
OG UMBROT: Guðbrandur Magnússon.
SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2. Sauðárkróki.
Bændur og
framtíðin
Séra Þórsteinn Ragnarsson prestur á Miklabæ
skrifaði athyglisverða grein í búnaðarblaðið
Frey fyrir skömmu. Þar segir hann m.a.:
Leiðari
„Stefna þarf að því að bændur sjálfir vinni
meira en nú er við fullvinnslu þess hráefnis sem
þeir framleiða. Þannig gætu bændur mætt
samdrætti í framleiðslu búvara heima fyrir, að
þeir fylgi hráefninu eftir og skili því til neytenda
sjálfir og fái þá meira fyrir sína vöru en nú
tíðkast.
Staðsetja þarf úrvinnslustöðvarnar; slátur-
húsin, mjólkursamlögin, kjötvinnsluna og
jafnvel skinna- og ullariðnaðinn, meira í
sveitunum eða miðsvæðis í sveitahéruðunum,
t.d. þar sem þéttbýli hefur myndast vegna
jarðhita. Hófleg dreifing þessara vinnslustöðva
stuðlar að jafnvægi í byggð landsins og þar gætu
bændur og fjölskyldur þeirra fengið atvinnu,
sem hægt væri að sækja frá heimilunum. í
tengslum við sláturhús er eðlilegt að starfrækja
kjötvinnslu, þar sem unnið væri úr kjöti og
gengið frá þvi í neytendapakkningar. Þá fyrst
væri tímabært fyrir bændur að senda vöruna frá
sér.”
Síðar í sömu grein segir séra Þórsteinn á
Miklabæ;
„Ég hef gengið út frá þeirri forsendu, að
heillavænlegt sé fyrir þjóðfélagið í heild að
landinu sé haldið í svipaðri byggð og verið hefur
undanfarin ár. Jafnframt hef ég bent á aðsífellt
verður erfiðara að fá fólk til starfa við
landbúnað, vegna þess að skilyrði til þeirrar
atvinnugreinar hafa farið svo versnandi að
engan samanburð stenst í þjóðfélaginu. Ég hef
bjargfasta trú á möguleikum landbúnaðar á
íslandi, bæði til að anna fullkomlega innan-
landsmarkaði og einnig til þess að afla sér
markaða erlendis. Bændur sjálfir verða að
koma meira inn í myndina, þeirra hagsmunir
eru í veði.
Að lokum þetta. Bændum verðurhaldiðniðri
meðan framleiðslumálin eru í jafnvægisleysi og
ýmislegt óeðlilegt viðgengst í skjóli þess að
offramboð er á markaðnum. Niðurrifsöfl í
þjóðfélaginu halda áfram að rífa niður
landbúnað í heild, án þess að benda á leiðir til
úrbóta. Sífellt fleiri taka undir órökstuddar
fullyrðingar þessara afla og sífellt erfiðara er
fyrir málsvarsmenn bænda að halda rökstudd-
um rétti frumatvinnuvegar þjóðarinnar.
Bændur þurfa að snúa vörn í sókn, þannig að
þeir geti í framtíðinni unnið upplitsdjarfír að
verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið.”
Kántrýhátíðin á Skagaströnd
Dagana 20. júlí til 22. júlí verður
haldin á Skagaströnd heilmikil
Kúntrýhátíð undir heitinu „Villta
vestrið”.
Þar verður ýmislegt til skcmmtunar
og allt með KÁNTRÝ blæ.
Bíósýningar verða alla dagana með
myndir úr villta vestrinu í
Félagshcimilinu Fellsborg. Hópreið
hestamanna með Hallbjöm Hjartar-
on í broddi f'ylkingar. Ýmsar
hestaíþróttir t.d. boðreiðar, tunnu-
kappreiðar ofl. Einnig verður
sérameriska fyrirbrigðið rodeo, en
leikurinn er fólginn í því að snúa kálf
niður á sem skemmstum tíma. Þarna
verður einnig hæfileikakeppni í söng
og gítarleik (og að sjálfsögðu
kántrýtónlist). Valinn verður falleg-
asti 8 gata ameríski bíllinn. Ýmsir
skemmtikraftar koma fram, þ.á.m.
Hallbjörn Hjartarson, Johnny King
og Siggi Helgi. 2 hljómsveitir leika
fyrir dansi kántrýtónlist. Hljóm-
Bflvangur,
nýtt fyrirtæki
í stað bif-
reiðadefldar
Sambandsins
Nýtt fyrirtæki, Bílvangur sf., hóf
rekstur fimmtudaginn 7. júní. Stofn-
endur eru Jötunn hf. og Samband
íslenskra samvinnufélaga.
Hið nýja fyrirtæki yfirtekur alla
starfsemi á sviði bifreiðasölu og -
þjónustu sem Bifreiðadeild Sam-
bandsins annaðist áður, en hún
hefur nú verið lögð niður í samræmi
við nýtt skipulag, sem nú er að
ganga í gildi innan Sambandsins.
Bílvangur rekur bifreiðasölu, vara-
hlutaverslun, hjólbarðasölu, við-
gerðaverkstæði og smurstöð - allt á
einum og sama stað, í rúmgóðum og
glæsilegum húsakynnum að Höfða-
bakka 9. Fyrirtækið hefur umboð
fyrir sömu bílaframleiðendur og
Bifreiðadeildin hafði, þ.e. General
Motors í Bandaríkjunum, Opel í
Vestur - Þýskalandi og Isusu í
Japan.
Framkvæmdastjóri hins nýstofn-
aða fyrirtækis er Tómas Óli Jónsson
og stjórnarmenn eru Þorsteinn
' Ólafsson, sem er stjórnarformaður,
Benedikt Sigurðsson og Ómar Jó-
hannsson.
Kóngurinn sjálfur.
sveitin Gautar frá Siglufirði leikur á
föstudagskvöldið undir berum himni
ef veður leyfir. Á laugardagskvöldið
verður aðalhátíðin haldin í Félags-
heimilinu Fellsborg á Skagaströnd.
Þar leikur Hljómsveitin Týrol frá
Sauðárkróki. Ýmsar uppákomur
verða bæði kvöldin. Á sunnudag
verður útimessa og söngur. Þorvaldur
Halldórsson syngur. - Hestaleiga
verður alla dagana. Einnig verðurgert
ráð fyrir hestvagni í sinni uppruna-
legu kántrý-ímynd í fastar
áætlunarferðir milli Kántrýbæjar og
tjaldsvæðisins með gesti. Rekin verður
nær allan sólarhringinn KÁNTRÝ
ÚTVARPSTÖÐ með kántrýtónlist
og léttu hjali. Ef veður leyfir og
vindátt er hagstæð er fyrirhugað að
kveikja varðeld á svæðinu.
Veitingar verða í Kántrýbæ og I
sölutjöldum á tjaldsvæðinu.
Næg tjaldstæði eru á Skagaströnd
ekki langt frá Fellsborg.
Nýjung!
Flugnagildran
Silva gegn flugum, mýi, möl
og skordýrum.
í MJÓLKURKLEFANN l \ ÍBÚÐARHÚSIÐ
Inniheldur efni sem dregur að sér flugur.
Umboðsmaður: Jóhann Gauti Gestsson,
Beykilundi 10, Akureyri, sími 23116.
Sendum í póstkröfu.
Jón Eiríksson umsjónarmaður Drangeyjar við húsið.
Neyðarskýli byggt í Drangey
Að undanförnu hefur verið unnið Húsið er fyrsta húsið í Drangey,
við byggingu neyðarskýlis í Drang- sem ætlaðeraðstanda tilframbúðar
ey. Er það mesta myndarhús, um 20 frá því Grettir Ásmundarson
fermetrar að stærð. Húsið er þannig byggði þar hús sitt.
byggt, að tyrft verður yfir það og
mun það því falla sérstaklega vel inn
í umhverfið.
W.M. Gallagher, Ólafur Friðriksson, Ragnar Eiríksson, Sveinn Sigfússon og
Magnús H. Sigurjónsson.
Rafgirðingar þriðjungi ódýrari
Undanfarna daga hefur verið hér á
landi W.M. Gallagher aðalfram-
kvæmdastjóri Gallagher fyrirtækis-
ins á Nýja Sjálandi, en það er
framleiðandi rafgirðingaefnis sem
nú ryður sér æ meira til rúms hér á
landi. Umboðsfyrirtæki Gallagherá
íslandi er Kaupfélag Skagfirðinga
og Ragnar Eiríksson.
W.M. Gallagher var hér staddur
til að kynna sér íslenska markaðinn
og aðstæður hér á landi, og ræða við
forráðamenn Kaupfélags Skagfirð-
inga og Ragnar Eiríksson. Var m.a.
farið upp á Auðkúluheiði til að
kynna honum aðstæður þar, en þar
er fyrirhugað að girða með raf-
girðingum og hefur verið sett upp
vindmillurafstöð þar til þeirra nota
ætluð.
Að sögn W.M. Gallagher er raf-
girðing um þriðjungi ódýrari en
hefðbundin girðing. Aðalkostinn
sagði hann þó vera hina mikla
möguleika sem rafgirðingar gefa á
beitarstjórnum. Taldi hann að
íslendingar gætu nýtt landið til
beitar mun betur en þeir gera með
því að stjórna beitinni í hólfum með
rafgirðingum.
Að sögn Ólafs Friðrikssonar
kaupfélagsstjóra hefur sala á
Gallagher rafgirðingaefni stórauk-
ist á þessu ári og er selt um allt land.