Feykir


Feykir - 20.12.1989, Page 13

Feykir - 20.12.1989, Page 13
46/1989 FEYKIR 13 tíundaðar hér. Ein þeirra var þó að búa til risa stóra raflýsta stjörnu, sem yrði staðsett það langt frá Nafabrúninni að hún næði ekki að lýsa framan í brekkuna og yrði þá eins og svífandi á himni. En við komumst fljótt að þeirri niður- stöðu að burðarvirkið undir slikri stjörnu yrði of viðamikið og mundi að auki alltaf sjást. I tengslum við það að setja eitthvað upp, sem virtist svífa á himni þá fórum við að ræða um krossinn á Laugarneskirkjunni í Reykjavík og hvernig hann við vissar aðstæður virtist svífa í loftinu. Og með hann sem fyrirmynd þá var ákvörðunin tekin, kross skyldi það vera. „Þetta er ekkert mál drengir mínir”, sagði Ásbjörn, „við látum hann bara snúast” En þá kom babb í bátinn, kross hættir nefnilega að sjást sem kross ef maður horfir á hann á hlið, og til dæmis frá sjúkrahúsinu séð þá yrði svona kross bara eins og upplýstur staur, og það var litið varið i það. „Þetta er ekkert mál drengir mínir”, sagði Asbjörn „við látum hann bara snúast. Við byggjum hann á hjól og notum gírmótor og svo ráðum við þvi hvað við látum hann fara hratt”. Eftir að ákvörðunin hafði verið tekin þá var ekki eftir neinu að bíða. Við vissum af heljar miklum bjálka úti á Eyri sem höfnin átti og þar var líka ræfill úr stóru skipsspili með miklu tannhjóli,sem nota mætti í undirstöðu sem gírmótorinn gæti snúið. Það varð úr að Asbjörn yrði leystur úr þeirri pinu að hristast á vélarhlífinni og við Brandur færum í efnisútvegun. Uti á Eyri fundum við glæsilega bjálka og sá lengsti skrefaðist meira en tólf metrar, og við vorum kátir. Við skoðun á skipsspilinu varð ljóst að það tæki minnst dag að ná tannhjólinu úr því. Þá var eftir að smíða allan búnað undir það og yfir, og það yrði margra daga verk. Hugmyndin snjalla um snúning var því slegin af. æst lá þá fyrir að hitta bæjarstjórann, Rögnvald Finn- bogason, og sníkja af honum bjálkann. Bæjarskrifstofurnar voru þá þar sem Feykir hefur aðsetur nú. Klukkan var langt gengin í fimm og búið að loka, en við lömdum upp og náðum tali af bæjarstjóra og bárum upp erindið. En „sorrí Stína” bjálkanna beið mikilvægt hlut- verk í öryggismálum bæjarins, sem var viðgerð á bryggjukant- inum, og þó málefnið væri gott þá væri þetta því miður ekki hægt. Nú voru góð ráð dýr, okkur datt helst í hug að leita uppi Þórð á Stöðinni og vita hvort svo ólíklega vildi til að hann gæti vísað okkur á símastaura. Gallinn var bara sá að við vissum ekkert hvar Þórður var þessa stundina. Við ákváðum því að fara út á trésmíðaverkstæði KS til skrafs og ráðagerða við Magga Sigga Jós, sem þar var hæstráðandi og vita hvort hann gæti fellt saman spýtur í átta til tíu metra háan kross, sem hefði styrk til að standa af sér öll veður. Við sögðum Magnúsi erindið og leist honum ekki á að nægur styrkur næðist með skeytingu. En ég gleymi því ekki hvernig mér varð innanbrjósts þegar Magnús pírði á okkur augun með sínum sérstaka hætti og sagði. „En það er annað í þessu strákar. Það þvældist hér óvænt á land í haust úr timburskipi heilmikil spýta, líklega efni í mastur sem enginn hafði þó pantað. Svo að ég hirti spýtuna og tímdi ekki að saga hana í sundur, en kom henni fyrir út við vegg hér upp undir lofti. Eigurn við ekki að skoða þessa spýtu, ég gæti bara trúað að hún hentaði ykkur”. Og viti menn þarna beið eftir okkur langtréð í krossinn,yfir tuttugu feta bjálki. Eftir að efnið var fundið þá var næst að sníkja það út, því fjárhagurinn var nú ekki beisinn í þann tíð. „Taliði við Svein” sagði Magnús og átti þar við Svein Guðmundsson kaupfélagsstjóra. Nú við Brandur fórum á kontórinn og svifum í Svein kaupa og skýrðum fyrir honum málin og báðum hann að gefa okkur spýtuna. Bjarni Haraldsson kaupmaður. Sveinn sýndi engin viðbrögð en svaraði háalvarlega, „ég hef ekkert leyfi til að gefa eigur kaupfélagsins, þið hljótið að skilja það og það eru erfiðir tímar hjá bændum núna”. Okkur vafðist eitthvað tunga um tönn en þá hélt Sveinn áfram og glotti nú við. „Og þessi ríkisstjórn ykkar hún stefnir öllu í hrun”. Eg man að ég var að velta því fyrir mér hvernig ég ætti að fara að karlinum, en þá hélt hann áfram glaðbrosandi. „En þetta er gott mál hjá ykkur drengir mínir og segiði Magnúsi að þið megið eiga spýtuna og ef það er eitthvað meira sem hann getur gert fyrir ykkur þá má hann það”. mT egar við komum aftur á verkstæðið þá var Magnús búinn að taka niður spýtuna og byrjaður að renna henni á hefil. „Ég þóttist vita hvernig þetta færi og datt i hug að hefla aðeins af henni fyrir ykkur og svo er ég búinn að finna hérna tæpa þrjá metra af 5x5 í þvertréð”. Klukkan hálf sex vorum við komnir á verkstæðið okkar með heflaðan kjörvið í krossinn. Næst var að ákveða hlutföllin í krossinum og staðsetningu þverarmsins. Ég man að ég fékk því ráðið að við staðsettum þverarminn um feti neðar en okkur fannst þó að hann ætti að vera og voru rökin þau, að ef við hefðum hlutföllin rétt þá virkaði krossinn úr fjarlægð eins og upplýstur snúrustaur og að með „Hefðum við Ásbjöm sagt nei við Guðbrand eins og hugur okkar stóð til? Spýtan langa, sem lenti utan farmskrár og fór í land í rangri höfn, hefði henni verið skipað upp í réttri höfn? þessu fyrirkomulagi þá gátum við aukið breidd hans um tvö fet. Um morguninn fór ég svo með spýturnar niður á Hlyn þar sem vinir okkar tóku úr þeim fyrir samskeytunum og tóku enga greiðslu fyrir. Þegar átti að fara að leggja rafbúnaðinn á krossinn, þá kom í ljós að nógu margar pemhöldur voru ekki fáanlegar i bænum og orðið of seint að panta þær að sunnan. Ejn það hafði gerst eitthvað tíu dögum áðureða svo, að Bjarni Haraldsson fór í tiltekt í pakkhúsinu hjá sér. Þarhafði í nokkur ár tekið mikið pláss flenni mikil jólaskreyting, sem átti að vera halastjama. Hún var sjálf um þrír metrar í þvermál og fest í hornið á verlsun H.J., tekin út yfir götuna og halinn alla leið yfir hornið á gömlu Gránu. Bjarni hafði komið með þennan flugdreka sinn á verkstæðið til okkar og beðið okkurað athuga hvort það borgaði sig að lappa upp á hann. An þess að nokkur vissi þegar gert var, þá hafði Bjarni fært okkur þarna fullkomnasta búnað, sem mér er kunnugt um að til sé til þessa verks, og á þeim tæpu þrjátíu árum sem liðin erusíðan, þá hef ég aldrei séð svona raflagnaefni. Ég hringdi því í Bjama vin minn og sagði honum að það borgaði sig alls ekki að lappa upp á þennan flugdreka hans.en ég vildi kaupa af honum raflagnaefnið, sem í honum væri. Við höfðum þröngan skó í fjármálum, svo ég bauð Bjarna að við skyldum smíða fyrir hann og setja upp fyrir jól stafaskilti framan á búðina og taka halastjörnuna sem greiðslu upp í. I Ieyrðu vinskapur, þetta er búið að vera fyrir mér hérna í pakkhúsinu í nokkur ár svo mér fannst tilvalið að fara með það í geymslu til ykkar”, sagði Bjami og hló við. „En ég vil gjarnan fá eitthvað sem lífgar upp á búðina og hafðu þetta bara vinskapur eins og þú vilt”. Og þannig komu til V.H.J. stafirnir á búðinni hans Bjarna. Hefði Bjarni Haralds- son látið ónýtu skreyt- inguna sína liggja í pakkhúsinu eitt árið enn í stað þess að koma henni til okkar? Þá væri enginn kross”. Við unnum síðan krossinn á verkstæðinu hjá okkur, en hefðum ekki komið honum út samsettum og fengum því að setja hann saman á verkstæði rafveitunnar, þar sem nú er tannlæknastofa Páls Ragnars- sonar. Adolf Björnsson rafveitu- stjóri hafði mikinn áhuga fyrir þessu verki okkar og var boðinn og búinn að veita okkur aðstoð. Hann lét leggja og bar allan kostnað af raflögninni að kross- stæðinu, og hann færði okkur málningu og allar pemr. Ein pera á þessum árum kostaði jafnt og stundarfjórðungur í útseldri vinnu. á núvirði em það rúmar 300 krónur. Séu um 50 perur í krossinum þá er það að núvirði rúm 15 þúsund. Og það voru fleiri sem lögðu okkur lið. Jóhann B. Baldurs var forstöðumaður BílaverkstæðLs KS, hann lét smíða og gaf okkur járnkross, sem boltaður var aftan á samskeytin á krossinum. Einnig lét hann smíða og gaf okkur festibúnaðinn á sáluhliðs- stólpann þar sem krossinn var fyrst settur upp. liétt fyrir klukkan sex á Þorláksmessu 1961 eða 1962 höfðum við svo komið þessum himingnæfandi krossi upp og kveiktum á honum í fyrsta sinn. Ég hef velt fyrir mér atvikum, sem tengjast þessum krossi. Hefðum við Asbjörn sagt nei við Guðbrand eins og hugur okkar stóð til, þegar hann bað okkur að koma með sér að setja upp jólatréð við spítalann, þá hefðum við aldrei orðið fyrir þessari tilfinnanlegu snertingu, sem vakti okkur til verksins, og þá væri ekki þessi kross. Spýtan langa, sem lenti utan við farmskrá og fór í land í rangri höfn og komst þannig til Magnúsar Sigurðssonar, sem ekki tímdi að saga en geymdi vandlega. Hefði henni verið skipað upp í réttri höfn, þá væri ekki þessi kross. Hefði Bjarni Haraldsson látið ónýtu skreytinguna sína liggja í pakkhúsinu eitt árið enn í stað þess að koma henni til okkar, þá væri ekki þessi kross. Svona þankar hafa auðvitað ósköp lítið gildi.en þeir sækja nú að manni samt. Nú eru liðin nítján jól frá því að ég sá síðast ljós á þessum krossi, en engin þeirra hafa liðið svo að mér stæði hann ekki ljóslifandi fyrir sjónum og svo mun verða um öll jól enn, meðan sansar mínir halda sér.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.