Vestfirska fréttablaðið - 31.01.1996, Page 2
2
Miðvikudagur 31. janúar 1995
mmm L
1 FRÉTTABLAÐIÐ |
Hljó
lomoorg
Hrannargötu 2,
ísafirði, S456
3072
Isafjöröur i
Nýr sjóvarnargarður
við Fjarðarstrætið
- Á að koma í veg fyrlr stöðuga floðahættu
og amalega barabingi með tllheyrandi tlugnageri
Langþráður draumur íbúa
við Fjarðarstrætið á Isafirði er
loks að rætast þessa dagana.
Sjógangur og flugnaplága
heyra vonandi sögunni til.
Um áraraðir hafa þarabingir
sem hlaðist hafa upp í fjörunni
í kjölfar mikilla brimdaga verið
íbúum til mikils ama. Af rotn-
andi þaranum hefur stafað
mikill ódaunn og í honum hefur
iðulega kviknað mikið flugna-
líf. Svo rammt hefur kveðið að
flugnagerinu að stundum hafa
húsveggir við Fjarðarstrætið
verið svartir af flugu.
Sjógangur í vondum veðrum
hefur oft á tíðum valdið fbúum
skaða og var svo komið að
húseigendur voru farnir að
óttast um hús sín. Sem dæmi
má nefna að í óveðrinu í októ-
ber á síðasta ári brotnuðu stór-
sjóirnir á veggjum Oldunnar og
flæddi þar í kjallara. Þá gekk
sjór upp á þak þar sem Isprent
er til húsa og þótti mildi að
rúður á norðurhlið skyldu ekki
gefa sig.
Allt þetta heyrir trúlega sög-
unni til, því að í desember
hófust starfsmenn Vesturíss
handa við gerð mikils sjó-
varnargarðs sem nú er nær
fullgerður.
Ymsir hafa þó deilt á stað-
setningu grjótgarðsins og talið
skynsamlegra og lítinn kostn-
aðarauka af því að hafa garð-
inn nokkrum metrum utar í
fjörunni í takt við deiliskipulag
og framtíðaráætlanir kaup-
staðarins. Þar hefði til dæmis
mátt vinna land undir fjöl-
margar íbúðir á auðveldan og
fljótlegan hátt.
- HK.
Ófáar vinnustundir hafa farið í það á umliðnum árum að moka
þara í sjóinn við Fjarðarstrætið.
i sumarlok 1995 var lagður vísir að grjótvörn fyrir framan
Fjarðarstræti 14....
... og svona er nú umhorfs þar sem vinnuvélar á vegum
ísafjarðarkaupstaðar voru að krafsa í haust en starfsmenn
Vesturíss eru nú búnar að hlaða niður ótöldum rúmmetrum
af stórgrýti.
Körfuboltafélag ísafjarðar
vann góðan sigur á Reyni frá
Sandgerði í íþróttahúsinu á
Torfnesi á sunnudag. Loka-
tölur leiksins voru 91 stig Is-
firðinga gegn 60 stigum Reyn-
ismanna. Augljóst var að
Reynismenn áttu við ofurefli
að etja, þó aldrei gæfust þeir
upp.
KFI er nú í öðru sæti í 1.
deild með 22 stig eftir 13 leiki,
11 unnir leikir og 2 leikir tap-
aðir. Efsta liðið Snæfell er búið
að leika 14 leiki og hefur 24
stig. Snæfell hefur tapað 2
leikjum en unnið 12.
Líkurnar eru nú orðnar mjög
verulegar á að Isfirðingar
komist í úrslit og má mikið
vera ef það tekst ekki. Næsti
leikur Isfirðinga er um helgina
við Þór Þorlákshöfn og verður
leikurinn syðra. Um aðra helgi
á KFI heimaleik við Leikni frá
Reykjavík.
Bestu menn KFI á sunnudag
að öðrum ólöstuðum voru |
Gðður sigur KFÍ á Reyni
Þórður Jensson og Baldur Jón-
asson. Baldur átti hvorki fleiri
né flærri en 7 þriggja stiga
körfur og er að öllum líkindum
orðinn mesti þriggja stiga
skorari í íslenska körfubolt-
anum á þessari leiktíð.
- HK.
ísafjarðar-
kaupstaður
130 ára
- ekkert flaggað
hjá Stjórnsýsluhúsinu
Það vakti óneitanlega athygli margra bæjarbúa á ísafirði
síðastliðinn föstudag, 26. janúar, að enginn fáni skyldi dreg-
inn að húni við stjórnsýsluhúsið á Isafirði þrátt fyrir 130 ára
afmæli kaupstaðarins. Einum viðmælanda Vestfirska frétta-
blaðsins þótti þetta til lítils sóma fyrir forsvarsmenn bæjar-
félagsins og óvirðing við sögu staðarins.
Þess má þó geta að ekki fór þessi merki afmælisdagur fram
hjá öllum, því á Fjórðungssjúkrahúsinu var fáni dreginn upp
strax að morgni föstudagsins og útvarpið rakti í stuttu máli
söguna á bak við 130 ára samfelld kaupstaðarréttindi Isa-
fjarðar.
-HK.
Fáni var dreginn að húni á Fjórðungssjúkrahúsinu, þótt
hann bærðist að vísu lítið í logninu.