Feykir


Feykir - 11.11.1987, Blaðsíða 6

Feykir - 11.11.1987, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 37/1987 16. Hagyrðingaþáttur Heilir og sælir lesendur j góðir. I síðasta þætti birti ég þrjár vísur sem ekki var getið höfunda að. Þar sem einn af lesendum þáttarins hefur nú haft samband við mig og staðfest eftir hvern ein af þessum vísum er, og ekki sé ! rétt með hana farið. Ætla ég að byrja þennan þátt með. því að birta umrædda vísu aftur. Höfundur hennar er Olína Jónasdóttir, og rétt er vísan þannig: Öruggt rennir út á mið unaðs kennir sálin. Hann er enn að álpast við ásta- og kvennamálin. Það kemur hér önnur vísa eftir Ólínu, en ekki veit ég hvort hún er ort um sama I mann. r t I Ast ei fipast enn sitt starf úr þér hripar gigtin. Og í svipan einni hvarf árans piparlyktin. Tímaritið Iðunn var vin- sælt lestrarefni hér áður fyrr, að minnsta kosti upp til sveita. Lestrarfélag Bólstaðar- hlíðarhrepps var kaupandi að ritinu og var það oft á ferli á milli bæja í hreppnum. Eitt sinn birtist í því þessi vísa, höfundur er Kjartan Sveins- son: Oft er mínum innri strák ofraun þar af sprottin. í mér tefla alltaf skák andskotinn og drottinn. t Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu. Helgu Sigriðar Sigurðardóttur Aðalgötu 13, Sauðárkróki Svavar Ellertsson Ellert Svavarsson Bergþóra Valgeirsdóttir Hallfrföur Svavarsdóttir Benedikt Friöbjörnsson Jóhanna Svavarsdóttir Guöjón Jónsson Guórún Svavarsdóttir Lilja Svavarsdóttir Geir Sigurösson Jónas Svavarsson Jóhanna Haraldsdóttir Svava Svavarsdóttir Hinrik Jóhannesson Barnabörn og barnabarnabörn. Eitt sinn er blaðið hafði verið á ferð um Blöndudalinn tóku menn eftir því að búið var að skrifa aðra vísu aftan við vísu Kjartans og var það álit þeirra sem til þekktu að hún myndi vera eftir Jón Jónsson bónda á Eyvindar- stöðum: Meira syndgar maðurinn minnkar kærleiks aflið. Eftir því sem andskotinn oftar vinnur taflið. Önnur vísa kemur hér eftir Jón og er hún ort um reiðhest Guðmundar Tryggvasonar, áður bónda í Finnstungu: Geðið undur ljúft og létt lítt þó grundu vægir. Hjá Guðmundi góðan sprett grípur stundum Ægir. Stefán Valgeirsson alþingis- maður er ekki frekar en margir aðrir sáttur við þær skattaálögur sem nú dynja á þjóðina. Eftir að hafa hlustað á þá krataráðherrana yrkir Stefán: Léttvæg ykkar reynast rökin réttlætið er horfið sjónum. Þeir sem hafa breiðust bökin bera minnst hjá þessum Jónum. Sigfús Steindórsson á Sauðárkróki hlustaði sér til hrellingar á fréttir af verð- hækkunum og kvað: Málningarvörur í miklu úrvali Kópal Flos gljástig 30 Kópal Glitra gljástig 10 Kópal Dyroton gljástig 4 öll málningaráhöld Afkoman er ekki fín alltaf gengið lækkar. Bensín, smjör og brennivín bagalega hækkar. Þegar deila sú sem nú hefur staðið um sölu Útvegs- bankans var í uppsiglingu orti Sigfús þessa vísu: Mörgum finnst nú voðinn vís víst það truflar þankann. Jón ætlar að selja SIS sj ávarút vegsbankann. Þeir sem starfa í pólitíkinni fá oft harða gagnrýni og oftast eru ansi skiptar skoðanir um það sem veriðer að framkvæma hverju sinni. Eitt sinn er mynduð hafði verið ríkisstjórn með þáttöku Framsóknarílokksins orti Páll Pétursson þessa vísu: Við förum á sjóinn þó farið sé lekt og framundan leiðinda starf. Svo gerum við allt sem er ómögulegt en ekkert af hinu sem þarf. Margir muna eílaust eftir þeirri umræðu sem varð síðastliðið sumar þegar sjávar- útvegsráðuneytið kærði nokkur fiskvinnslufyrirtæki fyrir ósam- ræmi í aflaskýrslum, og því afurðamagni sem frá þeim kæmi. Meðal þeirra var fyrirtæki það sem Skúli Alexandersson alþingismaður veitir forstöðu. Þegar Páll á Höllustöðum heyrði þessi tíðindi orti hann: Skúli er helviti hygginn og klár hann hausinn af þorskinum risti. Það ná ekki aðrir að nýta hann skár það er nærri því betra en hjá Kristi. Næst koma hér tvær vísur sem undirritaður hefur alltaf gaman af að rifja upp. Tilurð þeirra var á þá leið að boðaður var fundur í áfengis- vamamefrid Austur-Húnavams- sýslu. Þar áttu að mæta fulltrúar úr öllum hreppum sýslunnar, en þegar til átti að taka mætti enginn fulltrúi fyrir Ashrepp. Þá orti séra Hjálmar Jónsson nú prestur á Sauðárkróki: Hollur siður heldur dvín hefur nautnin völdin. Skyldu þeir breyta vatni í vín í Vatnsdalnum á kvöldin. Vísan barst vestur í Vatnsdalinn og var Ólafur Sigfússon í Forsæludal ekki í vandræðum með að svara presti: Ekki þarf að efa það um þær hetjur slyngar. í fótspor Krists þeir fylgjast að flestir Vatnsdælingar. Að loknum þessum gaman- yrðum þeirra félaga er komið að síðustu vísunni að þessu sinni. Er hún ættuð af Austurlandi og leynir sér ekki á hvaða árstíma hún er ort. Höfundur er Gísli Helgason í Skógargerði: Dagsins leynir ljósið sér langar reynast nætur. Það er mein að Eygló er alltof sein á fætur. Verið þið sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríkstöðum 541 Blönduósi sími 95-7154 Tindastóll tapaði með sæmd fyrir Njarðvfldngum íslandsmeistarar Njarðvíkur í körfubolta léku við 1. deildarlið Tindastóls sl. laugar- dag í Iþróttahúsi Sauðár- króks. í stuttu máli má segja að leikur þessi hafi verið leikur kattarins að músinni því Njarðvíkingar voru með yfirburðalið og verða ^reini- lega illsigranlegir í Úrvals- deildinni í vetur. Lið Tinda- stóls átti ekki mikla mögu- leika í leiknum, en þó brá oft fyrir góðu spili hjá strák- unum. Njarðvíkingar unnu leikinn með 120 stigum gegn 73 stigum Tindastóls. Fljótlega náðu Njarðvík- ingar góðri forystu í leiknum og voru leikmenn Tindastóls ráðvilltir í leik sínum. En að fá að spila gegn liði eins og UMFN er góð reynsla fyrir þetta unga lið Tindastóls og þyrftu þeir fleiri leiki sem þessa. Staðan í hálfleik var 52-27 og í síðari hálfleik jókst munurinn jafnt og þétt, þar til í lok leiksins var munurinn orðinn 47 stig, eða 120-73 eins og fyrr greinir. Leikmenn Tindastóls mega alls ekki vera óánægðir með úrslit leiksins því Njarðvík- ingar eru með eitt besta körfuboltalið landsins, og stigamunurinn því eðlilegur. Besti maður Tindastóls var Eyjólfur Sverrisson, auk þess sem Agúst Kárason var sterkur. Jón Már Guðmunds- son átti einnig ágætan leik. Að leik loknum var leikmönnum beggja liða boðið í kaffisamsæti í Safnaðarheimilinu, sem körfu- knattleiksdeild Tindastóls stóð fyrir.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.