Feykir - 14.01.1987, Page 8
Öll almenn
prent- og
Ijósrítunar-
þjónusta
Verið velkomin
PRENTÞJÓNUSTA
SÍMI5711
AÐALGÖTU 2
SAUÐÁRKRÓKI
Sauðárkrókur:
Aldraðir í kafíiboð
Á þrettándanum, þann 6. jan.
sl. bauð bæjarstjórn Sauðár-
króks öldruðum Sauðárkróks-
búum til kaffisamsætis að Hótel
Mælifelli. Undir borðum rabbaði
Halldór Þ. Jónsson bæjarfógeti
við gesti um uppvaxtarár sín í
Skagafirði, Strengjasveit Tónlistar-
skólans lék tvö lög, þrír leikarar
úr Leikfélagi Sauðárkróks lásu
upp úr „Manni og konu” og
Lúðrasveit Tónlistarskólans lék.
Á eftir var stiginn dans.
Að sögn Matthíasar Viktors-
sonar félagsmálastjóra var mæting
mjög góð eða um 80 manns. Það
var Félagsmálaráð, sem undir-
bjó og skipulagði þessa skemmtun,
sem þótti takast mjög vel í alla
5,aði' Ugi)
Skagaströnd:
Verður rækja
flutt ínn?
Um áramót voru aðeins 60
tonn eftir af rækjukvóta Skaga-
strandarbáta. Stefnir því í það
að sá kvóti verði búinn í þessum
mánuði. Nokkur óvissa er um
það á þessari stundu hvað þá
tekur við hjá Rækjuvinnslunni á
Skagaströnd.
Að sögn Heimis J. Fjeldsteds
framkvæmdastjóra er verið að
reyna að fá aðkomubáta til þess
að selja þeim djúprækju. Einnig
sagði hann að það kæmi til
greina að kaupa óunna rækju frá
Grænlandi eða Rússlandi. Heimir
sagði að verð á þessari rækju
erlendis væri á niðurleið og því
gætu þessi kaup komið til
greina. Hjá Rækjuvinnslunni
vinna nú um 25 manns. (mó)
Blönduós:
Pappírspokaverksmiðja
Sauðárkrókur:
Stækkun Hótel Torgs
Þórir Hall eigandi Hótel
Torgs hefur nú sótt um heimild
til að mega stækka Hótel Torg á
Sauðárkróki, en í hinu nýja
skipulagi af gamla bænum, sem
nýlega var samþykkt í bæjar-
stjórn er m.a. gert ráð fyrir
stækkun hótelsins. í samtali við
Þóri kom m.a. fram að hann
hefur nú látið teikna viðbygg-
ingu, sem hann bjóst við að yrði
samþykkt þó hún væri ekki
alveg eins og sú sem sett er fram
á skipulaginu. Þórir sagði að við
það kæmi herbergjum til með að
fjölga úr sjö í 28-30 herbergi.
Það kom ennfremur fram hjá
Þóri að um næstu mánaðarmót
hyggst hann hætta rekstri
verslunarinnar; Aðalmarkaðurinn,
sem hann hefur rekið á jarðhæð
hússins síðan í haust. í staðinn
hyggst Þórir setja þar upp teríu-
matstað með sætum fyrir allt að
60 manns, og bjóst hann við að
hann yrði opnaður í febrúar eða
mars.
(j&í)
Ákveðið hefur verið að koma
á fót pappírspokaverksmiðju á
Blönduósi, og tekur hún
væntanlega til starfa með
vorinu. Vélabúnaður í verk-
smiðjuna er þegar kominn á
staðinn og samningar hafa verið
gerðir um að fyrirtækið kaupi
húseignir Hjólsins sf. við
Norðurlandsveg, en það er
rúmlega 800 m2 húsnæði. Þessi
verksmiðja mun veita 4-6
mönnum atvinnu auk þjónustu-
starfa og flutninga sem tengdir
eru framleiðslunni. Undirbúningur
að stofnun þessarar verksmiðju
hefur hlutafélagið Serkir hf. á
Blönduósi annast og eru
hluthafar fjórir.
Fram að þessu hafa allir
pappírspokar, sem notaðir eru
hér á landi verið fluttir inn, en í
þessari verksmiðju munu að
minnsta kosti fyrst um sinn
verða framleiddir pokar fyrir 25
til 50 kg vöru. (mó)
Skagastrond:
Atvinnuleysi
Verkfall yfirmanna
skipum hefur veruleg
á fiski-
áhrif á
Hvammstangi:
Drífa - vaxandi fyrirtæki
„Við gátum ekki annað
eftirspurn á innanlandsmarkaði
með nýja tískupeysu, sem við
settum á markað um mánaðar-
mótin október og nóvember”
sagði Bjöm Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri saumastofunnar
Drífu á Hvammstanga í samtali
við blaðamann. Björn sagði að
framleiddar hefðu verið meira en
helmingi fleiri peysur, en
upphaflega var gert ráð fyrir, en
þrátt fyrir það var eftirspurnin
enn meiri nú fyrir jólin.
Nú er búið að gera bækling
með fimm nýjum tískupeysum
frá Hvammstanga og er hver
þeirra fáanleg í þremur mismunandi
litum. Hafin er kynning á
þessari framleiðslu í samvinnu
við Álafoss í Þýskalandi,
Svíþjóð, Noregi og Bandaríkjunum
og sjálf er Drífa hf. farin að
kynna þessar peysur í Englandi.
Sagði Björn fyrstu viðbrögð
við þessum kynningum vera
mjög jákvæð og lofa góðu.
Þessar peysur eru kynntar og
verða seldar í almennum
tískubúðum. Þetta afbrigði af
framleiðslunni hugsa menn í
ullariðnaðinum til þess að auka
söluna og minnka sveiflurnar,
sem alltaf eru í hinni hefð-
bundnu framleiðslu ullarvara.
Aðspurður sagði Björn að nú
sýndist vera uppsveifla í ullar-
iðnaðinum í landinu en síðasta
ár var þeim iðnaði erfitt. í vetur
hefur verið ágætis sala og nú eru
t.d. svo miklar pantanir fyrir-
liggjandi hjá Drífu hf. að það er
jafnt og þriðjungurinn af allri
framleiðslu síðasta árs.
Nú eru um 25 heildagsstörf
hjá Drífu hf. á Hvammstanga.
Verið er að auglýsa eftir fólki og
er stefnt að því að þar verði um
30 störf með vorinu. Á síðasta
ári voru að meðaltali 20-22 störf
hjá fyrirtækinu, en þar sem
nokkuð af fólki vinnur aðeins
hluta úr deginum eru starfs-
menn allnokkru fleiri. Á síðasta
ári jókst framleiðslan um 50%
frá árinu 1985 og í ár er enn
áætlað að hún aukist um 50% frá
því í fyrra.
(mó)
atvinnulífið á Skagaströnd og
einnig nokkur á Hvammstanga
og á Blönduósi. Báðir togarar
Skagstrendinga liggja bundnir
við bryggju. Vinna liggur því
niðri í frystihúsinu Hólanesi.
Vegna yfirvofandi verkfalls var
starfsfólki þar sagt upp störfum
í byrjun desember og komu þær
uppsagnir til framkvæmda um
áramótin.
Þá hafa engir skelfiskbátar úr
þorpunum þremur getað róið
síðan verkfall skall á og liggur
skelfiskvinnsla því niðri. Ekki
hefur þó enn komiðtil uppsagna
starfsfólks á Blönduósi og
Hvammstanga vegna þessa.
Á Skagaströnd eru hins vegar
um 120 manns atvinnulausir
vegna verkfallsins. I verkfalli
eru aðeins yfirmenn á skipunum,
en fyrir þá er eitt félag yfir allt
landið. Undirmenn eru hins
vegar í sínum heimafélögum.
Verkalýðs- og sjómannafélög í
Húnaþingi hafa ekki boðað
verkfall.
(mó)
Feykir spyr
á Sauðárkróki
Strengdirðu einhver áramótaheit?
Daníel Sighvatsson:
„Já, ég ætla að taka meiri þátt í
heimilisstörfunum og er það all
nokkuð”.
Atli Hjartarson:
„Nei það gerði ég ekki og tel
slíkt lítils virði þar sem ég myndi
efalaust ekki standa við þau”.
Hafdís Skúladóttir:
„Nei, ég gerði það ekki að þessu
sinni frekar en áður”.
Örn Ólafsson:
„Nei mér datt ekki neitt í hug
sem betur mætti fara í mínu fari”.