Feykir


Feykir - 20.12.1989, Blaðsíða 6

Feykir - 20.12.1989, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 46/1989 „Allir verða að berast á” segir Bryndís á Mosfelli — Vonandi finna flestir þá hlýju og sálarunað. sem umlykur mann ájólunum þegar fjölskyldan er saman komin og allt erfínt og Ekki þykir lengur ástæða til að óttast um að jóla- og áramótaböll Sauðkrækinga falli niður. Maður frá Bruna- málastofnun kom norður á föstudag og mat aðstæður í félagsheimilinu Bifröst ásamt Birni Sverrissyni eldvarnar- eftirlitsmanni. Stjóm Bifrastar féllst á þær kröfur sem þeir settu fram og ákvað að ráðist yrði í þær þegar í stað. Það sem gera þarf er að klæða steinullarplötur neðan á stigann og 70 fermetra svæði undir salargóflinu í hinum svokallaða Lágmúla. fágað, sagði Bryndís Júlíusdóttir á Mosfelli í samtali við blaðamann þegarhún varspurð hvað væri henni efsj i huga á Þá þarf að hreinsa dót út úr Lágmúlanum, útbúa útgöngu- dyr af senunni og koma upp leiðbeiningarljósi við dyrnar. Það eru Knútur Aadnegaard byggingarmeistari og hans menn, og Rafsjá rafverktakar sem sjá um verkið. ,,Eg hef ekki nokkra trú á öðru en þeir verði búnir að þessu fyrir jól. Þá verða þessi mál komin í það horf sem allir aðilar geta sætt sig við. svo framarlega sem reykinga- bann í búningsherbergjum verði virt”, sagði Björn Sverrisson. jólum. Og Bryndís hclt áfram: A þeim velferðardögum. sem við lifum á er til fólk sem ekki býr við allsnægtir en þjóðarand- inn leyfir engum að vera fátækur. Það verða allir að berast á þó að allt sé fengið að láni. Eg finn til meðfólkinu, sem hefur steypt sér í skuldir og ræður ekki við þær. Fólki leyfist ekki að vera fátækt og láta sig vanta hlutina því þá er þaðekki menn með mönnum. Það tilheyrir minni jólagleði að þá koma margargóðarbækur á markaðinn. I því sambandi vil ég nefna að ég man eftir grein, sem Indriði G. Þorstcinsson skrifaði citt sinn í Tímann. Þar sagði hann: ,,A timum þegar mikil og sífelld launabarátta á sér stað vegna þeirra sem sannanlega eiga erfitt með að lifa af launum sínum og vegna hinna, sem eiga svo ntikla peninga að þeir lita ekki við minnu en fara til London til innkaupa fyrir jólin. liggur við að maður standi sig að því að vilja aftur og aftur flýja á náðir þeirra bóka, sem skrifaðar voru um tíma þegar allir voru fátækir nema kanselíið”. I raun erum við Islendingar ein stór fjölskylda og það Jólaböll Króksara á sínum stað Bryndís Júlíusdóttir. finnum við best um jólin. Það er ákaflega gott að fá kveðjur frá vinum og vandamönnum. Það hlýjar sálinni svo vel. Gott mannlíf er mikils virði og það þurfum við umfram annað að rækta með okkur. Hlýtt bros kostar engan neitt en gefur mikið þeim sem tekur við. Um jól og áramót leitar hugurinn gjarnan til bernsku og æskuára og rifjaðar eru upp ýmsar stundir. Mér finnst afar stutt síðan ég var barn en margt hefur breyst og það segi ég satt að mun meiri vandi erað vera barn í dag. Það segir svolitla sögu að t.d. var það sjálfsagt og eðlilegt að haga sér vel og vera ekki með hávaða þegar messa var i útvarpinu, svo ég tali nú ekki um ef einhverjum datt í hug að slökkva á viðtækinu þegar þjóðsöngurinn var leikinn. Þessi virðing, sem borin var fyrir landinu okkar og frjálsræði þjóðarinnar var arfur frá aldamótakynslóðinni, sent hafði eldmóð og ættjarðarást i ríkum mæli. Að endingu vil ég biðja góðan guð að gefa okkur öllum Islendingum gleðileg jól og gæfuríkt ár. sagði Bryndís Júlíusdóttir að lokum. MÓ OPNUNARTIMI SKAGFIRÐINGABÚÐAR: FIMMTUDAG 21. DES. KL. 09-22 FÖSTUDAG 22. DES. KL. 09-18.45 LAUGARDAG 23. DES. KL. 09-23 NIÐURSOÐNIR ÁVEXTIR Bl. ávextir .. 1/1 kr. 109 Perur ..... 1/1 kr. 99 Ferskjur... 1/1 kr. 99 Jarðaber .... 1/1 kr. 99 Ananas .... 1/2 kr. 68 JÓLATILBOÐ Bayonesskinka ....... 848 Reyktur svínabógur ... 825 Reyktur svínakambur... 840 Svínahamb.hryggur .... 998 Svínakótelettur ...... 915 Lambahamb.hryggur .... 399 Londonlamb .......... 797 Hangilæri úrb....... 1- Hangiframp. úrb.......847 p cj Allt kjöt nýreykt GERIÐ VERÐSAM ANBURÐ NIÐURSOÐIÐ GRÆNMETI ÓTRÚLEGU VERÐI ALDREI MEIRA ÚRVAL AF FERSKUM ÁVÖXTUM QC ít LQ -J CD Q. $ Uj CD 'T Q QC CD I- Q co -J u. CD Q Q í VEFNAÐARVÖRU- OG SPORTVÖRUDEILD BJÓÐUM VIÐ ÝMSAR VÖRUR Á GÓÐUM AFSLÆTTI T.D. TINDASTÓLSÆFINGA- GALLA Á 20% AFSLÆTTI JÓHANN MÁR ÁRITAR PLÖTU SÍNA Á MILLI KL. 21-22 LAUGARDAG 23. DES. JÓLASVEINARNIR KOMA TIL OKKAR KL. 16.00 Á ÞORLÁKSMESSU. STARFSFÓLK SKAGFIRÐINGABÚÐAR ÓSKAR YKKUR GLEÐILEGRA JÓLA íkagfirðingabúd

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.