Feykir


Feykir - 14.01.1987, Blaðsíða 1

Feykir - 14.01.1987, Blaðsíða 1
1/1987 ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA Sauðárkrókur: Hækkun fasteignagjalda Sauðárkrókur: Smábátadokk í sumar í lokaumræðu um fjárlaga- frumvarp Alþingis skömmu fyrir jól var m.a. samþykkt að veita 5 m. kr. til smábátadokkar á Sauðárkróki. Af þessu tilefni snéri Feykir sér til Harðar Ingimarssonar bæjarfulltrúa og formanns hafnarnefndar og innti hann eftir því hvernig staðið yrði að þessum fram- kvæmdum. I máli hans kom m.a. fram að í upphaflegu fjárlagafrumvarpi hefði verið gert ráð fyrir mjög litlum fjárveitingum til hafnar- mála á Norðurlandi vestra, en í umfjöllun þingsins var þessi liður hækkaður nokkuð, og sagði Hörður að vissulega bæri að fagna því. „Þessar 5 m kr. til smábátahafnar á Sauðárkróki ásamt framlagi bæjarins, sem nemur 25% af framlagi ríkisins gera okkur kleift að hefjast handa. Það hefur nú verið samþykkt í bæjarstjórn að fara strax út í þessa framkvæmd og stefna að því að ljúka fyrsta áfanganum í sumar. Þessi fyrsti áfangi er fólginn í því að skapa aðstöðu fyrir um 40 smábáta. Er ætlunin að byggja garð til austurs út frá Hesteyri og síðan til norðvesturs og kemur hann Hólanes hf. á Skagaströnd greiddi starfsfólki sínu launa- uppbót í desember. Var hún 30 þúsund kr. á alla sem voru á launaskrá allt árið í fyrra, en hlutfallslega minna á þá sem voru á launaskrá hluta ársins. Að sögn Lárusar Ægis Guðmundssonar framkvæmda- stjóra er þetta fjórða árið í röð, nokkru sunnan við syðra planið. í þessum fyrsta áfanga verður syðra planið notað sem norður- garður dokkarinnar þar til annar áfangi hefur verið unninn, en sá áfangi gengur út á það að lengja garðinn áfram til norð- vesturs og síðan vesturs og loka dokkinni nema smárennu við landið”. Hörður sagði ennfremur að þessir garðar kæmu til með að brjóta niður alla úthafsöldu í dokkinni auk þess sem þar yrði hvorki kvika ná vindbára. Þá kom fram hjá Herði að þessa dagana væri verið að vinna að útboði á grjótflutningum í garðinn, en nauðsynlegt er að vinna það verk meðan frost er enn í jörðu vegna ástands veganna, en grjótið verður tekið úti á Skaga. Er stefnt að því að þessum flutningi verði lokið í lok febrúar. „Að lokum vil ég svo taka það fram að ég er auðvitað mjög ánægður með að tekist hafi að útvega fjármagn og að nú skuli vera ákveðið að fara út í þessa framkvæmd. Þetta tókst einkum vegna góðrar samvinnu við þingmenn kjördæmisins og auðvitað ber að þakka fyrir það”. sem starfsfólk Hólaness hf. fær launaupppbót. Upphæðin er þó hærri nú en áður, t.d, var hún 12 þúsund kr. fyrir árið 1985. Nú er langt komið frágangi á viðbyggingunni við frystihúsið. Hluti af byggingunni hefur þegar verið tekinn í notkun og öll verður hún tekin í notkun á næstu mánuðum. (mó) Þá kom það einnig fram hjá Herði að nú standa fyrir dyrum straummælin|ar og gerð líkans af höfninni. I framhaldi af því mun síðan verða stefnt að því að betrumbæta ytri hafnar- mannvirkin fyrir togarana og stóru skipin, en eins og kunnugt er, liggja þau sífellt undir skemmdum, ef nokkuð blæs. „Okkar vonir og óskir eru þær að hægt verði að hefjast handa við meiriháttar framkvæmdir við ytri hafnarmannvirkin þegar á árinu 1988” sagði Hörður að lokum í spjallinu við Feyki. Allt bendir til þess að afkoma útgerðarfélagsins Skagstrendings hf. á Skagaströnd hafi verið mjög góð á síðasta ári og líklega enn betri en árið á undan, sem þó var mjög gott ár hjá fyrirtækinu. Engar upplýsingar hafa þó enn fengist um þetta hjá forsvarsmönnum fyrirtækisins, en eftirfarandi afla- og verðmæta- tölur sem þar fengust se&ja þó sína sögu. Togarinn Arnar var 279 daga á sjó á liðnu ári. Hann kom með 3241 tonn af fiski að landi og var brúttóverðmæti aflans 82 milljónir kr. Árið á undan varaflamagnið 3363 tonn en brúttóverðmætið 68 milljónir kr. Á síðasta ári seldi togarinn einu sinni í Hull og eitthvað af aflanum var flutt út í gámum. Frystitogarinn Örvar var 287 daga á sjó og aflaði hann 4585 tonn. Brúttóverðmæti aflans var 233,6 milljónir kr. Árið á undan Fjölmiðlar hafa að undan- förnu fært okkur fréttir um miklar hækkanir á ýmsum gjöldum og þjónustu bæjar- og sveitarfélaga. í þessu tilefni snéri blaða- maður Feykis sér til Snorra Björns Sigurðssonar bæjarstjóra á Sauðárkróki og innti hann eftir því hvort það sama ætti við um Sauðárkróksbæ. I máli hans kom fram að bæjarstjórn hefur nú samþykkt að hækka álagningar- prósentu fasteignaskatts úr 1,18 í 1,25% af atvinnuhúsnæði og 0,59 í 0,625% af íbúðarhúsnæði. Ástæðuna fyrir þessari hækkun sagði Snorri Björn vera m.a. þá að með því fengist hærra framlag úr Jöfnunarsjóði sveitar- félaga. „Þettaframlagvarífyrra um 2,4 millj. kr. en hefði orðið um 3,0 millj. kr. hefðum við nýtt heimildina til fulls. Þetta byggist á því að svokallað aukaframlag úr Jöfnunarsjóði fer eftir meðalskatttekjum viðkomandi sveitarfélags þ.á.m. fasteigan- sköttum miðað við landsmeðal- tal og sé það lægra, er sveitarfélögunum bætt það upp með framlagi úr Jöfnunarsjóði. Það er þó ekki gert til fulls því það hefur verið um 70% af því sem upp á vantaði. Við þessa útreikninga er hins vegar ávallt miðað við að álagningarheimildin sé nýtt að fullu og kemur þannig út að framlagið verður lægra ef álagningin er ekki nýtt til hins ítrasta” sagði Snorri Björn. Þá vildi bæjarstjóri minna á að fasteignaskatturinn væri aðeins hluti af heildar fasteigna- gjöldunum, sem hækkuðu við þessa breyttu álagningaprósentu um 3,7% frá fyrra ári og yrðu var aflinn 3940 tonn og verðmætið 156 millj. kr. Á Örvari eru 24 menn í hverjum túr en 13 á Arnari. I desember 1985 bauð útgerðar- félagið sjómönnum sínum í vikuferð til London ásamt mökum. Þótti sú ferð takast mjög vel. í sumar bauð síðan fyrirtækið í aðra og ekki síðri ferð. Var það fimm daga ferð yfir hálendið og um Suðurland. Blaðstjórn Feykis samþykkti á fundi sínum þann 8. jan. sl. að ráða Ara Jóhann Sigurðsson, ritstjóra og ábyrgðarmann Feykis frá og með næstu mánaðar- mótum að telja. Ari Jóhann er 24 ára frá Holtsmúla í Skagafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrauta- kr., sem þau hefðu ella orðið miðað við óbreytta álagningu, þar af væri fasteignaskatturinn 17,6 m. kr. Um aðrar hækkanir sagði Snorri Björn að hitaveitan hækkaði nú um 14% og fylgdi það almennri verðlagshækkun í landinu og rafveitan um 10%, sem væri að mestu tilkomið vegna hækkunar á töxtum Landsvirkjunar. „Aðrar hækkanir liggja ekki fyrir” sagði bæjar- stjóri að lokum. (jgj) Hvammstangi: Rækjukvóti búínn Rækjukvótinn á Hvamms- tanga er búinn og skelfisk- bátarnir stopp vegna verkfalls yfirmanna. Vinnsla hjá Meleyri hf. er því í lágmarki en þó hefur þar ekki enn komið til uppsagna fólks því eitthvað er til af frosinni rækju og reynt að halda uppi 8 stunda vinnu. Óvíst er hve lengi það verkefni endist. Að sögn Magnúsar Sigurðs- sonar hjá Meleyri hf. hefjast skelfiskveiðar strax og verkfallið leysist. Þá mun Sigurður Pálmason einnig stunda djúp- rækjuveiðar. Ætti því að verða allnokkur vinna hjá fyrirtækinu í vetur, þó hún verði langt um minni en í fyrra. Þá var vinnsla í báðum húsum félagsins, en aðeins verður unnið í öðru húsinu í vetur. Bjóst Magnús við að þetta þýddi 15-20 færri starfsmenn en í fyrra. Samkvæmt lauslegum athug- unum kemur rekstur Meleyrar hf. nokkuð vel út á síðasta ári, eftir tvö erfið ár þar á undan. Gist var á hótelum og þar snæddur kvöldverður. Alls voru um 70 þátttakendur í ferðinni. Á meðan á þessu ferðalagi stóð rak Skagstrendingur barnaheimili fyrir börn sjómannanna þannig að enginn þyrfti að vera heima vegna barnanna. Voru þau í góðu yfirlæti norður í Varma- hlíð í Skagafirði í umsjá Karls Lúðvíkssonar kennara og gamal- reynds sumarbúðarstjóra. (mó) skólanum á Sauðárkróki vorið 1985, en hefur síðan unnið ýmiss störf, þ.á m. blaðamennsku. Fram að þeim tíma mun Haukur Hafstað aðstoða við útgáfu blaðsins, eins og hann hefur gert frá því í byrjun desember. (Jgj) Hólanes hf.: Launauppbót Ggj) um 27,5 m. kr. í ár í staö 26,5 m Skagaströnd: Öflug útgerð Skagstrendings Ritstjóraskipti

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.