Feykir - 11.11.1987, Síða 2
2 FEYKIR 37/1987
ÆEYKIW
Óháð fréttablað
fyrir Norðurland vestra
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Ari Jóhann
Sigurðsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA:
Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkrókur ■ SfMI: 95-5757 ■ STJÓRN FEYKIS
HF.: Hilmir Jóhannesson, Sr. Hjálmar Jónsson, Jón F.
Hjartarson, Sigurður Ágústsson, Sæmundur Hermannsson
■ BLAÐAMENN: Björn Jóhann Björnsson sími 95-
5253, Haukur Hafstað sími 95-5959, Magnús Ólafsson
sími 95-4495, Þorgrímur Daníelsson simi 95-1018, örn
Þórarinsson sími 96-73254 ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 55
krónur hvert tölublað; í lausasölu 60 kr. ■ GRUNNVERÐ
AUGLÝSINGA: 200 krónur hver dálksentimetri
■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■ SETNING, UMBROT
OG PRENTUN: SÁST sf„ Sauðárkróki.
Stopp nú!
Það hefur varla farið fram hjá neinum sem það
hefur viljað sjá, sá mikli fjöldi aðkomufólks sem
gist hefur bæinn okkar Sauðárkrók að undanförnu
Má segja að bærinn hafi fyllst af æskufólki
víðsvegar að af landinu. Til dæmis var hér stór
hópur af ungmennum frá Keflavík um síðustu
helgi. Vissulega er það mjög ánægjulegt þegar
tekst að skapa tengsl á milli ungmenna víðsvegar
um land. Hinsvegar er ámælisvert hvað fylgir
þessum heimsóknum mikill drykkjuskapur. Má
segja að kastað hafi tólfunum í þeim efnum nú
síðustu helgar. Hefur svo langt gengið í þeim
efnum að ungmenni hafa ráfað slagandi eftir
götum bæjarins. Nokkuð hefur verið um að fólk
hafi ælt utaní hús við Skagfírðirigabraut og einnig
hafa bílar við götuna verið „fyrir” og orðið fyrir
skemmdum. Ekki má þó hengja bakara fyrir smið
og er þó ekki ætlunin að hengja neinn þó á þessi
mál sé minnst. En það er vissulega alvarlegt
þegar allt niður í 14 ára börn eru keyrð heim
af lögreglunni fyrir drykkju á almannafæri
Einnig er það vítavert kæruleysi hjá forráða-
mönnum vínveitingahúsa bæjarins þegar unglingar
allt niður í 16 ára fá þar afgreiðslu á víni. Hvar er
starfsmaður áfengisvarnaráðs bæjarins? Hver er
ábyrgð vínveitingahúsanna? Og hvar eru
foreldrarnir? Hvers vegna gera þeir ekkert í
málunum? Er þeim kannski alveg sama þótt
börnin þeirra liggi í drykkju og skemmdarverkum
um nætur? Þessum spurningum og mörgum fleiri
verður ekki fljótsvarað. En furðulegt er samt ,
hvað fólk virðist í rauninni kærulaust. Það þarf j
vissulega að gera stórátak til að koma þessum '
málum í eðlilegt horf, með sameiginlegri hjálp
lögreglu, heimila og skóla.
„Það er meira spennandi að leikstýra”
- Guðjón Ligi Sigurðsson leikstjóri í stuttu spjalli -
Eins og fram kemur á
öðrum stað í blaðinu þá
frumsýnir Leikfélag Sauðár-
króks Kardimommubæinn um
næstu helgi. í tilefni af því tók
Feykir leikstjórann Guðjón
Inga Sigurðsson tali og ræddi
við hann um verkið og hans
leiklistarferil.
Hingað er hann svo kominn í
þriðja sinn, að leikstýra
Kardimommubænum og bytjaði
blaðamaður á því að spyrja
Guðjón hvort væri betra, að
vera fastráðinn leikari hjá
Þjóðleikhúsinu, eða leikstýra
hér og þar um landið?
-Hvað á að sýna Kardi-
mommubæinn oft?
„Það fer að sjálfsögðu eftir
aðsókninni, en ég held að við
ættum að geta sýnt þetta ansi
oft. Þetta er góð hefð sem er
komin á, að sýna barnaleikrit
á haustin, þá kemur fólk frá
Hofsósi, Siglufirði og stöð-
unum hérna í kring. Það
verður ekki farið með þetta
verk á aðra staði, aðeins sýnt
hér. Eigum við ekki að segja
svona um 20 sýningar, miðað
við ibúafjölda, og að allir
mæti”.
-Hvernig hefur þér gengið
að moða úr þeim efnivið sem
þú hefur haft í höndunum?
„Eins og ég sagði erum við
öll leikarar i eðli okkar. Það
gengur mismunandi að ná
því fram hjá þeim en þetta
tekst. Það sem er erfiðast við
þessa sýningu er fjöldinn og
hópsenurnar ”,
-Einhver lokaorð, Guðjón?
„Það er náttúrulega sjálf-
sagt að allir sjái Kardi-
mommubæinn. A Króknum
er elsta leiklistarhefð á
landinu og unga fólkið og
aðkomnir verða að taka þátt í
að halda henni við”.
Látum þessi orð verða
lokaorð Guðjóns og þakkar
Feykir þessum geðþekka
leikstjóra fyrir spjallið, og
tekur undir með honum að
hvetja alla til að koma í
Bifröst og sjá Kardimommu-
bæinn, sjón er sögu ríkari.
Guðjón Ingi hefur áður
leikstýrt hjá Leikfélagi Sauðár-
króks, það var árið 1983
þegar hann leikstýrði leik-
ritunum „Gripið í tómt” og
„Deleríum bubonis”.
Guðjón útskrifaðist úr
leiklistarskóla Þjóðleikhússins
árið 1962. A árum þar í kring
lék hann nokkur hlutverk í
Þjóðleikhúsinu og Iðnó, var
formaður „Leikhúss asskunnar”
og Tjarnarleikhússins og í
stjórn leikfélagsins Grímu.
Var hann auk þess skóla-
stjóri leiklistarskóla Leik-
félags Kópavogs og Hafnar-
fjarðar.
Á árunum 1965 - 1970
sneri Guðjón sér að lands-
byggðinni og setti upp leikrit
víða um land. Alls hefur
Guðjón Ingi leikstýrt 35
leikritum. Arið 1970 réðst
Guðjón til Þjóðleikhússins
I og starfaði þar til 1982, fyrst
sem sýningarstjóri að aðal-
starfí, auk þess að leika, en
frá 1980 til hausts 1982 sem
skipulags- og framkvæmda-
stjóri Þjóðleikhússins. Eitt af
stærri hlutverkum Guðjóns
hjá Þjóðleikhúsinu má nefna
að hann lék Jónatan, einn af
ræningjunum í uppfærslu
Þjóðleikhússins á Kardi-
mommubænum árið 1973.
Frá 1982 hefur Guðjón
starfað á vegum Bandalags
íslenskra leikfélaga og leik-
stýrt hér og þar um landið.
„Það er meira spennandi
að leikstýra, en hitt er
náttúrulega öryggi. Það er
allt annar hlutur, að leika og
leikstýra, en að sjálfsögðu er
það góð reynsla fyrir leikara
að fá að leikstýra einhverju
verki. Það vilja allir láta sjá
sig upp á sviði, en það er
meira gaman að finna
leikarann sem býr í okkur
öllum”.
-Hvað er það sem gerir
Kardimommubæinn svona vin-
sælan?
„Umburðarlyndi í einföld-
ustu mynd. Með einlægri
vinsemd ná breyta öllu til
betri vegar, en allir hafa leyfi
til að vera svolítið öðru vísi
en aðrir, eða eins og
bæjarfógetinn Bastían segir:
„Engum sæmir aðra svíkja,
allan sóma stunda ber.
Annars geta menn bara lifað
og leikið sér”.
Þetta er draumurinn okkar
allra, þó hann rætist kannski
seint”.
-Hvernig hafa svo æfing-
arnar gengið?
„Æfingarnar hafa gengið
nokkuð vel. Leiklega séð
stöndum við vel. Það hefur
gengið á ýmsu, afföll á
leikurum og annað slíkt, en
þetta hefst”.
mita
LJ ÓSRITU N ARVÉLAR
FRÁBÆR GÆÐAVARA
Henta jafnt
smáum sem
stórum
fyrirtækjum
Vélar fyrir þá
sem gera kröfur
Viðhaldsþjónusta
á staðnum
snjaiiL sí
Skagfirfiingabraut 6b - Simi: 95-6676 - 550 Sauðárkrókur