Feykir - 14.01.1987, Qupperneq 3
1/1987 FEYKER 3
Vinarkveðja:
Sigurður Ölvir Bragason
F. 7. janúar 1965
D. 25. desember 1986
Kær vinur okkar, Sigurður
Ölvir Bragason, erlátinn. Hann
lést af slysförum á jólanótt
aðeins 22 ára gamall. Fréttin
kom á okkur vini hans sem
reiðarslag og við fundum fyrir
tómleika og vanmáttarkennd.
Osjálfrátt, þegar versti sársauk-
inn var horfinn, leituðu hugir
okkar á vit endurminninganna
um samverustundir okkar og
þessa glaðbeitta drengs sem
skrýddi svarthvíta tilveruna
litum fyrir okkur, og þegar hann
kom heim úr löngum siglingum
þá hópuðumst við í kringum
hann og spurðum hann spjör-
unum úr. Við heyrðum hann
segja frá ævintýralegum ferðum
sínum um öll heimsins höf. Frá
skrautlegu mannlífi og framandi,
allt frá ströndum Miðjarðar-
hafsins til stranda Sovétríkjanna
við íshafið. Og virðingin fyrir
þessum félaga okkar og jafnaldra
sem bjó yfir slíkum ferðum og
reynslu var óblandin. Minningin
um Ölla býr traust í hugum
okkar, sem væri hann meðal
okkar í dag. Hann var alltaf
jákvæður og vingjamlegur. Til
hans leituðum við með hugðar-
efni okkar og hann með sín.
Þannig vorum við eins og hópur
bræðra sem bar traust hver til
annars. Og þegar einhver okkar
hitti hann fjarri heimabyggð
spurði Ölli ávallt um hagi vina
sinna, sem sýnir hvern hug hann
bar heim. Við heima reyndum
að fylgjast með ferðum hans,
hvort heldur var á sjó eða landi
og vonuðum að senn kæmi hann
heim. Af Ölla stafaði einhver
ólýsanlegur viljastyrkur sem
heillaði marga, ekki síst þá sem
urðu því láni aðnjótandi að
kynnast honum náið. Hann var.
greindur og samviskusamur og
leysti þau verkefni afburðavel
sem fyrir hann voru lögð. Strax í
gagnfræðaskóla var hann búinn
að ákveða hvað hann ætlaði að
gera í framtíðinni. Við munum
glöggt eftir honum þar sem
hann sat löngum á lestrarsal
bókasafnsins og gleypti í sig
t
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra mörgu fjær
og nær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför sonar okkar, bróðurs og barnabarns
Sigurðar Ölvis Bragasonar
Bragi Þ. Sigurðsson
Styrmir Bragason
Brynja Bragadóttir
Margrét Bragadóttir
Sigurður Jónsson
Sigurlaug Sveinsdóttir
Sveinn Sölvason
Ómar Imsland
Karl Sveinsson
Nanna Þorsteinsdóttir
Sendi bestu nýársóskir til félaga í Ásaklúbbi
og Lionsfélaga svo og allra þeirra sem veitt hafa
mér stuðning á liðnu ári
Kærar kveðjur
Ragnar Berg
Bergstöðum
Skagafirði
Alúðarþakkir færi ég öllum þeim sem sendu
mér skeyti, góðar kveðjur og höfðinglegar
gjafir á sjötíu ára afmæli mínu 29. desember sl.
Heiður og hamingja fylgi ykkur öllum
Guttormur Óskarsson
Alúðarþakkir til fjölskyldu minnar og allra þeirra
er glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og
heillaóskum á 90 ára afmæli mínu
þann 27. desember sl.
Guð blessi ykkur öll
Auðbjörg Eiríksdóttir
Skagfirðingabraut 1
Sauðárkróki
fróðleik um skip og sjómennsku.
Hann var alltaf skrefi framar
jafnöldrum sínum, hvort heldur
í leik eða starfi.
Nú hefur hann kvatt okkur
félagana undir Nöfunum, en
minninguna um þennan góða
dreng geymum við með okkur
alla ævi.
Nú aftur er höggvið í árganginn skarð
þá Olvir er horfinn á braui.
Þá sigurins hátíð að sorgarstund varð
og sælasta gleðin að þraut.
Við lifðum hér jólin við Ijósanna skart
og /eið heima í stofum svo vel.
Þig umlukti myrkrið um miðnœtti svart
þú máttvana barðist við hel.
Nú bera þig englar á björtustu braut
þá braut sem við höldum víst öll.
Þá œvinni lýkur og lokið er þraut
að lausnarans bljúgustu höll.
En minningin lýsir, þá loftið ermyrkt
hún létta mun syrgjendum stund.
Hún tregafúll hjörru, með trúnnifœr styrkt
og traustið um ástvinafund.
Við hittumst aftur, þá eigum við trú
og okkur það létta mun harm.
Viðfelum þig drotmi. Hann fóstrar þig nú
við föðursins blíðasta arm.
Foreldrum hans, systkinum
og ættmönnum auðsýnum við
okkar dýpstu samúð.
Atli, Hemmi, Nonni og Palli
Sauðárkrókur:
Róleg áramót
„Við hjá lögreglunni höfðum
mjög róleg og góð jól” sagði
Björn Mikaelsson yfirlögreglu-
þjónn á Sauðárkróki, þegar
Feykir innti hann frétta af
stórhátíðunum. „Það voru bókstaf-
lega engin útköll um helgi-
dagana, engin óhöpp í umferðinni
eða ólæti sem lögreglan þurfti að
skipta sér af ’ bætti Björn við.
A gamlárskvöld voru þrír
stórdansleikir, þar sem lögreglan
hafði nokkurn viðbúnað, en
þrátt fyrir fjölmenni fór allt
friðsamlega fram. „Það tilheyrir
væntanlega fortíðinni að hér sé
stofnað til vandræða um jól og
áramót” sagði Björn að lokum í
spjalli við Feyki.
(hh)
+
Innilegar þakkir sendum við ölium þeim sem auðsýndu
mér og fjölskyldu minni samúð og vinarhug
vegna andláts og jarðarfarar stjúpföður míns
Magnúsar Tómassonar
Sólvangi, Hofsósi
Guð blessi ykkur öll
Haukur Ingólfsson
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga
sendir hinum fjölmörgu viðskiptavinum
sínum bestu óskir um farsælt nýtt árog
þakkar viðskiptin á því liðna
Á síðasta ári voru raunvextir
Samvinnubókarinnar 6,8%
umfram verðtryggingu. Ársávöxtun hennar
varð alls
21,54%!
Samvinnubókin
Hagstæð ávöxtun í heimabyggð
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga