Feykir


Feykir - 04.12.1985, Blaðsíða 6

Feykir - 04.12.1985, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 24/1985 Jóla- bækurnari Gjafavörurnar og Jólaskrautið fáið þjð i BÓKABÚÐINNI BÓKABOÐ EKZNcIARS Sauðárkróki r SAUÐÁRKRÓKSBÆR | FRÁ INNHEIMTU SAUÐÁRKRÓKS Síðasti gjalddagi útsvara og aðstöðugjalda 1985 var 1. desember sl. Vinsamlega greiðið gjaldfallnar skuldir nú þegar. Þeir gjaldendur sem eru í vanskilum, eru alvarlega minntir á að gera skil nú þegar. Dráttarvextir reiknast að kvöldi 16. desember n.k. INNHEIMTA SAUÐÁRKRÓKS V FYRIR VETURINN MÓTORSTILLINGAR Champion kerti PEHAGE kveikjuhlutir LJÓSASTILLINGAR Orsun perur og aðalljos DEKKJAÞJÓNUSTA Norðdekk frá Gúmmívinnustofúnni hf. SMURSTÖÐ OLÍS-vörur - FRAM síur BREMSUBORÐAÁLÍMINGAR ALLAR ALMENNAR BÍLA- OG BÚVÉLAVIÐGERÐIR NÝTT NÚ BJÓÐUM VIÐ PÚSTVIÐGERÐIR Á FÖSTU VERÐI Nýtt pústkerfi + vinna = tilboð í allar teg. bíla JRJ BIFREIÐASMIÐJA VERKSTÆÐI VARMAHLÍÐ SÍMI 95-6119 Samtök um jafnrétti milli 1 Sögulegur fundur Samtökin um jafnrétti milli landshluta héldu fund á Hvammstanga laugardaginn 23. nóv. si. Þangað boðuðu þau alla þingmenn Norðurlandskjöidæmis vestra til þess að kynna þeim baráttumál samtakanna m.a. baráttu sína fyrir nýrri stjómarskrá og kosningu sérstaks stjómlagaþings til þess að fjalla um það mál. A fundinum töluðu fimm framámenn samtakanna og allir þingmennimir tóku einnig til máls. Hver ræðumanna hafði 15 mínútur til umráða sem skiptist á tvær til þijár umferðir. Hér verður í örstuttu máli geið grein fyrir nokkrum atriðum, sem komu fram í máli ræðumanna. Fjölmenni var á fundinum. Örn Björnsson sagði að samtökin væru stofnuð til þess að jafna valdaaðstöðuna í landinu og draga úr mið- stýringu. Sagði hann frá drögum að stjórnarskrá sem samtökin hafa samið og vildi að nú þegar væri kosið sérstakt stjórnlaga- þing til þess að fjalla um þau drög og semja nýja stjórnarskrá fyrir landið. Tvo fulltrúa á að kjósa úr kjördæmi á þetta stjórnlagaþing en alþingismenn eru ekki kjörgengir á það samkvæmt tillögum samtakanna. Spurði Örrt þingmenn hvortþeir styddu það að svona þing yrði haldið. Árni Steinar Jóhannsson sagði að miðstýringin væri farin að keyra úr hófi. Hann spurði hvort framtíðarsýnin ætti að vera vinnslustöðvar á lands- byggðinni en allt annað þjóðlíf á einum punkti landsins. Spurn- ingu sinni svaraði hann á þann hátt að nú yrði að snúa vörn í sókn. - Bindumst samtökum um að finna kerfi, sem gerir okkur kleift að halda okkar hlut, sagði Árni. Hann skoraði á þingmenn að taka undir tillögur sam- takanna og sagði í einni afsínum ræðum: - Ég hef verið talinn dagfarsprúður maður. Ekki æsa upp í mér grimmdina. Málfríður Sigurðardóttir ræddi um kafla í drögum að stjórnarskrá sem samtökin hafa samið. Sagði m.a. að forseta ætti að kjósa þannig að ef enginn næði hreinum meirihluta í fyrstu umferð væri kosið aftur milli þeirra tveggja, sem flestatkvæði hlytu. Þá vildi hún afnema æviráðningu embættismanna og afnema þingrofsréttinn því þeir sem væru kosnir til þings væru skyldir til þess að stjórna landinu út kjörtímabilið. Hún vildi ekki að þingmenn væru á kafi í fyrirgeiðslupólitík, eins og hún orðaði það en taldi það myndi breytast ef samþykkt væri að stofna fylki og fylkisþing eins og samtökin gera tillögu um. Sigríður Rósa Kristmunds- dóttir talaði um ýmsa þætti í tillögum samtakanna að nýrri stjórnarskrá. En hún sagði að þau drög væru ekkert endanlegt plagg, heldur tilraun til þess að koma á fót umræðu meðal fólks um stjórnarskrána, sem síðan þyrfti að fá stórhuga stjómmála- menn til þess að flytja tillögu um sérstakt stjórnlagaþing sem tæki þessi mál til ýtarlegrar um- fjöllunar. Pétur Valdimarsson sagði frá tillögum samtakanna um fylkja- skipan. Fylkin eiga að fá veruleg völd í sínum málum. Á fylkisþingum sitja fulltrúar sveitarfélaga í fylkinu, einn frá þeim smærri, en fleiri frá þeim stærri. Fylkisþing kýs fylkinu sjö manna stjórn. Pétur sagði það vera aðalástæðuna fyrir því hve þingmenn skildu lítið vandamál landsbyggðarinnarað þeir sitja ætíð suður í Reykjavík og þar eru einnig allir embættis- mennirnir. Pálmi Jónsson sagði að þessi fundur væri fyrsta alvarlega tilraunin til þess að varpa þessu máli til þingmanna kjördæmisins. Taldi hann það vera af því góða að almennir borgarar komi saman og geri tillögur að nýrri stjórnarskrá, en ég tek ekki í mál að endanleg afgreiðsla fari fram annars staðar en á Alþingi sjálfu, sagði Pálmi. Hann lýsti fylgi sínu við það meginsjónar- mið að dreifa valdi í landinu en sagði það miklaspurningu hvort það mætti ekki takast án þess að koma á fót nýju stjórnsýslustigi. Taldi hann að fela mætti sveitarfélögunum o§ samtökum þeirra aukin völd. Ut af orðum Péturs Valdimarssonar sagði Pálmi. - Ég vil vara við því að ala á því að þingmenn vinni ekki sín störf af fullum heilindum. Ég hlýt að mótmæla því að þingmenn þekki ekki vel til mála i sínum kjördæmum, sagði Pálmi. Páll Pétursson sagði að hér væri einhugur að byggja landið allt og að þegnarnir byggju við sem jafnasta aðstöðu. - Mark- miðin eru því sameiginleg, en það er hugsanlega spurning um leiðir, sagði Páll. Hann sagðist vilja skoða stjórnarskrárdrögin með jákvæðu hugarfari. Þar væri margt gott, en annað væri sér ekki að skapi. Hann sagði að vel mætti athuga með þrí- skiptingu stjórnvaldsins, en sagði það ekki algilt að heimamenn tækju skynsam- legustu ákvarðanirnar. í því Framleiösla er hafin á kjamfóðurblöndu Notið innlendar fóðurvörur KYNNINGARVERÐ VALLHÓLMUR GRASKÖGGLAVERKSMIÐJA HF Símar 95-6133 og 6238 - Skagafirði

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.