Feykir - 03.02.1988, Síða 5
4/1988 FEYKIR 5
þessu áfram næstu árin og
gerum þetta í góðri samvinnu
við ábúandann hér á Eiðs-
stöðum”, sagði Sveinn. Þá er
einnig ætlun okkar að snyrta
í kringum aðkomugöngin í
sumar. Nú er búið að aka út
öllu því efni, sem úr
göngunum kemur og því
tímabært að fara að ganga frá
svæðinu.
Innbyggt stöðvarhús
Gerð jarðgangna virkjunar-
innar er nú lokið og þau hafa
verið fóðruð að innan með
því að sprauta steypu á veggi
og loft eftir þörfum. A
leiðinni inn göngin sagði
Sveinn mér að síðar yrðu
aðkomugöngin lögð bundnu
en á síðari stigum fram-
kvæmdanna, enda þarf fyrst
að koma vélunum fyrir, en
þær ná upp í gegnum öll
gólfin.
Daginn sem ég var í
Blönduvirkjun var verið að
steypa undirstöður undir
lyftuhúsið. Þann dag voru 50
m3 steyptir en það er svipað
steypumagn og fer í þriðjung
af meðal einbýlishúsi. I
hugum virkjunarmanna var
þó þarna um smásteypu að
ræða enda hafa þeir komist
upp í að steypa 600
rúmmetra í einu en sú törn
stóð í tvo sólarhringa. Alls
fara um 30 þúsund m3 af
steypu í virkjunarframkvæmd-
irnar og þar verða notuð um
800 tonn af steypustyrktar-
járni.
„Það er þónokkur alkalí-
virkni í steypuefninu, sem við
notum og sækjum fram að
Sandá”, sagði Sveinn. Til
þess að vinna á móti því fór
fram viðamikið rannsóknar-
Afstöðumynd af jarðgöngum Blönduvirkjunar
. Fallgöng. Lóðrétta pípan er 230 m.
Stöðvarhús. 150 MW. 3 vélar.
í. Göng til þrýstijöfnunar fyrir frárennsli 240 m.
I. Aðkomugöng að stöðvarhúsi 810 m.
. Forskáli með loftræstibúnaði.
i. Kapla- og lyftugöng milli stöðvarhúss og stjórnhúss 230 m.
'. Frárennslisgöng 1700 m.
1. Frárennslisskurður, grafinn 1991, 1200 m.
'. Vegur að munna frárennslisgangna.
0. Stjórnhús og spennastöð.
1. Háspennulína, sem tengist út á dreifikerfi landsins.
7)
©
slitlagi, en að öðru leyti væru
þau komin í það horf, sem
þau verða í framtíðinni.
Menn voru að störfum við
byggingu stöðvarhússins. Búið
er að steypa undirstöður
undir vélarnar þrjár, sem
þarna eiga að koma. Stór
stútur er á veggnum móts við
hverja vél og þar mun vatnið
koma, en síðan er frárennsli
út úr veggnum hinu megin.
Stöðvarhúsið verður ekkert
smásmíði. Það er 66 m á
lengd og byggt á mörgum
hæðum. Heildarlofthæð er
um 30 m. Gólf millihæðanna
í vélasal verða ekki gerð fyrr
verkefni og í framhaldi af því
framleitt sérstakt sement til
þess að nota hér. Það heitir
Blöndusement.
Mikilvæg reynsla
„Það sem er nýtt og
sérstakt við þessa virkjun,
miðað við aðrar virkjanir hér
á landi eru þessi miklu
jarðgöng”, sagði Sveinn.
„Við gerð þeirra hafa hins
vegar ekki komið upp nein
óvænt vandamál”.
Tal okkar Sveins barst að
þeim hugmyndum sem eru
uppi um mikla jarðgangna-
Stálpípan í fallgöngin. Sveinn Þorgrímsson staðarverk-
fræðingur stendur inni í pipunni.
gerð í sambandi við vegagerð
hér á landi. Sveinn sagði að
víða hérlendis væri betra
berg til jarðgangnagerðar en
við Blöndu. Miðað við það og
miðað við reynsluna af gerð
jarðgangnanna við Blöndu
taldi hann að það ætti að vera
síst erfiðara að gera þessi
veggöng, en göngin við
Blöndu.
Góðir nágrannar
I samtalinu við Svein kom
fram að hann hefur nú verið
staðarverkfneðingur við Blöndu-
virkjun allt frá því að
Landsvirkjun yfirtók bygg-
ingu hennar fyrir 5 árum
síðan.
„Maður er séstaklega
þakklátur fyrir það hve öll
þessi vinna hefur gengið
áfallalaust”, sagði Sveinn.
Hér hafa aldrei orðið alvarleg
vinnuslys þó vissulega leynist
víða hættur á vinnusvæði sem
þessu.
Um samskiptin við íbúana
í nágrenninu sagði Sveinn.
„Þau hafa allan tímann verið
mjög góð. Vissulega voru hér
deilur um þessa virkjun áður
en bygging hennar hófst, en
þær deilur voru mér og því
starfi sem ég vinn hér
óviðkomandi og ég hef reynt
að eiga góð samskipti við
fólkið hér í sveitunum. Vona
ég að þau samskipti hafi
verið góð á báða bóga”.
Lokaorð
Blönduvirkjun verður tekin
í notkun árið 1991. Eins og
áður hefur komið fram í
þessum pistli verða undir-
stöðurnar undir stíflurnar
gerðar í sumar, en þær sjálfar
byggðar árin 1989 - 1991. Á
þessu ári verður lokið við að
steypa stöðvarhúsið upp, en
vélarnar koma síðar. I
vorleysingum 1991 verður
farið að hleypa vatni í
uppistöðulónið og áætlað er
að það verði að mestu fullt
það sumar.
Hér að framan hefur verið
reynt að gefa örlitla mynd af
því hvernig framkvæmdir við
Blönduvirkjun standa nú og
hvað er á næstu grösum.
Plássins vegna hefur þó
fjölmörgu verið sleppt, enda
af mörgu að taka og mörgu
hægt að segja frá. En að
lokum eru Sveini Þorgríms-
syni færðar þakkir fyrir góða
leiðsögn um svæðið.
Þorramaturinn okkar
er úrvalsvara
Hann er framleiddur hér heima
úr góðu hráefni frá
skagfirskum bændum
fkdgfirðingabúð
Þú þarft ekki annað!