Feykir


Feykir - 04.12.1985, Page 1

Feykir - 04.12.1985, Page 1
OHAÐ FRETTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA Verkamatmabústaðir á Sauðárkrófd Þijár umsóknir fjórtán íbúðir Heldur iila virðist blása í málefnum verkamannabústaða á Sauðárkróki á þessu hausti. í nóvember voru boðnar út til umsóknar 14 nýjar íbúðir í fyrirhuguðu ijölbýlishúsi við Víðimýri og þegar umsóknar- frestur rann út höfðu 3 umsóknir borist. Að auki hafði ein umsókn borist þar sem óskað var eftir skiptum á íbúðum innan kerfísins. Feykir skýrði einnig frá því fyrr í haust að illa gengi að selja íbúðir í eigu Verkamannabústaða í rað- húsum sem komnar voru í endursölu. Ekki hafa enn komið fram kaupendur að þeim. Á sama tíma virðast fasteignaviðskipti á frjálsum markaði ganga með eðlilegum hætti á Sauðárkróki. Sveinn Friðvinsson formaður Stjórnar verkamannabústaða á Sauðárkróki sagði í samtali við Feyki að hann teldi að ekki væri fyllilega að marka þennan litla áhuga sem komið hefði fram við auglýsingunni í nóvember. „Fólk er hrætt við peningamálin á þessum árstíma og því munum við auglýsa þessar íbúðir aftur eftir áramótin og væntum þá betri viðbragða. Hins vegarsetja reglur Húsnæðisstofnunar um verkamannabústaði okkur nokkuð þröngar skorður, þar sem eldra fólk sem býr í óþarflega stóru húsnæði og vildi gjarnan skipta á einhverju minna, getur ekki komist inn í verkamannabústaðakerfíð sam- kvæmt núgildandi reglum. Ég skal fúslega viðurkenna það að þessar íbúðir eru nokkuð dýrar en lánin eru 80% til 42ja ára og Vatnsnesvegur: Slysagildra um þær eru seldar á kostnaðarverði. Þess má einnig geta að kostnaðaráætlun Húsnæðis- stofnunar var mun hærri en það tilboð sem íbúðirnar hér verða byggðar eftir. Þær hefðu því getað verið ennþá dýrari. Mér finnst heldur ekki vera orðið neitt samhengi á milli þeirra tekjumarka sem tilskilin eru í reglunum, 307 þúsund fyrir einstakling eða hjón og 28 þúsund fyrir hvert barn undir 16 ára aldri, og síðan þess hvað íbúðirnar kosta. Annað hvort verður að hækka tekjumörkin eða lækka verð íbúðanna með einhverjum ráðum,” sagði Sveinn Friðvinsson að lokum. Bíll valt út af veginum skammt utan við bæinn Skarð á Vatnsnesi í síðustu viku. Miklar skemmdir urðu á bílnum, en ökumaður slapp ómeiddur. Þetta er í annað sinn á þessu ári, sem bílvelta verður á þessum stað, en þarna er blindhæð og beygja, lítið merkt. „Ég vil viðhafa þung orð í garð vegagerðarinnar út af því að þarna hafa ekki verið gerðar umbætur,” sagði Sigurður Ingi Guðmundsson í Saurbæ á Vatnsnesi í samtali við blaða- mann. „Ég tel það algert sinnuleysi að hafa ekki gert einhverjar úrbætur á þessum stað, en það er unnt að gera án mikils tilkostnaðar. Þarna hafa verið nær árviss umferðaró.höpp og oft hefur verið kvartað yfir þessu til vegagerðarinnar en án árangurs. Ég óttast að þarna verði stórslys áður en nokkuð verði að gert,” sagði Sigurður Ingi að lokum. Hrossabændur í Vatnsdak Höfða mál nokkurra jarða. Setudómari verður settur í málinu. Frágangur á ljósum og gangstéttum við Sauðárkrókskirkju og Safnaðarheimili er til mikillar fyrirmyndar og lífgar skemmtilega upp á yfirbragð gamla bæjarins í skammdegismyrkrinu. Sauðárkrókur: Lús að stínga sér niður Bændurnir Björn Magnússon á Hólabaki og Einar Svavarsson á Hjallalandi, sem í sumar ráku hross á Haukagilsheiði en sýslumaður lét reka til byggða aftur, hafa nú höfðað mál til þess að fá úrskurð sýslunefndar frá í vor dæmdan ógildan. Sýslunefnd úrskurðaði að óheimilt væri að reka hross á Gdmstungu- og Haukagilsheiði og takmarka ætti hrossaupp- rekstur í Víðidalsfjall og Sauða- dal. Málið byggja bændurnir á því að sýslunefnd hafí ekki haft úrskurðarvald í þessu máli ogað í gildi hafí verið ítala, þannig að ekki sé unnt að banna mönnum að reka hross í sinn ítölurétt. Þá krefjast þeir greiðslu kostnaðar og skaðabóta úr rikissjóði. í þessu máli er mörgum aðilum stefnt. M.a. sýslumanni, fjármálaráðherra, oddvitum sex hreppa og eigendum og ábúendum Undanfarna daga hafa komið upp nokkur tilfelli um lús á Sauðárkróki og fólk að vonum felmtri slegið yfir þessum vágesti. Feykir snéri sér til Oskars Jónssonar yfirlæknis heilsugæslustöðvarinnar á Sauðár- króki og spurðist fyrir um hversu alvarlegt þetta væri. „Þetta er ekki alvarlegt mál og hefur komið upp áður, bæði hér og annars staðar,” sagði Oskar. „Það er ekki ósjaldan sem fínnst lús á skólabörnum á haustin og auðvelt að útrýma henni með samræmdum að- gerðum heilbrigðisyfirvalda og foreldra. Það hafa komið upp um 10 tilfelli af lús undanfarna daga og ég vil taka það fram að það er ekki á skólabörnum eingöngu. Allir hafa fengið viðeigandi meðferð og ég held að við séum að komast fyrir þetta núna. Við höfurn sent út viðvörun til foreldra og núna í vikunni verður sendur út bæklingur þar sem leiðbeint verður hvernig bregðast skal við þessu. Það er rétt að benda fólki á að það er best að leita að nit í hárinu en ekki lús, þar sem hún sést sjaldnast. Nitin er hvít, tæpur millimetri í þvermál og föst við hárin nálægt hársrótinni. Þar sem lúsin er bráðsmitandi er rétt fyrir foreldra að leita daglega í hári barna sinna í 2 vikur til að fyrirbyggja alla möguleika. Ef nit finnst ættu foreldrarað snúa sér til skólahjúkrunar- fræðings eða heilsugæslulækna svo hægt sé að hafa tölu á Jreim tilfellum sem koma upp. Ég vil einnig taka það fram að allir geta orðið fyrir því að fá lús þegar svona kemur upp og þetta er ekkert tengt sóðaskap eða neinu slíku. Það er auðvelt að losna við þctta og óþarft að gera stórmál úr þessu,” sagði Oskar Jónsson læknir að lokum.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.