Feykir - 04.12.1985, Side 10
1« FEYKIR 24/1985
Körfubolti 3. og 4. Jlokkur
Strákamir standa sig vel
HAFA
BAÐINNRÉTTINGAR
OG SKÁPAR
HVÍTT OG VIÐARLITAÐ
ÝMSIR MÖGULEIKAR
EINNIG VÆNTANLEGIR
SKÁPARÁ
LÆKKUÐU VERÐI
ÓTRÚLEGT EN SATT
sm
Byggingavörusala á Eyri
Helgina 23. og 24. nóv. sl.
fóru þriðji og fjórði flokkur
Tindastóte suður yfir heiðar, til
keppni í íslandsmótinu. Þriðji
flokkur keppti í Grindavík, í
nýja íþróttahúsinu þar og fjórði
flokkur í íþróttahúsi Seljaskóla í
Reykjavík. Tveir piltar úr þriðja
flokki og jafnframt þjálfarar
fjórða flokks, þeir Karl Jónsson
og Kristinn Baldvinsson létu
blaðinu í té frásögn af þessari
keppni, en þess má geta að auk
þess að vera góðir körfubolta-
menn eru þeir félagar frábærir
tónlistarmenn og eru báðir
meðlimir í „súpergrúbbunni”
Metan, Kalli lemur húðirnar og
Kiddi gælir við takka hljóm-
borðsins. En hér kemur frá-
sögnin.
3. flokkur c-riðill.
Fram - Tindastóll 58-60 (25-
25)
Þessi leikur er sé lélegasti hjá
þriðja flokki í vetur, vörnin var
galopin og sóknin bitlaus en
með fádæma baráttu og miklum
sigurvilja tókst að knýja fram
sigur í þessum leik.
Tindastóll - Reynir Sandg. 67-
37 (34-13)
Aldrei var vafi hver myndi
ganga með sigur af hólmi í
þessari viðureign. Tindastóls-
menn sýndu mikla yfirburði á
öllum sviðum. Fallegustu körfuna
skoraði Halli Freyju er hann tók
boltann af körfu Tindastóls
nljóp með fimm Reynismenn á
bakinu að miðlínu, tók þá
ægilegt lay-up og „tróð”
boltanum fagmannlega ofaní
körfu Reynismanna, sem gátu
engu við spornað, því flestir
náðu þeir honum ekki lengra en
að mitti. Eitthvað fór Birgir
Valla í taugarnar á einum
Reynismanna því Sandgerðingurinn
braut oft mjög illa á Birgi sem
var orðin mjög þreyttur á þessu
og gekk þess vegna að honum og
sagði byrstur: „Hvað vantar
eiginlega marga kafla í þig?”
Fékk þetta svo mikið á
Reynismanninn að hann hætti
öllum brotum á Bigga.
Tindastóll - UMFG 76-53 (34-
22)
Leikur þessi var úrslitaleikur
riðilsins. Leikurinn varíjárnum
alveg fram á tólftu mínútu,
þegar okkar menn tóku mikinn
fjörkipp og náðu átta stiga
forskoti og juku í tólf áður en
blásið var til leikhlés. Síðari
hálfleikur hófst með miklum
krafti og höfðu Tindastólsmenn
alltaf öruggt forskotogjuku það
jafnt og þétt til leiksloka.
Maður leiksins var án efa
Birgir Valgarðsson, sem tók
besta og stærsta mann Grind-
víkinga úr umferð, skoraði 16
stig og hirti fjöldan allan af
fráköstum og bjargaði varnar-
leikur hans liðinu á erfiðum
stundum. Allir aðrir leikmenn
áttu jafnan stórleik. Með
þessum sigri endurheimtu strákamir
sæti í b-riðli íslandsmótsins.
Flest stig í leikjunum skoruðu:
Haraldur Leifsson 60, Sverrir
Sverrisson 51, Karl Jónsson 34,
og aðrir minna. Þjálfari liðsins
er Eiríkur Sverrisson og stóð
hann sig vonum framar.
4. flokkur b-riðill.
Tindastóll - Þór Ak. 47-60 (22-
26)
Jafnt var í þessum leik framan
af, en á tíundu mínútu tóku
Þórsarar mikinn fjörkipp og
náðu átta stiga forskoti, en
strákarnir gáfust ekki upp og
minnkuðu muninn i fjögur stig
fyrir leikhlé. Þórsaramir byrjuðu
seinni hálfleikinn af miklum
krafti og á áttundu mínútu var
staðan 47-33, okkar menn
löguðu stöðuna í 47-41, en náðu
ekki að fylgja þessu eftir og
Þórsarar gengu á lagið og
sigruðu örugglega. Bestu menn
Tindastóls voru: Héðinn Sig.
sem skoraði 25 stig, Örn Sölvi
með 8, Guðbjartur 5 og Atli
Freyr sem stóð sig mjög vel í
vörninni skoraði 2 stig.
Tindastóll - UMFN 37-85 (18-
39)
Enginn vafi var á hver myndi
sigra í þessum leik. Njarð-
víkingarnir undir stjórn Vals
Ingimundarsonar, eru með einn
besta fjórða flokk á landinu og
verða örugglega í baráttunni um
íslandsmeistaratitilinn í vetur.
Stigahæstu menn Tindastóls
voru Hjalti Arna með 11 og
Héðinn með 7, þeir voru
jafnframt bestu menn liðsins.
Tindastóll - ÍA 56-54 (15-21)
Okkar menn byrjuðu vel og
komust í 11-2 eftir sjö mínútur
af leik, en þá fór að síga á
ógæfuhliðina og Skagamenn
sigu á og náðu sex stiga forskoti
fyrir leikhlé. A sjöttu mínútu
síðari hálfleiks var staðan 25-25
og skiptust liðin á forustu. Á
síðustu mínútu var staðan 45-44,
fyrir Tindastól en þá er brotið á
Héðni, fékk hann tvö vítaskot
og hitti úr öðru, þannig að
staðan var jöfn eftir venjulegan
leiktíma. Æsispennandi fram-
lengingu lauk svo með sigri
Króksara 56-54 og var það fyrst
og fremst frábær vörn sem skóp
þann sigur. Stigahæstir voru
Héðinn með 23 og Hjalti með 18
stig.
KJ/KB