Feykir


Feykir - 20.12.1989, Page 5

Feykir - 20.12.1989, Page 5
46/1989 FEYKIR 5 Jón Dalmann vöruflutninga- bílstjórí tekinn tali: „Þá ferð vildi ég ekki fara aftur” Gísli á Hofi er maður, sem ekki fer troðnar slóðir. Um dagana hefur liann verið óragur að revna eitthvað nýtt og ekkert haft á móti því að eftir honum væri tekið. Sem dæmi um gerðir hans hin síðari ár má nefna að heima á Hofi verkar hann hákarl og framleiðir trjáhlífar og hann stendur í bókaútgáfu. En í þessum pistli verður ekki fjallað um þessa þætti, heldur sagt frá því að nýlega flutti Gísli í nýbyggt kúluhús. Ekki er vitað um annað kúluhús á bóndabæ hér á landi. „Hef alltaf gaman af að gera öðruvísi en aðrír menn” segir Gísli á Hofi nýfluttur í kúluhús „Jú, það dugir víst ekkert dosk hjá okkur vöruflutninga- bílstjórunum allra sist svona rétt fyrir jólin. Eg fer suður um hádegi á mánudag og kem til baka á miðvikudeginum. Fer síðan suður strax næsta morgun og kem svo til baka úr minni síðustu ferð fyrir jól á föstudeginum”, sagði Jón Dalmann vöruflutningabílstjóri hjá Bjama Haraldssvni. Bjarni sá auglýsir eins og kunnugt er undir slagorðunum: Trúin flytur fjöll, en undirritaður flvtur vörur milli Sauðárkróks og Reykjavíkur. „Annars er þetta ekkert meira hjá okkur núna en vanalega”, segir Dalmann. Það er þetta vanalega, iðnaðarvörurnar suður og síðan ýmiss varningur til baka, náttúrulega meira af búðarvörum þessa dagana. Hann þekkir þetta eftir 18 ára náin kynni af vöruflutn- ingum, þar af 15 á rúntinum Sauðárkrókur Reykjavík. „Það er nú aldeilis munur að keyra þessa leið núna heldur en þegar maður var að byrja. Malbikið maður og svo hefur beygjunum fækkað mikið. Hinsvegar er ég mjög gagnrýninn á að ekki hafi verið gerður skurkur í því að fækka einreina brúnum á leiðinni. Sums staðar duga ræsi til að losna við þessar „dauðagildrur”. Einhver ferð þér eftir- minnilegri en önnur? „Það er náttúrlega þessi rétt fyrir jólin í fyrra sem ég gleymi sjálfsagt aldrei. Þegar ljósin slokknuðu á bílnum á Hrútafjarðarhálsinum og í hvínandi hálku og myrkri réð ég ekki neitt við neitt. Maður var heppinn að sleppa lifandi og mig langar síður en svo til að fara aðra svipaða aftur”. Hefur þá ekki verið beygur í þér núna í skammdeginu? „Nei, það er alveg afogfrá í þessu sumarfæri sem er búið að vera núna í haust. Þetta hefur verið alveg einstaklega þægilegt”, sagði Jón Dalmann að endingu. Jól á Það var aðfangadagur jóla, kvöldið nálgaðist. Unga stúlkan á í vændum sín fyrstu jól fjarri foreldrum og ungri systur. Hana langar auðvitað heim, en vinnaná sjúkrahúsi í öðru byggðarlagi leyfir það ekki. A sjúkrahúsi er vinnu- dagur allt árið, líka á jólum, og hún á vaktina um jólin. Hennar vinnustaður er eldhúsið og þar er í mörgu að snúast. Klukkan átta um kvöldið er þó vaktin á enda og starfsmannaherbergið, sem hún deilir með annarri stúlku, bíður. Hún er hinsvegar ein, þar sem herbergissystirin er á vaktinni á sjúkrahúsinu á þriðju hæð. Unga stúlkan opnar jóla- — Mér líður vel í þessu húsi, sagði Gísli þegar ég heimsótti hann stuttu eftir að hann flutti í inn. Þettaerekki stórt hús um hundrað fermetrar að gólffleti, en ég verð sjötugur í mars og hef ekkert að gera með stærra í ellinni. Undir miðri kúlunni er síðan gott herbergi á efri hæð. Þar hefur Vigdís aðstöðu með sína handavinnu og annað sem hún er að gera, en ég hef skrifstofu fyrir mig hér niðri. Hluti hússins er með sérstakri gerð af gleri þannig að þar verður hin besta sólstofa. Gísli sagði einn kost hússins vera þann að búnaður pakkana sína og hugsar heim. Hræðilegur einmana- leiki sækir á hugann og tárin eru á næsta leyti. H ún fer upp á sjúkradeild að leita félags- skapar herbergissysturinnar. En engan félagsskap að hafa þar því gífurlegar annir eru á deildinni. „Ertu ekki til í að fara inn á númer sex og aðstoða. Þar er eftir að taka upp bæði gjafir og kort”, segir herbergissystirin. Unga stúlkan játar því. A númer sex býr ung kona haldin lömunarsjúkdómi á háu stigi. Þrátt fyrir sjúkleik- ann er hún andlega heil og hefur kannski vegna hans, þroskað með sér ótrúlega næmni. Hún brosir þegar er til þess að dæla heitu lofti úr sólstofunni unt aðra hluta hússins. Þannig nýtist sólar- hitinn til upphitunar og hitunarkostnaður hússins verður lægri en ella. Aðspurður um byggingarkostnað sagðist Gísli ekkivera búinn að takahann saman. Ljóst væri þó að það væri ódýrara að byggja kúluna en hefðbundið hús. Hins vegar hefði hann lagt mikið í innréttingar og væri húsið klætt að innan með panil. Slíkt hleypti kostnaði upp miðað við að nota spónaplötur, en væri líka mun vistlegra oghuggulegra. Að lokum var Gísli spurður hvort hann byggði unga stúlkan birtist í dyrun- um og segir: Gleðileg jól, með sínu óskýru rödd. Hún virðist strax skilja hvar skórinn kreppir að og leitast við að örva ungu stúlkuna til dáða, veita henni styrk, frið og gleði. Unga stúlkan er svolítið feimin, en hefst þó handa. Saman skoða þær fallegar gjafir og lesnar eru margar yndislegar jóla- kveðjur. Herbergið er fagur- lega skreytt,jólatré stendurá borði og brátt finnur unga stúlkan hina miklu jóla- stemmningu sem er þarna inni. Tvær einmana sálir hafa náð að stilla saman strengi sína í helgi jólakvöldsins. kúluhús til þess að vera öðruvísi en aðrir menn? — Ég vil ekki viðurkenna það. Ég sá svona hús á Isafirði fyrir nokkru og varð hrifinn af hve allt var manneskjulegt inni í því. Það ýtti við mér. Ég reiknaði aldrei með því að það væri ódýrara að byggja með þessu lagi en á hefðbundinn hátt. Hins vegar hef ég alltal' gaman af því að gera öðru vísi en aðrir menn og mig hefur aldrei skort kjark til þess að fara ótroðnar slóðir. sagði Gísli Pálsson aðlokunt. MÓ. Það sem aðra vantaði gat hin látið í té, unga stúlkan veitt lömuðu konunni líkamlega aðstoð, en lamaða konan gefið á móti af sínum rnikla andlega nægtabrunni. Kvöldið er á enda áður en varir og tími til að ganga til náða. Með jólin í hjartanu sofna þær báðar. Unga stúlkan er orðin fullorðin kona, en hún minnist ætíð þessa jólakvölds sem þess innilegasta sem hún hefur átt. Hún hugsar með hlýhug til lömuðu konunnar sem er löngu dáin. H sjúkrahúsi

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.