Feykir - 07.12.1988, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 44/1988
Hagyrðingaþáttur 41
Heilir og sælir lesendur
góðir. í síðasta þætti gerði ég
nokkra grein fyrir höfundi
vísunnar: Út af halla mér ég
má. Taldi ég hana eftir
Sigvalda Jónsson Skagfirð-
ing og voru heimildir mínar
fyrir því þær að í Skagfirð-
ingabók Sögufélags Skag-
flrðinga frá árinu 1966 er
vísan birt og þar sögð eftir
Sigvalda.
Nú hefur Salómon Einars-
son í Kópavogi sent þættin-
um ágætt bréf þar sem hann
segir meðal annars: í Feyki í
40. tbl. spyrð þú um höfund
að vísunni: Út af halla mérég
má. Vísa þessi er eftir
Snæbjörn Kristjánsson sem
kenndur var við Hergilsey á
Breiðafirði, en er nú löngu
látinn. Hér kemurönnur vísa
eftir Snæbjörn.
Fingra mjalla foldirnar
færast valla úr hreysi.
Þær eru allar ófærar
út af kallmannsleysi.
Minnir mig að þessar vísur
séu báðar í ævisögu Snæbjamar.
í 38. tbl. er vísa eftir Asgrím
Kristinsson: Upp á kvisti
ungmey hlý. Minnir hún mig
á vísu eftir Pétur Jónsson frá
Stökkum á Rauðasandi.
Einn á kvisti Ari gisti,
ekki tristur var.
Hrund ei missti heldur kyssti
hana lystugt þar.
Eg þakka bréfið og tel rétt
að þær upplýsingar sem
Salómon gefur komi hér
fram þrátt fyrir að ég telji
Skagfirðingabókina nokkuð
örugga heimild.
Þá er að geta þess að í 39.
þættinum birti ég vísuna:
Kuldinn beygja firða fer, og
taldi hana eftir Björn
Sveinsson frá Gili í Borgar-
sveit. Í síðasta þætti kom svo
fram athugasemd við það, en
þá hafði kona á Sauðárkróki
haft samband við þáttinn og
talið vísuna eftir Jóhannes
Jóhannesson frá Heiði í
Sléttuhlíð. Ekki hefur það
hliðarspor orðið undirrituðum
til framdráttar, því nú hafa
þrír aðilar haft samband við
þáttinn og ber þeim saman
um að vísan sé eftir Björn.
Einn af þeim er kona í
Reykjavík og er hún sonar-
dóttir Björns. Segist hún
hafa átt þessa vísu og margar
fleiri uppskrifaðar eftir afa
sinn, og vita um marga sem
kynnu vísuna og vissu að hún
væri eftir Björn.
Þá hefur bóndi í Skagafírði
gefið mér þær upplýsingar að
Björn hafi búið í Þverárdal í
A-Hún. fyrir og um 1920.
Hafi hann einhverju sinni
verið á ferð í fjallgarðinum
milli Skagafjarðar og Húna-
vatnssýslu ásamt fleiri mönn-
um og þeir hreppt mikið
illviðri. Orti hann þá vísuna.
Eins og komið hefur fram
áður er óvíst að nokkur leið
sé að vita hvað er 100% rétt í
svona tilfellum og ekki hægt
jólaróli
Helmingi stærra gjafahom í Hátúni
Frábært úrval af teppum á einstaklings- og hjónarúm
Verð fyrir alla
Baðmottusettin einstaklega falleg
Baðmullarmotturnar 140x70 og 120x60
Verð kr. 1.170.- og 1.230.-
Amerísku handklæðin standa fyrir sínu
Jólastjörnurnar prýða hvert heimili - Sérstaklega ódýrar
Verð kr. 788.- kr. 963,- kr. 1.190,- og kr. 1.383.-
Kirkjurnar vinsælu m/spilverki ,,Heims um ból”
Aðeins kr. 1.760.-
Mikið úrval af styttum - Dæmi um verð:
Kr. 736,- kr. 825,- kr. 1.275.- kr. 2.250 kr. 2.625-
kr. 2.750,- kr. 3.625,-
Fatahengi kr. 2.200.- kr. 3.250.- og kr. 3.400.-
Borðstofusett kr. 92.312.- ^
Hornsófi kr. 79.800.-
Leðurlook sófasett kr. 92.000.-
Hjónarúm m/náttborðum og dýnum á tilboði
Verð aðeins kr. 28.000.-
Verslið á heimaslóð - Það borgar sig
HAIUN
Sæmundargötu 7 - Sími 5420 Sauðárkróki
að alhæfa um slíkt. Þó er ég
þess fullviss að ég á þessa vísu
á prenti einhvers staðar í dóti
mínu og er hún þar talin eftir
Björn og sögð ort í
stórhríðarverðri á áðumefnd-
um fjallgarði. Læt ég svo
útrætt um þetta mál að sinni.
Þá koma hér vísur eftir
Eyjólf R. Eyjólfsson frá
Hvammstanga. Þegar Gunnar
Thoroddsen myndaði ríkis-
stjórn sína í ársbyrjun 1980,
orti Eyjólfur.
Gunnar æði gerist ýtinn
á gróðurlöndunum.
Puntar sig með pínulítinn
Pálma í höndunum.
Veturinn 1966 hlustaði
Eyjólfur á ýmsa hagyrðinga
spreyta sig við að botna
vísuhelming eftir Pálma
Jónsson á Bergsstöðum.
Pálmi ljóðar landann á,
létt svo þjóðin syngi.
Braga glóðin geislar frá
gömlum óðsnillingi.
Eitt sinn á vordegi var
Eyjólfur á ferð á opinni
dráttarvél í mikilli rigningu.
Kom hann við hjá séra
Róbert Jack á Tjörn. Varla
var hann kominn inn úr
dyrunum, þegar prestur rétti
að gestinum fullt viskíglas.
Þá kom vísan.
Nú guð oss færir góðan
dropa,
úr gróðri jarðar ilmur finnst,
og hjá hans þjóni þigg ég
sopa,
þörfin er bæði yst sem innst.
Eitt sinn fór Eyjólfur í
róður á rækjubáti í forföllum
land fór ung stúlka að stríða
honum á því að hann þyldi
ekki að fara á sjó án þess að
verða sjóveikur. Fannst
henni það skítt að svo
gamalreyndur sjómaður þyldi
ekki að fara út fyrir
landsteinana. Stúlkan sem
hét Dröfn fékk þessa vísu.
Eg feginn var er hafðist höfn
og hélt á slóðir kunnar,
en sæll ég mundi sigla um
Dröfn
á seglum náttúrunnar.
Njáll Markússon Vestri-
Leirárgörðum í Leirársveit á
næstu vísu.
Tíðum hnakkinn ber við
Brún,
bungar jakkavasi,
læt svo flakka hófa hún,
hýr ég smakka á glasi.
Margir verða að ganga í
gegnum ýmiss þáttaskil á
lífsleiðinni. Jón Ólafsson,
Katanesi, kveður svo.
Eg heyri í hjartanu brestinn,
hamingju lággengiskvak.
Selt hef ég síðasta hestinn
og sest ekki oftar á bak.
Þetta verður jokavísan að
þessu sinni. Eg vil biðja
ykkur lesendur góðir að vera
duglegir að senda mér efni,
sérstaklega væri gaman að fá
fljótlega eitthvað af vísum
sem tengjast jólunum, er ég
gæti þá birt í síðasta
þættinum fyrir jólin.
Verið þið sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduós
Sími: 95-7154
Atvinna í boði
Póstur og sími Sauðárkróki auglýsir til
umsóknar starf póstafgreiðslumanns,
(gjaldkera).
Umsóknarfrestur er til 30. desember.
Umsóknum skal skila til stöðvarstjóra sem
veitir nánari upplýsingar.
Póstur og sími