Feykir


Feykir - 06.02.1985, Qupperneq 7

Feykir - 06.02.1985, Qupperneq 7
3/1985 FEYKIR 7 Afleysingastarf Sjúkrahús Skagfirðinga óskar að ráða aðstoðar- mann til afleysinga á röntgendeild. Vinnutími 08-16. Staðan veitistfrá 18. feb. 1985 til 6. sept. 1985. Umsóknarfrestur er til 8. febrúar 1985. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staðn- um og í síma 95-5270, mánudaga og fimmtudaga kl. 10-12. VINNUEFTIRLIT RÍKISINS Siðumúla 13. 105 Reyk]avlk, Slml 82970 Laus staða Umdæmiseftirlitsmaður á Norðurlandi vestra með aðsetur á Sauðárkróki Umsækjendur skulu hafa staðgóða tæknimennt- un, t.d. tæknifræðimenntun, ásamt starfsreynslu. Önnur menntun kemur þó til greina. Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Nánari upp- lýsingar um starfið veitir Sigurður Þórarinsson, deildarstjóri eftirlitsdeildar í síma 91-29099. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar n.k. Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu- blöðum sem fást á aðalskrifstofu stofnunar- innar sími 91-82970. öismálum reglugerð vandasöm. Megin- reglan væri þó ljós, að ekki verði reykt, en reykingafólk fái þó afdrep. Samdar hafa verið reglur sem fyrst um sinn verða notaðar af eftirlitsmönnum. Þar kemur m.a. fram að á vinnustöðum þar sem brotið yrði gegn reglum yrði fyrst gefin ábending. Verði hins vegar ekki farið eftir slíkum ábendingum og Ijóst að starfsmenn, sem ekki reykja, vilja að málinu sé fylgt eftir, ber starfsmanni Vinnu- eftirlitsins að beita sér frekar í málinu á hliðstæðan hátt og gert er í öðrum vinnuverndarmálum. Að sögn Harðar Bergmann gæti svo farið að atvinnurekstur yrði stöðvaður þar sem ítrekað yrði brotið gegn lögunum. Fimmta til sjötta hvert dauðsfall erafvöldum tóbaksreykinga Þungamiðja og veigamesti þáttur nýju tóbaksvarnalag- anna er að draga úr tóbaksneyslu og þar með því heilsutjóni, sem hún veldur. Landlæknir telur að fimmta til sjötta hvert dauðsfall á landinu megi rekja til reykinga, svo til mikils er að vinna. Talsmenn tóbaksvarnanefndar lögðu mikla áherslu á það, að sá þáttur laganna sem varðar takmörkun reykinga sé í raun alls ekki sá veigamesti, heldur beri miklu frekar að líta á hann sem langþráð tæki til handa hinum þögla meirihluta, sem orðið hefur að þola reykingar og þar með skaðleg áhrif óbeinna reykinga án þess að geta borið hönd fyrir höfuð sér. Er hér ekki síst átt við börn og unglinga. — Sú einfalda staðreynd blasir við, að ef það fólk sem ekki reykir, notar ekki lögin og tryggir framgang þeirra, geta engin lögregluyfirvöld knúið menn til hlýðni. Þess vegna ríður mikið á, að fólkið í landinu taki höndum saman og semji sín á milli um hvar má reykja og hvar ekki og sýni í þeim efnum hógværð og tillitssemi. Það er engin lausn að vinnufélagar berjist innbyrðist og helli heitu kaffi hver yfir annan eða sprauti vatni úr brunaslöngum. Með örfáum slíkum undantekning- um benda fyrstu viðbrögð almennings til þess að hógværð og tillitssemi ráði gjörðum manna, sagði Arni Johnsen. Enn bætum við kjörin: 39,24% ÁRSÁVÖXTUN og verðbólgu- trygging! Eat*****™*! innlánsform * samvinnufólks! Aðeins sex mánaða binding! UMuSSkwQSEgíMBi&i INNLÁNSDEILD Fjórðungssamband Norðlendinga og Stjórnunar- félag íslands bjóða nú í annað skipti í vetur hið vinsæla... RITARANÁMSKEIÐ Markmið: Að auka hæfni ritara við skipulagningu, bréfaskriftir, skjalvörslu og önnur almenn skrif- stofustörf. Efni: Bréfaskriftir og skjalavarsla, símsvörun og afgreiðsla viðskiptavina, skipulagning og tíma- stjórnun. Þátttakendur þurfa að hafa nokkra reynslu sem ritarar og innsýn í almenn skrifstofustörf. Leiðbeinandi: Jóhanna Sveinsdóttir, framkvæmda- stjóri Nón h.f. Verð: Kr. 3.600:- fyrir félagsmenn í Stjórnunar- félagi fslands; kr. 4.500:- fyrir aðra. Staður og tími: Sjallinn, Akureyri, 22.-23. febrúar kl. 9.30-17.30 fyrri daginn og kl. 9.00-12.00 seinni daginn. Skráning þátttakenda: Hjá Fjórðungssambandi Norðlendinga, sími 22270 og 22453. Frestur til að láta skrá sig á námskeiðið er til 15. febrúar. ATHUGIÐ: Ef næg þátttaka fæst á Norðurlandi vestra, verður haldið sérstakt námskeið á Sauðárkróki. Hljómsveitin Portó og Erla Stefánsdóttir Tökum að okkur að spila á árshátíðum, þorra- blótum og almennum dansleikjum. Spilum alla danstónlist. Getum einnig útvegað gott skemmti- atriði gegn vægu gjaldi. Upplýsingar í síma 96-22500 (Erla) á daginn og 96-22235 eftir kl. 19. Vísna- þátturínn Ekki þurfti stóryrði til að hagyrðingar tækju við sér og sendu blaðinu vísur. Indíana Sigmundsdóttir kvartaði í síðasta blaði yfir vísnaleysinu og nú verður henni, og mörgum vísnavinum, að ósk sinni um vísnabirtingar í blaðinu. Fyrst koma þá vísur frá fyrrverandi nágranna Indíönu: Díu ekki dvínar auður að dunda ljóðasmíði við. Þó hætt sé Fríða og Hjalti dauður, hún samt veitir engin grið. Meðan ýmsir atóm-snakkar óljóð semja er gleymast tljótt, áttræðis á aldri krakkar eiga leik við ríms íþrótt. En Fríða (Hólmfríður Jónas- dóttir) er svo sannarlega ekki dauð úr öllum æðum. Hún er í fullu fjöri og sendir blaðinu eftirfarandi: Vísu yrki eftir mætti án þess birting fái’ hana. Fyrir þá orsök Fríða hætti, Feykir vildi’ ekki sjá hana. Feykir henni þráfalt þótti þunnur vera í roðinu. Við það greip hann Guðbrand ótti garpurinn hafnaði boðinu. Hólmfríði finnst það heldur bragðlítið sem kemur frá hinu háa Alþingi og segir: Deyfð er yfir Alþingi, aðeins deilt og þrefað. Flest er haft í flimtingi, flogið út og þefað. Þar er ei á vísu von vel þó margur syngi, enginn Bjarni Ásgeirsson, eða Jón á þingi. Loks kemur frá Hólntfríði ..Bragbót”: Húmið sígur hægt um lönd, heldur fyrir mér vöku. Þá geng ég minni gleði á hönd, geri litla stöku. Ólafur Magnússon á Sveins- stöðum hélt uppá sjötugsafmæli sitt i Flóðvangi á bóndadaginn. Meðal veislugesta var svili hans Böðvar Guðlaugsson í Kópa- vogi. Hann flutti afmæliskvæði í hófinu, auk þess sem hann fór þar með margar stökur sem voru „blandaðar á staðnum”. Meðal þeirra var þessi: Látum oss lagið taka, lystina mun ei saka. Þessi fagnaður hér í Flóðvangi er ósvikin Ólafsvaka. Afmælisbarnið drakk úr silfur- staupi meðan aðrir veislugestir drukku úr venjulegum glösum. Því sagði Böðvar: Gífurlega er nú gaman hér gleðibros mér stekkur. Allir með glös, en enginn sér hvað Ólafur bóndi drekkur. Undir lokin sagði Böðvar: Gleðskapur sjaldan gerðist rneiri, gamanið engar hömlur þvinga. Sárt er að þekkja ekki soldið fleiri sjötuga Austur-Húnvetninga.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.