Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1995, Side 12
fa vegahandbé
komin -
Nýja
er
kr.
Verð
2
980
m
jffl ■
BOKH
ABAN
L
simi
RITSTJÓRN OGAUGLÝSINGAR:
SÍMI 456 4011 • FAX 456 5225
ff
Her líkar mér vel
11
- segir kjarnakerlingin Bergþora
Gustafsdottir, sem opnað hefur
gistiheimili í verbúð í IMorðurfirði
á Ströndum
Kjarnakerlingin Bergþóra Gústafsdóttir við eina af myndum
sínum í verbúðinni í Norðurfirði.
Bergþóra Gústafsdóttir opn-
aði á föstudaginn í síðustu viku
gistiheirriili og matsölu í ver-
búð Kaupfélags Strandamanna
í Norðurfirði í Arneshreppi á
Ströndum. Þá komu fyrstu
gestirnir til dvalar. Vestfirska
var á staðnum og tók Bergþóru
tali.
Náði mér í karl hérna
„Eg vann tvö sumur á Hótel
Djúpuvík og síðan hef ég verið
hér í eitt ár", sagði Bergþóra.
Eg kenndi handmennt og
myndlist við skólann á Finn-
bogastöðum og eldaði mat í
mötuneytinu þar á móti annari
konu. Eg kann mjög vel við
mig hér í Arneshreppi og náði
mér í karl hérna, hann Guð-
mund Jónsson í Stóru-Avík.
Hann er búsettur á Akranesi á
veturna og kemur hingað til
þess að róa á færi á sumrin.
Hann var áður bóndi í Stóru-
Avík í Trékyllisvík. Hann er á
sjó í dag. Það er búið að vera
sæmilegt fiskirí og við höfum
alltaf nóg af nýjum fiski. Það er
fiskurinn sem ég ætla að byggja
á. Ég býst við að við förum
suður í haust."
Fiskihlaðborð og fleira
- Hvernig datt þér í hug að
opna gistiheimili í verbúðinni?
„Ég hef mjög gaman að því
að stússa í þessum málum. Ég
hef mjög gaman af að elda mat.
Það vantar svefnpokapláss og
meiri þjónustu við ferðamenn
hér í hreppnum. Svo er þetta
bara góð samkeppni við Hótel
Djúpuvík og gistinguna í skól-
anum á Finnbogastöðum. Ég
var að opna núna og ég býð
uppá ódýra gistingu í uppbún-
um rúmum og svefnpokagist-
ingu með morgunmat. Ég verð
einnig með fiskihlaðborð og
ætla fyrst og fremst að hugsa
um mína gesti sem verða hér.
Ég er líka tilbúin til að vera með
veitingar fyrir utan það. Karl-
arnir sem eru að róa á skak
hérna verða hjá mér í fæði á
kvöldin. Þeir hafa verið í fæði
hérna hjá mér eftir að skólanum
lauk í vor.“
Óskar frá Dröngum siglir
með ferðafólk
- Hvað hafa ferðamenn að
sækja hingað norður á hala
veraldar?
„Hér er stutt í skemmtilegar
gönguleiðir. Hér er hægt að
byrja eða enda gönguferðir
norður á Homstrandir, norður í
óbyggðirnar á nyrstu ströndum
norðan Djúps. Oskar Kristins-
son frá Dröngum er tilbúinn til
að ferja fólk, sjö manns í einu,
í dagsferð norður að Dröngum.
I tengslum við það myndum við
gjarnan bjóða fiskihlaðborðið,
annað hvort áður en farið er
norður eða þegar komið er til
baka. Fólkið myndi ganga um
Drangalandið og skoða stór-
brotnustu náttúrusmíð á land-
inu, Drangaskörðin, sem
Drangajökull er nefndur eftir.
Það er einnig örstuttur gangur
í sundlaugina í Krossnesi. Þar
getur fólk velt sér í lauginni
allan sólarhringinn og yfir
laugarbarminn blasir ólgandi
Atlantshafið við og stundum
má sjá selina velta sér í flæð-
armálinu nokkra metra frá
lauginni. Einnig skapast
stemning við að liggja í laug-
inni og horfa á miðnætursólina
kyssa hafflötinn. Mér finnst
þetta alveg dýrðlegur staður.“
Los Paraguayos á hjara
veraldar...
- Þú ert nú frægust fyrir það
að hafa fengið Los Paraguayos
til að spila á balli í Árneshreppi
fyrir tveimur árunr...
„Við vorum með fiskihlað-
borð í Hótel Djúpuvík og Los
Paraguayos spiluðu þar. Það
komu allir sem vettlingi gátu
valdið í hreppnum. Þeir gerðu
mikla lukku og höfðu mikið
gaman af sjálfir. Ég kynntist
þeim á Kanaríeyjum fyrir
mörgum árum. Þeir höfðu
reyndar komið áður til íslands.
Ég fór að spjalla við þá fyrir
tilviljun. Þetta leiddi til þess að
þeir spiluðu á Hótel Örk í
Hveragerði í eina fjóra-fimm
mánuði. Síðan fékk ég þá til að
koma á Strandir og þeir komu
og voru hér í fjóra daga og
spiluðu. Það var alveg stór-
kostlegt.“
- Er einhver von til þess að
Los Paraguayos spili í verbúð-
inni á Norðurfirði?
„Ég þori nú ekki að lofa því
en óneitanlega væri gaman ef
þeir kæmu.“
Myndlist úr náttúrunni
- Þú ert listakona. Hefurðu
lengi fengist við listir?
„Ég föndra mikið. Ég er
kannski ekki nein listakona.
Myndirnar hérna á veggjunum
eru eftir mig og eru allar til
sölu. Ég sker út bókbands-
pappír og spreyja á hann
munstri og svo tíni ég allt til
sem ég finn, blóm, strá, hrein-
dýramosa, jafnvel þara, og raða
þessum saman og set undir gler
í ramma", sagði hin eldhressa
Bergþóra Gústafsdóttir, hús-
freyja í Stóru- Ávík á Strönd-
um, í samtali við blaðið.
- GHj.
-fannst í
Bolungarvík
Styttan sem stolið var
og Jóhanna ÍS-3 í
Neðstakaupstað.
Aðfaranótt laugardags-
ins var stolið brjóstmynd í
Neðstakaupstað á ísafirði,
þar sem hún hafði verið til
viðgerðar. Styttan er eftir
Martinus Simson og heim-
kynni hennarerinni í Skógi
í Tungudal. Hún fannst í
Bolungarvík daginn eftir.
Svo vildi tíl, að stuttu
áður en styttunni var stolið
átti Ijósmyndari Vestfirska
leið niður í Neðsta og tók
hann þá mynd af henni þar
sem hún virti fyrir sér ver-
öldina rétt við kinnunginn
á merkisbátnum Jóhönnu
ÍS-3 (síðast Þristur ÍS-3).
Bát þennan smíðaði Falur
Jakobsson, hinn annálaði
bátasmiður, á sínum tíma
fyrir Ágúst Einarsson frá
Dynjanda í Jökulfjörðum.
POKI
Tek að mér að taka Ijós-
myndir af hlutum áður en
þeim er stolið svo að það
sé auðveldara að hafa
uppi á þeim.
Stússað við morgunverðarborðið.
Guðmundur Jónsson, sambýlingur Bergþóru, leysir landfestar og heldur út í skakróður. Hann
hefur fengið sæmilegan afla undanfarið.