Feykir - 07.12.1988, Blaðsíða 3
44/1988 FEYKIR 3
Sauðárkrókur:
Bærinn skuldbreytir
hjá 3 fyrirtækjum
Allt útlit er fyrir að erfið staða
fyrirtækja eigi eftir að
leggjast með auknum þunga á
bæjar- og sveitarsjóðí á
næstunni, sökum þess að það
lendi á þeim að standa undir
miklum hluta þeirra skuid-
breytinga sem stjórnvöld
áætla að framkvæma í gegnum
atvinnutryggingasjóðinn. Á
fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks í síðustu viku var
samþykkt að veita 3 fyrir-
tækjum skuldbreytingu við
bæjarsjóð í gegnum atvinnu-
tryggingasjóð ríkisins. Þau
eru Fiskiðjan, Skjöldur og
Hraðfrvstihúsið á Hofsósi.
Skuldabréfin sem út verða
gefin eru til 6 ára og
afborgunarlaus fyrstu 2 árin.
Alls munu þessi þrjú fyrirtæki
skulda bæjarsjóði tæplega 4
milljónir króna. í umræðum í
bæjarstjórn kom fram að 8
fyrirtæki skulda bæjarsjóði
rúmlega 13 milljónirogtöldu
bæjarfulltrúar það ekki mikið
miðað við það sem gerðist
annars staðar.
Við afgreiðslu málsins í
bæjarstjórn taldi Snorri
Björn Sigurðsson bæjarstjóri
þetta miður æskilegt og
bæjarsjóður ætti ekki að vera
lánastofnun. En það væri
vitað mál að fyrirtækin gætu
ekki greitt þessar skuldir
sínar og þetta hafi því þótt
vænlegri lausn en sú að
breyta skuldum fyrirtækjanna
í hlutafé. Það hefði sýnt sig að
ekki kæmi mikið út úr slíkum
ráðstöfunum. Nokkrir bæjar-
fulltrúar tóku til máls og
höfðu þeir svipaðar skoðanir
á málinu og bæjarstjóri.
Einn bæjarfulltrúa var á
móti samþykktinni og færði
fram bókun. Var það Hörður
Ingimarsson. Gagnrýndi
Hörður skuldbreytingarnar
með þessum hætti á þeim
forsendum; aðbæjarfulltrúar
hefðu ekkert í höndunum um
rekstrarstöðu þessara fyrir-
tækja, að sveitarfélög almennt
hefðu ekkert efni á slíkum
langtímalánum til fyrirtækja,
að afföllin á bréfunum yrðu
slík að þau þýddu í raun 20-
30% afskriftir skulda fyrir-
tækjanna við bæjarsjóð, og
það væri hlutverk ríkisins en
ekki sveitarfélaganna að
skapa rekstrargrundvöll út-
flutningsatvinnuveganna. Verj-
andi hefði verið að ganga til
skuldbreytinganna, ef ríkið
hefði tryggt nafnverð bréf-
anna m.a. með kaupum
Seðlabanka á þeim.
Húnaþing:
Kúasýningar
I síðustu viku gekkst
Búnaðarsamband A.-Hún.
fyrir fundi til þess að kynna
niðurstöður kúasýninga á
síðastliðnu vori. Ágæt mæting
bænda var á fundinum og
þar kynnti Jón Viðar
Jónmundsson niðurstöður
sýninganna og fjallaði um
nautgriparæktina.
Alls voru skoðaðar 232 kýr
sem eru helmingi fleiri kýren
skoðaðar voru síðast þegar
sýning var haldin fyrir
fjórum árum. Nautsmæðra-
dóm fengu 8 kýr og 125 aðrar
kýr fengu fyrstu verðlaun.
Stigahæsta kýrin var Hrefna
á Syðra-Hóíi. Hún er
Norðan Niður
Bókaútgáfan Norðan Niður
hefur nýlega sent frá sér
Ijóðabókina Itrekað eftir
Geirlaug Magnússon. Þetta
er áttunda bók höfundar og
inniheldur 35 ljóð, Sigur-
laugur Elíasson gerði kápu.
Norðan Niður gefur einkum
út ljóðabækur og eru tvær
bækur væntanlegar á næstu
I Bókabúðinni færðu
Jólabækurnar - Jólakortin
Jólaskrautið
Jólapappírínn frá kr. 50.- rúlluna
Gjafavörur - Skartgrípir - Úr
og margt fleira
Fjölbreytt úrval af margskonar spilum
T.d. 85 spil í kassa á kr. 1.280.-
Skáktölvur frá kr. 2.275-
p\ð
\|EU
BRYNdARS
Suðurgötu 1 - Sími 5950 - Sauðárkróki
Jólatilboðið okkar!
Forksdóttir. Eigandi hennar,
Björn Magnússon, hlaut til
varðveislu farandbikar, sem
Búnaðarsambandið gaf. Þá
gaf SAH átta áletraða
verðlaunaskildi fyrir bestu
kýrnar.
I vor var einnig kúasýning
í Vestur-Húnavatnssýslu. Þar
voru skoðaðar 80 kýr og
hlutu sex þeirra nautsmæðra-
dóm og 52 til viðbótar fengu
fyrstu verðlaun. Hæstu heildar-
einkunn hlaut Formósa
Skútadóttir á Búrfelli, en
Kotasæla Njarðardóttir á
sama búi hlaut hæstan
útlitsdóm eða 89 stig.
MÓ.
mánuðum: Einnar stjörnu
nótt eftir Óskar Árna
Óskarsson og Blýlýsi eftir
Sigurlaug Elíasson.
Bækurnar eru prentaðar
hjá prentþjónustu SÁST á
Sauðárkróki og fást í stærri
bókabúðum sem og hjá
Norðan Niður, pósthólf 57,
550 Sauðárkróki.
10% afsláttur
fyrir alla af
öllum staðgreiddum
vörum
Jólagjöfina - jólafötin
og jólaskóna
færð þú hjá okkur
NÝTT VISATÍMABIL ER HAFIÐ
OPIÐ FÖSTUDAGINN 9. DESEMBER FRÁ KL. 10-19
OPIÐ LAUGARDAG 10. DESEMBER FRÁ KL. 10-18
Verslið í sérverslun á heimaslóð
SPARTA fataverslun - skóbúð
Aðalgötu 20 - Símar 5802 og 5635