Feykir - 03.02.1988, Blaðsíða 1
ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA
Tónlistarskólinn á
Sauðárkróki:
í nýtt húsnæði
Sauðárkróksbær hefur nú
fest kaup á húsnæði undir
Tónlistarskólannn. Um erað
ræða rúmlega 500 fermetra
að Borgarflöt 1. Það er
saumastofan Vaka sem seldi
bænum part af húseign sinni.
Eva Snæbjarnardóttir skóla-
stjóri Tónlistarskólans sagði
í samtali við Feyki vonast til
að hægt yrði að slíta
skólanum í nýja húsnæðinu í
vor, en það réðist af því
hvemig ganga myndi að
innrétta húsnæðið. Formleg
afhending var 1. feb. síðast
liðinn.
Þegar keppt var um Norður-
landameistaratitilinn í þætti
Ómars Ragnarssonar, Hvað
heldurðu? varð lið Hún-
vetninga að lúta í lægra
haldi fyrir Þingeyingum eftir
mjög harða og jafna keppni.
Úrslitin urðu 29 á móti 23
Þingeyingum í hag.
Að leikslokum má þó segja
þetta:
Húnvetninga hörku lið
hefur unnið Skagfirðinga,
en erfitt var að eiga við
eitilharða Þingeyinga.
Blönduós:
r
Utgerð Nökkva
gengur sæmilega
Hraðfrystihúsið á Hofsósi:
Erfiðleikar í rekstrí
„Ég er nokkuð ánægður
með útkomuna á útgerð
Nökkva HU 15” sagði Kári
Snorrason á Blönduósi í
samtali við blaðamann Feykis.
Lítið hefur verið um bilanir á
skipinu þetta fyrsta ár.
Skipið var þó í slipp í hálfan
mánuð þar sem það var
yfirfarið m.a. með tilliti til
þeirrar ábyrgðar, sem er á
skipi og tækjum.
Kári sagði að afli skipsins
væri heldur minni en áætlanir
hefðu gert ráð fyrir. Kemur
þar tvennt til. Ekki var
reiknað með tveimur tíu daga
stoppum sem sett voru á
skipið til þess að takmarka
sóknina í rækjustofninn. Þá
veiddist einnig minna af
rækju, sem fór í rýrari
flokkana og er unnin beint
um borð. Aflaverðmæti úr
sjó frá því að skipið hóf
veiðar í fyrravetur og til
áramóta var um 75 millj. kr.
Hlutafé í Nökkva hf. var í
upphafi ákveðið 30 millj. kr.
Af því er búið að greiða 25
millj. Þar af á Særún hf. 10
millj. kr. Blönduóshreppur 7
millj. kr. og íslenska útflutn-
ingsmiðstöðin 6 millj. kr.
Smærri hluthafar eiga siðan
afganginn. Nú á að bjóða
hluthöfum að kaupa þessar 5
millj. kr. til viðbótar, að þeim
frágengnum nýjum hluthöfum.
„Verið að skoða stöðuna”
Að sögn Kára er ekki ólíklegt
að á næsta aðalfundi verði
tekin ákvörðun um að auka
hlutafé enn frekar.
Um horfur á nýbyrjuðu ári
sagði Kári að ekki þýddi
annað en vera bjartsýnn.
Nýsett lög um stjórnun
fiskveiða virtust koma þokka-
lega út fyrir útgerð skipanna
Nökkva og Gissurar hvíta á
Blönduósi. Hins vegar væri
verðlag á rækjunni allt of lágt
og því væri þessi rekstur
erfiður. Erfiðast af öllu væri
þó að eiga við vextina og væri
fjármagnskostnaðurinn allt
að sliga.
Ólafur Friðriksson kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Skag-
firðinga hefur verið ráðinn
framkvæmdarstjóri Verslunar-
deildar Sambandsins, í stað
Hjalta Pálssonar sem lét af
störfum um áramótin. Ólafur
tekur formlega við starfinu 1.
mars næstkomandi.
„Það eru eiginlega þrjár
ástæður fyrir því að ég fer í
þetta starf” sagði Ólafur
þegar Feykir hafði samband
Eins og flestum er kunnugt
var öllu starfsfólki Hrað-
frystihússins á Hofsósi sagt
upp með mánaðar uppsagnar-
fresti. Blaðið hafði samband
við Ófeig Gestsson sveitar-
stjóra á Hofsósi en hann á
einnig sæti í stjórn HFH og
spurði um horfur í málinu.
„Það er að koma hingað
aðili frá Byggðastofnun til
þess að yfirfara gögn og
við hann. „í fyrsta lagi var
lagt að mér að taka þetta
starf að mér. Þarna eru mikil
verkefni framundan. I öðru
lagi er alveg ljóst að
kaupfélögin hafa haft áhuga
á því að koma sínum
mönnum inn í Sambandið og
í þriðja lagi er þetta öllu
stærra og umfangsmeira
verkefni en um leið ákaflega
sérhæft. Þetta er deild sem er
með veltu upp á 3 milljarða
skoða stöðuna. Það eru að
koma menn frá Framleiðni
sem er fyrirtæki á vegum
Sambandsins. Það er verið að
spá í nýtingu húsnæðisins
sem Hraðfrystihúsið yFirtók
þegar skelvinnslan datt út og
það er verið að taka saman
stöðu frystihússins um ára-
mót eins nákvæmlega eins og
unnt er og ég er sjálfur að
fara í viðræður nú í vikunni
meðan kaupfélagið er með
veltu upp á um 2 milljarða.
Ég mun samt halda áfram að
starfa fyrir Skagfirðinga en
um leið mun ég vinna fyrir
önnur kaupfélög í landinu.
Ég er á þeim aldri að geta
tekist á við erfið verkefni og í
þessu tilviki var þetta bara
spurning um að hrökkva eða
stökkva. En vissulega mun
ég sjá eftir Skagfirðingum”.
út af þessu máli þannig að
það er heilmikið að ske í
málinu”. Ófeigur sagði enn-
fremur að þau langtímalán
sem frystihúsið hefur tekið á
liðnum árum hefðu nánast
öll verið tekin til þess að auka
hlutafé frystihússins í Útgerðar-
félagi Skagfirðinga. Ennfremur
sagði Ófeigur að reksturinn
hafi verið á skammtímalánum
upp á síðkastið og þegar
rekstrargmndvöllur fiystingar-
innar væri brostinn eins og
staðan er í dag þá yrði að
eyða þessum skammtímalán-
um og breyta þeim yfir í
langtímalán.
Ófeigur sagði að taka ætti
mið af þeim langtímalánum
sem tekin hafa verið til
hlutafjáraukningar í ÚS
þegar reksturinn yrði skoðaður
og á þau yrði horft
sérstaklega. Eignarstaða hússins
væri mjög góð og bæri mikið
meira af langtímalánum en
nú væri. „Það gengur ekki að
reka þetta frystihús með því
að vera með reksturinn á
yfirdrætti á hlaupareikningi”
sagði Ófeigur að lokum.
Kaupfélag Skagfirðinga:
Ólafur að hætta