Feykir - 18.07.1984, Blaðsíða 6
6 FEYKIR
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984
Bændahátíð á
Jónsmessu
Búnaðarsamband Austur-Húnvetn-
inga gckkst að vcnju fyrir
bændahátíð á Jónsmessunni. Þar
llutti Signý Pálsdóttir leikhússtjóri
á Akureyri ræðu, Kristinn Sig-
mundsson og Júlíus Vífill Ingvars-
son sungu við undirleik Ólafs Vignis
og samkomugestir nutu veitinga
sem framreiddar voru af konum í
kvenfclaginu Vöku. Þá veitti
Búnaðarsambandið viðurkenningar
nýútskrifuðum búfræðingum og
Búnaðarsambandið og Kvenfélaga-
samband sýslunnar veittu að venju
viðurkenningar fyrir snyrtilega
umgengni á bændabýlum. Að þessu
sinni hlutu þá viðurkenningu
ábúendur að Ási í Vatnsdal, þau
Ingunn Guðmundsdóttir og Jón B.
Bjarnason. Að lokum var stiginn
dans fram eftir nóttu.
Sjötti árgangur
Húna komin út
Ungmennasamband Vestur-Hún-
vetninga hefur gefið út sjötta árgang
Húna. Að venju birtist í ritinu ýmis
fróðleikur um húnvetnsk málefni,
sögur, sagnir og kveðlingar, ásamt
fréttum úr hreppum sýslunnar, sem
er góð heimild um það sem er að
gerast á hverjum tíma.
Af einstökum þáttum í ritinu má
nefna að Margrét Jóhannesdóttir
frá Stóru-Ásgeirsá skrifar æsku-
minningar sínar. Hún var fædd
1889 og birtist þessi frásögn fyrst í
handskrifuðu blaði sem kvenfélagið
Freyja gaf út. Óskar B. Teitsson
skrifar um ferðir sínar með lækna og
Ijósmæður á árum áður. Séra
Róbert Jack skrifar þátt, sem heitir
íslendingur í Edinborg. Gunnþór
Guðmundsson skrifar þátt, sem
heitir gengin spor. Bcnedikt
Guðmundsson skrifar aldarminn-
ingu um séra Jóhann Kr, Briem
sóknarprest á Melstað og Ólafur B.
Óskarsson skrifarum Búnaðarfélag
Þorkelshólshrepps 100 ára. Margir
lleiri þættir eru í ritinu, sem er
rúmlega 100 síður og prentað hjá
POB á Akureyri.
HVER ER MAÐURINN?
Við höfum ekkert heyrt frá
lesendum um myndirnar úr síðasta
blaði, en væntum þó enn úrlausna.
Hins vegar barst vitneskja um mynd
nr. 107, sem birtist í blaðinu 25.
april s.l. Hún reyndist vera af
Steindóru Sigfúsdóttur í Ásgeirs-
brekku. Það var Gísli Bessason á
Sauðárkróki sem kom þessu á
framfæri og kunnum við honum
bestu þakkir fyrir.
Við höldum svo enn áfram með
óþekktar myndir úr dánarbúi Gísla
Guðmundssonar veitingamanns á
Sauðárkróki. Ekki er getið Ijós-
myndara við fyrstu myndina, nr.
117, en Carl Olafsson í Reykjavík tók
mynd nr. 118. Mynd nr. 119 tók H.
Einarsson á Akureyri, en nr. 120 er
frá Sæm. Guðmundssyni Ijósmynd-
ara í Reykjavík. Þeir sem kunna
einhver skil á þessum myndum hafi
vinsamlegast samband við Safna-
húsið, 550 Sauðárkróki, eða í síma
95/5424.
118
120
117
119
BJENDUR
Nú -eins og
undanfarin sumur m
bjóöum við bændum
sérþjónustu.
SANYO
JAPANSKT GÆÐAMERKI
20” sjónvarp á kr. 26.640
og það sem meira er...
20” stereo sjónvarp
með fjarstýringu á aðeins kr. 32.900.
@ raf s já hf
Sæmundarqötu 1
Sæmundargötu
Sauðárkróki
Sími 95-5481
Innilegar þakkir til ykkar allra sem glödduð
mig á 70 ára afmæli minu 18. júni 1984 með
hlýjum kveðjum, blómum og öðrum góðum
gjöfum.
JÓHANN LÚÐVÍKSSON
Kúskerpi
KÁNT
HÁTÍÐ
Villta vestrið, Skagaströnd
20.,21. og 22. júli
Á laugardögum er
^™flR0p varahluta-
verslun okkar opin frá
kl. 10.00 til 14.00.
kempEr Komið eða hringið, llHI|hlllll!
þjónustusíminn er 91 -39811
BÚNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
★ Bíósýningar, kántrýmyndir
★ Hallbjörn Hjartar, Johnny King og Siggi
Helga skemmta.
★ Kántrýdansleikur föstudagskvöld. Gautar
leika
★ Bílasýnig. Fallegasta 8 gata bifreiðin valin.
★ Hestaíþróttir:Tunnukappreiðar, boðreiðar,
Rodeo (kálfasnörun og fleira.
★ Hæfileikakeppni í söng og gítarleik.
★ Dansleikur í Fellsborg laugardagskvöld.
Hjómsveitin Týrol leikur til kl. 4.
★ Útimessa.
★ Kántrýútvarpsstöð í gangi alla dagana.
★ Hestaleiga á staðnum.
★ Hestvagn í föstum ferðum (áætlað)
★ Skotbakkar fyrir þá skotglöðu.
★ Veitingar í Kántrýbæ og sölutjöldum.
★ Næg tjaldstæði.
Mætið öll hress í kántrýgalla, með hatt og í
gallabuxum.
Kántrýbær / Studio Bimbó