Feykir


Feykir - 06.02.1985, Side 1

Feykir - 06.02.1985, Side 1
— fyrir Norðurland vestra — Útgerðarfélag Skagfirðmga:_______________ Fjórði skuttogarinn keyptur? Útgerðarfélag Skagfirðinga hefur sýnt ákveðinn áhuga á því að kaupa fjórða skuttogarann til Sauðárkróks. Frum- kvæði að slíkum skipakaupum kemur frá stjórn Fiskiðjunnar, sem er í eigu Kaupfélags SkagFirðinga. Að sögn Bjarka Tryggvasonar, framkvæmdastjóra Ú.S., hefur erindi Fiskiðjunnar ekki verið formlega rætt í stjórn fyrirtækisins, en Feykir hefur fyrir satt að þrátt fyrir það sé Útgerðarfélagið búið að skila inn tilboði í skuttogarann Bjarna Herjólfs- son, en hann keypti Landsbankinn nýlega á uppboði. Ráðamenn Lands- bankans hafa látið hafa eftir sér að þeir þurfi að fá rúmar 90 milljónir fyrir togarann til að sleppa skaðlaust frá viðskiptunum. Nú þegarhafa borist 7- 8 tilboð í togarann, en heimildir Feykis herma að bankinn muni ekki endilega taka hæsta tiboðinu, heldur fyrst og fremst hugsa um að fá togarann „ekki í hausinn aftur”, eins og einn viðmæl- enda blaðsins orðaði það. Þá ráði mestu hversu stöndugur og skilvís kaupandinn sé og mun Útgerðarfélag Skagftrðingar ekki standa illa að vígi í þeim samanburði. Fáist Bjarni Herjólfs- son ekki keyptur munu aðrir logarar koma til greina, en nú eru 10-12 togarar á vanskilalista Fiskveiðasjóðs, sem sumir verða trúlega boðnir upp. Bjarki Tryggvason sagði að það myndi þýða stóraukið rekstraröryggi fyrir útgerðina ef fjórði togarinn bættist við og vinna i landi myndi aukast að sama skapi. Verði af togarakaupunum þarf að auka hlutafé ÚS um 13-14 millj. kr. Bæjarsjóður Sauðárkróks er stærsti hluthafinn í Útgerðarfélaginu. Erindi um togarakaup og þar með hlutafjár- aukningu fékk jákvæðar undirtektir bæjarráðs í síðustu viku. 1 samtali við Feyki sagði Magnús H. Sigurjónsson, forseti bæjarstjórnar, að ef af togara- kaupunum gæti orðið þá væri það álíka þýðingarmikið skref í atvinnumálum og bygging steinullarverksmiðjunnar. „Þetta mun þó verða fjárhagslega erfitt fyrir Sauðárkróksbæ, þar sem hann þarf einmitt nú á þessu ári að inna af hendi fé vegna skuldbindinga við Steinullarverksmiðjuna, og þess vegna hefði verið betra að bíða í um eitt ár. En ég tel ekki rétt að sleppa tækifæri nú — ef það gefst, þar sem ekki er víst að önnur tækifæri bjóðist aftur í bráð,” sagði Magnús. Nýstárlegir vioskiptahættir í Húnaþingi Nýlega seldi Haukur á Röðli Guðmundi Garðari bankastarfsmanni á Blönduósi bíl sem í sjálfu sér er ekki í frásögur færandi. Kaupandinn vildi greiða bílinn með Vísa korti, víxlum, eða skuldabréfum, en seljand- inn vildi fá greiðslur í beinhörðum peningum. Það var samþykkt og skyldi Haukur koma á tilteknum tíma í bankann að sækja greiðsluna. Hvort honum hefur þá brugðið í brún skal ósagt látið, en Guðmundur reiddi fram kaupverðið í mörgum pokum. I sumum var 10 kr. mynt en í öðrum smærri mynt, allt nákvæmlega talið og pakkað í bankanum, enda hæg heimatökin fyrir bankastarfsmanninn. Haukur lét ekki á neinu bera, heldur hélt til síns heima með sína beinhörðu peninga. Lagði hann nú höfuðið í bleyti og hugsaði sitt ráð. Ekki liðu margir dagar þar til Haukur birtist í bankanum á ný. Hafði hann þá meðferðis stórar fötur fullar af peningum, en nú hafði sú breyting orðið á að hann hafði opnað alla myntpakkana og hrært pening- unum vandlega saman í eina kös, enda kvaðst Haukur hafa þurft að telja peningana heima. Segir sagan að þeir starfsmenn bankans sem þurftu að telja sjóðinn og flokka hann hafi litlar þakkir kunnað starfsfélaga sínum og Hauki á Röðli fyrir að stunda svona viðskipti. Tók talningin margar klukkustundir, þrátt fyrir að talningavélar væru notaðar. Menn í Húnaþingi tala nú um að hæfilegt verð fyrir Renó árgerð 74 sé um 23 þúsund stykki af beinhörðum peningum sem vegi 97 kíló. Góð færð á fjöllum Níu menn á þremur bílum fóru fyrir skömmu fram á Grímstungu- og Haukagils- heiði. Gekk ferð þeirra mjög vel, enda óvanalega lítill snjór á heiðum. Komust þeir félagar fram í Álkuskála, spiluðu þar lomber um stund, en óku síðan fram ogaustur á Sandfell nyrst í Stórasandi. Þaðan fóru þeirí Bríkárkvíslardrög og svo eftir veginum að mestu austur í Öldumóðuskála. Síðan var haldið norður með Refskegg, yfir Svínavatns- hæðir og til byggða. Ferðin tók aðeins á sjöundu klukkustund, frá því farið var úr Vatnsdal þar til þangað var komið aftur. „Svarta gengið” hrellir Færanleg sveit toilgæslumanna úr Reykjavík, sem meðal sjómanna gengur undir heitinu „Svarta gengið” kom upp um smygl í skuttogaranum Hegranesi þegar hann kom úr siglingu í síðustu viku. Ekki höfðu þeir þó mikið upp úr krafsinu: tvö myndbandstæki, fimmtán flöskur af víni og átján kassa af bjór. Hegranes kom inn til Sauðárkróks á miðvikudaginn í síðustu viku eftir að hafa selt afla sinn í útlöndum. Um hádegi þann sama dag var togarinn tollafgreiddur. Eftir það hafa menn talið sér óhætt að landa smyglvarningnum, en þeir gættu ekki að því að „svarta gengið” vaktaði skipið; sat í bíl úti á hafnargarðinum og beið átekta. Þegar varningurinn var borinn út í sendibíl seinni hluta dagsins dreif að sveit tollvarða eins og þruma úr heiðskíru lofti og gómaði smyglarana. Mikil leynd hvílir yfir starfsemi „svarta gengisins”. Það eina sem Feykir hefur fengið upp um starfsemi þessarar óvinsælu sveitar toll- varða er að þeir ferðast óskipulega um landið — eru á Sauðárkróki einn daginn en næsta dag eru þeir kannski komnir suður til Keflavíkur. Þeir hafa ekki samráð við tollyfirvöld á hverjum stað og láta engan vita af sér þar sem þeir bera niður hverju sinni. BLÖNDUÓS: Hafnarleysi háir útgerð frá Blönduósi Útgerð er orðin veruleg atvinnugrein á Blönduósi. Hjá fyrirtækinu Særúnu hf. vinna 25-30 manns allt árið, auk þess sem fyrirtækið gerir út tvo báta. Á þeim eru níu sjómenn. Á síðasta ári var unnið úr 1.050 lestum afhráefni hjá fyrirtækinu og var söluverðmæti þess um 40 milljónir króna. Á síðasta ári var reist 200 fermetra bygging við hús fyrirtækisins og er þá húsakostur þess um 1200 fermetrar. Sjá nánar viðtal við Kára Snorrason forstjóra Særúnar á bls. 5.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.