Feykir - 07.12.1988, Qupperneq 1
rafsiá hf
Sérverslanir meö
raftæki
Sæmundargötu 1
Sauöárkróki
Hóladómkirkja tekin í notkun
að lokinni endurgerð
Það var gestkvæmt á Hólum í
Hjaltadal á sunnudaginn þegar
Hóladómkirkja var tekin í notkun
að nýju eftir endurreisn
kirkjunnar að innan, er hófst í
ársbyrjun. Á fimmta hundrað
manns voru viðstaddir athöfnina
og komust ekki nærri því allir
fyrir í kirkjunni. Margt fólk
var í skólahúsinu og fylgdist
þaðan með á sjónvarpsskermi,
hátiðarmessunni og samkomu
að henni lokinni.
Það var biskup Islands
séra Pétur Sigurgeirsson sem
prédikaði og lýsti blessun
kirkjunnar í messulok. Fyrir
altari þjónuðu séra Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup
á Hólum, séra Hjálmar
Jónsson prófastur á Sauðár-
króki, séra Sigurpál! Óskars-
son á Hofsósi og séra Dalla
Þórðardóttir á Miklabæ.
Kirkjukór Hóla- og Viðvíkur-
sókna söng við orgelleik
Rögnvalds Valbergssonar.
I prédikun sinni lagði séra
Pétur út frá mikilvægi Hóla
og Hóladómkirkju í sögu
kristninnar í landinu og
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Gat hann þess að við vígslu
kirkjunnar árið 1763 hafi
séra Gísli Magnússon þá-
verandi Hólabiskup lagt í
prédikun sinni út frá göngu
Jesú með lærisveinum sínum
upp á fjallið og sagði Pétur að
líkja mætti henni við göngu
Guðmundar biskups góða
upp fjallið að altari sínu í
Gvendarskál. „Hólar lýstu
upp Norðurland vítt um
sveitir,” sagði Pétur biskup.
Sem dæmi um áhrif og helgi
Hóladómkirkju vitnaði biskup
í orð Björns Jónssonar frá
Bæ sem sagði: „Enginn
kemur inn í þetta hús
ósnortinn af þeirri helgi er
hér ríkir. Að koma hingað er
sönn guðsþjónusta”.
Að lokinni messu voru
mörg ávörp flutt. Fyrstur
talaði séra Siguiður Guðmunds-
son vígslubiskup formaður
Hólanefndar. Þá Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt. Báðir
röktu þeir hver á sinn hátt
sögu Hóladómkirkju og viku
að þeim endurbótum sem
gerðar hafa verið á kirkjunni,
nú seinast endurreisn hennar
að innan. Þorsteinn sagðist
telja Hóladómkirkju merki-
legasta mannvirki sem reist
hefur verið hér á landi í
byggingasögulegu, listrænu,
og sögulegu tilliti, auk þess
sem hún væri elsta og
merkilegasta barrokkhús lands-
ins. En Hóladómkirkja er
elsta steinkirkja landsins.
Því næst tók til máls
Halldór Asgrímsson kirkju-
málaráðherra. Talaði hann
um Hóla sem menningarstað
og menningarsetur og hvernig
hann tengdist svo mjög
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
og varðveislu tungunnar.
Þór Magnússon þjóðminja-
vörður talaði næstur og lýsti
yfir ánægju sinni með
endurreisn kirkjunnar og
hvernig til hefði tekist. Sagði
hann Hóladómkirkju svo
sannarlega verðskulda þetta
Mánavör á Skagaströnd:
Gjaldþrot blasir við
Það stefnir allt í gjaldþrot
hjá fyrirtækinu Mánavör hf.
á Skagaströnd. Fyrirtækið
fékk greiðslustöðvun fyrir
nokkru og rennur hún út á
næstunni. Þegar þetta er
ritað er ekki endanlega
ákveðið hvort farið verður
fram á lengri greiðslustöðvun,
eða gjaldþrotaskipta óskað.
Engin starfsemi hefur verið í
fyrirtækinu síðan um fyrri
mánaðamót, en reynt hefur
verið að semja við lána-
drottna án mikils árangurs.
Hjá Mánavör hf. hafa að
jafnaði starfað 15-20 manns.
Segja má að starfsemi
fyrirtækisins haft verið fjór-
þætt. Þar hefur verið unnið
að nýsmíði skipa, skipavið-
gerðum, almennri bygginga-
starfsemi, og tilraunir hafa
farið fram á framleiðslu
bobbinga, flotholta og fleiri
hluta úr plasti, (polyurethan).
Ef til gjaldþrots kemur hefur
það mikil áhrif því fyrirtækið
skuldar verulegar fjárhæðir
og bæði sveitarfélagið og
einstaklingar eru í ábyrgðum
fyrir hluta af þeim skuldum.
Að sögn Omars Haralds-
sonar framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins er en ástæða þess
að svo er komið sú að
tilraunir með framleiðslu
bobbinganna og annarra
þarfahluta úr plasti hafa
verið mjög kostnaðarsamar,
en fram að þessu ekki skilað
neinum tekjum. Nú standa
þau mál þannig að menn eru
komnir yfir byrjunarörðug-
leikana, en vantar 1-2 millj.
kr. til þess að geta hafið
framleiðslu. Einnig nefndi
Ómar að eigandi skipsins,
sem síðast var í smíðum hjá
fyrirtækinu sigldi því í burt
án þess að gera upp sínar
skuldir. Þau mál velkjast nú
milli lögfræðinga en Ómar
sagði það mjög bagalegt að
hafa ekki peninga eða
skuldabréf fyrir þá smíði til
þess að liðka fyrir samning-
um við lánadrottna.
Að sögn Ómars eru þeir,
sem unnu hjá fyrirtækinu,
komnir í vinnu hjá öðrum
aðilum, enda framtið fyrir-
tækisins mjög óviss.
Mánavör hf. hefur haft
slippinn á Skagaströnd á
leigu, en hann er í eigu
hafnarsjóðs hreppsins. Undan-
farin ár hefur verið mikið um
viðgerðir á bátum og hefur sú
vinna skilað miklum tekjum
inn á staðinn. Þessi starfsemi
liggur nú niðri meðan
framtíð fyrirtækisins er í
þessari óvissu.
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup við prédikun í Hóladómkirkju
sl. sunnudag.
og vitnaði í inngang að
Passíusálmum Hallgrims Péturs-
sonar þar sem segir: Það er
dýrst sem lengi hefur geymt
verið.
Lokaorð samkomunnar
átti prófasturinn séra Hjálmar
Jónsson. Hann sagði um
endurgerð Hóladómkirkju:
„Kirkjuleg og þjóðleg menn-
ing á hér öruggt vígi, en
bakhjarl í hefð og sögu er
hverri þjóð mikilvægur. Nú
hafa ríkisvald og þjóðkirkja
tekið höndum saman um tákn-
ræna endurreisn. Guð gefi að
hún boði breytingar til meiri
farsældar en ástand í þjóðlíf-
inu ber nú vitni um. Það er
hluti af sjálfstæðisbaráttu
sem sífellt þarf að heyja”.
Hjálmar gat þess að á næsta
ári yrðu liðin 400 ár frá
útgáfu sálmabókar þeirrar er
Guðbrandur Þorláksson gaf
út og nefnd hefur verið
Hólabókin. Vék hann að
þeirri hugmynd hvort ekki
mætti færa marga af þeim
sálmum sem þar væru og lítið
hafi verið sungnir í nýjan
búning til nota í guðsþjónust-
um.
Að lokinni athöfninni í
kirkjunni var öllum boðið til
kafTidrykkju í húsnteði bænda-
skólans.
Meira um Hóladómkirkju á
bls. 4.
Rækjuvinnslan Dögun:
Leigir Hilmi II
Rækjuvinnslan Dögun á Sauðár-
króki hefur leyst skipamál sín
á þann hátt að taka Hilmi II á
leigu og inn í samningnum er
einnig ákvæði um forkaupsrétt
Dögunar á skipinu. Eins og
áður hefur verið getið rann
haffærniskírteini Rastarinnar
út nú i haust og er skipið
komið í úreldingu.
Hilmir II er 305 lestir að
stærð smíðaður árið 1976.
Hann hefur verið gerður út
frá Fáskrúðsfirði undanfarin
ár og er í eigu söltunar-
stöðvarinnar Hilmis sf. Skipið
er ekki ókunnugt hér á
norðurslóðum þar sem það
lagði upp hjá Dögun í sumar,
á þrem og hálfum mánuði
257 tonnum. Hilmir er nú á
loðnunni og kemur til
Sauðárkróks að lokinni vertíð í
febrúar.
„Við erum að búa okkur
undir jólafríið. Það verður
kannski vinna fram í miðja
vikuna, en síðan vitum við
ósköp lítið hvað næstu vikur
bera í skauti sér. Við erum að
kanna málin, en annars er
bara að bíða og vona. Þetta
er yfirleitt dauft í svartasta
skammdeginu. Það er helst
að lyftist á manni brúnin yfir
því að jólalögin eru búin að
ná yfirtökunum á þungarokk-
inu í útvarpinu”, sagði
Garðar Sveinn Arnason
framkvæmdastjóri Dögunar.