Feykir


Feykir - 18.07.1984, Blaðsíða 3

Feykir - 18.07.1984, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984 FEYKIR 3 17 sentimetrar! Sigurfinnur bregöur málbandi á brúnina Bflum ófært að íbúðarhúsunum íbúar við Öldustíginn á Sauðár- króki eru furðu slegnir yfir þeim vinnubrögðum sem viðhöfð voru við lagningu gangstéttar við götuna nú á dögunum. Frágangurinn er slíkur að nokkrir íbúanna geta nú ekki lengur komið bílum sínum inn í heimkeyrslur sínar og bílskúra vegna þess að ekkert hefur verið hugsað fyrir því að lækka þann kant gangstéttarinnar sem snýr að heim- keyrslunum. Þetta er því furðulegra þegar gætt er að því að slíkt hefur verið gert við öll garðshlið og reyndar eina heimkeyrslu. Hvers vegna hinar voru skildar útundan er hins vegar ekki vitað. Við hús Sigurfinns Jónssonar er kanturinn hvorki meira né minna en 17 sentimetra hár og því ekki viðlit að komast á venjulegum fólksbíl þar niður af. Svafar Helgason hafði sömu sögu að segja og sagðist nú verða að hækka þröskuldinn á Þann 10. maí sl. Skóræktarfélag A - Húnvetninga aðalfund sinn í Snorrabúð. Skógræktarfélag A - Húnvetninga stundar skógrækt á jörð félagsins Gunnfríðarstöðum og kom fram í skýrslu formanns félagsins Haraldar Jónssonar að á síðasta ári voru gróðursettar á vegum félagsins um 9.000 þúsund plöntur og var þar um meira en helmings aukningu að ræða frá árinu áður. Sigurfinnur Jónsson og Svafar Helgason á gangstéttinni. Einnig kom fram að á síðasta ári seldi félagið í fyrsta sinn plöntur úr eigin gróðurreit, um 500 aspir og var andvirði þeirra um 2.000 kr. Stjórn Skógræktarfélagsins skipa þau Haraldur Jónsson form. séra Arni Sigurðsson ritari, Þormóður Pétursson gjaldkeri og meðstjórn endur eru Vigdís Ágústsdóttir og Guðmundur Guðbrandsson. bílskúrshurðinni til jafns við þann lo sentimetra kant sem honum var úthlutaður. Báðir sögðust þeur hafa rætt við starfsmenn bæjarins og fengið þau svör að íbúarnir yrðu að kosta frágang á heimkeyrslum sínum sjálfir. Þeim væri bannað að lækka kantinn, slíkt væru spjöll á almenningseign. Semsagt, fyrir gang- stéttina verða íbúarnir nú að steypa upp heimkeyrslur sínar til jafns við gangstéttina ef þeir vilja koma bílum sínum af götunni. ** Skarð í einokunar- múrinn Það fyrsta sem blm. Feykis datt í hug, þegar hann sá í auglýsingu um kántrýhátið á Skagaströnd að þar ætti að vera útvarpsstöð í fullum gangi í þrjá daga, var'hð nú ætti að fremja lögbrot. Eins og kunnugt er hefur Ríkisútvarpið einkarétt á útvarpsrekstri hér á landi og þeir sem reynt hafa að ráðast á þann einokunarmúr með því að reka litlar útvarpsstöðvar hafa verið stöðvaðir hið snarasta, jafnvel með lögreglu- valdi. Hallbjörn Hjartarson hafði hins vegar samband við Andrés Björns- son útvarpsstjóra og bað um leyfi fyrir kántrýstöðinni og veitti Andrés leyfið orðalaust. Aðalfundur Skógræktarfélags A-Hún Orlofsferð skagfirskra húsmæðra Skagfirskar húsmæður fara orlofs- ferð suður Kjöl dagana 10. -14. ágúst. Gist verður á Laugarvatni og farið í Skaftafell. Orlofsdvöl verður síðan að Ástjörn í Kelduhverfi 19. - 25. ágúst. Þar er umhverfi sérlega skemmtilegt og tilvalið fyrir húsmæður að dvelja þar sér til hvíldar frá önnum heima. Dvalar- kostnaður fyrir hverja konu er aðeins 2.000 kr. Þátttaka tilkynnist fyrir 1. ágúst til Kristínar Jóhanns- dóttur, Smáragrund 9 á Sauðár- króki, sími 5198, eða til Áshildar Öfjörð á Sólgörðum í Fljótum, eða til Kristbjargar Bjarnadóttur í Litlu - Brekku. Tapast hefur Casio karlmannsúr á iþróttasvæöinu á Sauöárkróki 4. júli sl. Finnandi hringi í sima 5388. Fundarlaun. Til sölu Land-Rover diesel, árgerð 1966. Nýuppgerð vél. Upplýsingar í Hvammi í Hjaltadal, sími um Sauð- árkrók 5111. Húnvetningar Nýkomin sumarefni í miklu úrvali. Kaupféiag Húnvetninga Vefnaðardeild Blönduósi. Hólanes útibú Skagaströnd. Mjolkursamlag KEA Akureyri Simi 96-21400

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.