Feykir - 20.12.1989, Qupperneq 20
20 FEYKIR 46/1989
Hagyrðingaþáttur 65
Heilir og sælir lesendur
góðir. I síðasta þætti varðein
smá villa. en þar brenglaðist
önnur hendingin í íyrstu
vísunni. Rétt er hún þannig;
skilningsþurrð og trega
Þá er til þess að taka að
höfundur þáttarins heiðraði
borg Davíðs með nærveru
sinni um mánaðamótin síð-
ustu. Kom ég þangað á
föstudegi og vissulega var
það gaman fyrir Norðlend-
inginn að heyra sveifluna
hans Geirmundar óma út um
nálægt því hvern glugga þar.
Kannski er það vegna þess að
undirritaður semur ekki lög,
að hann spáir ekki í tilurð
þeirra svo ýkja mikið, en
textar eru mér alltaf forvitni-
legir. Og þennan föstudag
fannst mér ekki fara á milli
mála að fyrsta lag plötunnar
með texta séra Hjálmars, og
lagið með texta Aðalsteins
bæru af í þessari sveiflu.
Um það leyti sem þessi
dagur var að ljúka göngu
sinni var ég staddur á
dansstað sem ég kalla
Þórskaffi, þó hann heiti það
nú reyndar ekki lengur. Við
fatahengið hitti ég afskap-
lega fallega konu oggafmig
fljótt á tal við hana. Kvaðst
hún vera á leið á efri hæðina
og ætlaði að fá sér þar borð.
Væri mér velkomið að hitta
sig þar. Gerði ég það nokkru
síðar og fór vel á með okkur
fram eftir nóttu.
Þar kom þó að einhver
ókyrrð kom á frúna. Svipaðist
hún um eftir veski sínu og
kvaðst ætla fram á snyrting-
una og mála sig. Ekkert var
við því að segja, en erég hafði
setið hreyfingarlaus við borðið
í klukkutíma og beðið
afturkomu hennar, tók ég
upp vasabók mína og mun
hafa skrifað í hana eftirfar-
andi vísu:
Nærri hefur bóndann brjálað
að bíða eftir þér.
Sumar hafa minna málað
myndina af sér.
Ymiss vom ævintýri laugar-
dags og sunnudags, en þau
verða ekki skráð hér. Hitt fór
ekki á milli mála að um
svipað leyti og helginni lauk
hafði lagið með texta hins
leyndardómsfulla Hilmis heldur
betur náð forystu í sveiflunni,
og varð það tilefni næstu
vísu.
Andstæðurnar meta má,
myndin skýr er braga vinum.
Nú er Hilmir ofan á
Aðalsteini og prófastinum.
Ein af þeim bókum sem
auglýstar eru til sölu nú fyrir
jólin eru bernskuminningar
Björns .lónssonar læknis
(Bjössa bomm). Hér kemur
vísa eftir hann sem hann
kallar: Með hækkandi sól, og
á hún vel við á þessum tíma.
1 desember ég daufur var
í dálkinn, engu sáði.
A jörfagleði í janúar
jafnaðargeði náði.
Einhverju sinni henti Björn á
lofti fyrripart sem mun hafa
birst í vísnaþætti í Þjóðviljanum,
og varð úr þessi staka.
Fýkur í hin fornu skjól,
fölna vinakynni.
Halda verð ég heilög jól
með hundtíkinni minni.
Vekjum athygli á eftirtöldum framleiðslu-
vörum vorum, sem eru í háum gæðaflokki
LYTOL — Sótthreinsandi sápa fyrir matvælaiönaöinn.
KLÓR — 15%.
SÁM-SUPER — Véla-, tækja- og gólfhreinsiefni.
HANDOL — Fjölhæf hand- og baösápa.
SÁM-SILIKON — Alhliða rakavari. Afbragðs smurefni.
RESOL SUPER — Olíuhreinsir.
GAMA-SPEED — Fljótvirk ryðolia með grafít.
SÁM 2000 TÚRBÓ olíu- og sápuhreinsar samtímis.
TEPPANOL — Froðuhreinsir fyrir teppi, húsgagnaáklæði o.m.fl.
ORIGINAL — Tekk- og palisander viðarolía.
DÍMA — Háþrýsti þvottatæki, margar gerðir.
SÁMS UPPÞVOTTALÖGUR — með sítrónuilm.
VANDERS — handþvottakrem fyrir verkstæði, prentsmiðjur,
málningarvinnu o.fl.
Einnig vidurkenndar pappirsvörur og aðrar rekstrarvörur fyrir
matvælaiðnad og aðra vinnustaði.
ÞÚ HRINGIR OG VIÐ SENDUM SAMDÆGURS.
r
Oskum Norðlendingum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi árum
Ágúst Jónsson frá Sval-
barði er höfundur að næstu
vísu sem ber yfirskriftina:
Minning.
Stundin ljúf sem liðin er
líður seint úr minni.
Eg mun ávallt þakka þér
þessi stuttu kynni.
Önnur vísa sem hér kemur
eftir Ágúst ber yfirskriftina:
Hún beið á Seltjarnarnesi.
Ein hún vakti og alltaf beið
eftir manni svöngum.
En ýmsum þótti örðug leið
inn að Gróttutöngum.
Ein vísa kemur hér enn
sem ég held að sé eftir Ágúst.
Ef ég fengi aðra vist
eftir breyttum línum,
veldi ég mér vísast fyrst
varma af brjóstum þínum.
Það er Rúnar Kristjánsson
á Skagaströnd sem, er
höfundur næstu vísu, er ber
yfirskriftina Aðventa.
Myrkrið grúfir öllu yfir,
ekki vantar skuggana.
Þó má sjá að ljósið lifir,
lítið bara í gluggana.
Það hefur valdið mér
talsverðum vonbrigðum að
ekki skyldi berast frá ykkur
lesendur góðir, fyrir þennan
þátt, meira af vísum sem
tengdar eru jólum og
áramótum. Kannski hafa
allir verið svo uppteknir
vegna jólaundirbúnings, og
er ekkert við því að segja. En
ég bið ykkur að hugsa til mín
með efni þegar mestu
önnunum lýkur. Það er
skáldið undir Borginni Rúnar
Kristjánsson sem lýkur þætt-
inum að þessu sinni með
fallegri jólavísu.
Lág er nú á lofti sólin,
lýsir fátt um kaldan ál.
En bráðum koma blessuð
jólin
birtir þá í hverri sál.
Með innilegu þakklæti
fyrir samveruna á árinu sem
er að kveðja, bið ég alla
vísnavini að vera sæla að
sinni, og óska ykkur öllum
gleðilegra jóla.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
sími: 95-27154
Átaksverkefnið V-Hún.:
Fjarvinnsla
Fundur um fjarvinnslu var
haldinn á Hvammstanga
sunnudaginn 10. desember sl.
á vegum átaksverkefnis Vestur-
Húnvetninga. Þar kynnti
hópur um fjarvinnslu hug-
myndir sínar um að koma á fót
slíku fyrirtæki.
Fjarvinnsla er í stuttu máli
hvers konar tölvuvinnsla
sem hægt er að vinna hvar
sem er með tilkomu nýrrar
tækni sem gerir það að
verkum að upplýsingar geta
borist jafnvel heimshorna á
milli á örskotsstundu.
Fyrirkomulag fyrirtækisins
er í mótun því möguleikarnir
virðast gífurlegir. Líkur eru á
að opnuð verði skrifstofa sem
yrði miðstöð fjarvinnslunnar
í héraðinu. Hugmyndin er að
fólk geti tekið að sér ýmis
konar verk sem annaðhvort
verði unnið heima hjá
viðkomandi eða á skrifstof-
unn. Menn eru sammála
um að fara varlega af stað og
kynna sér alla möguleika
sem best. Áhugi virðist
hinsvegar mikill á að takast á
við þetta verkefni. Vestur-
Húnvetningum er bent á
fréttabréf fjarvinnsluhópsins.
Fyrsta tölublaðið er þegar
komið út sem fylgirit Sjón-
aukans. Fleiri munu væntan-
leg svo fólk í héraðinu geti
fylgst með málinu.
H
Börnum mínum og tengdabörnum og
öðrum velunnurum, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og árnaðar-
óskum á áttræðisáfmæli mínu þann
10. desember s.l., sendi ég mínar
hjartanlegustu þakkir, með óskum um
gleðileg jól.
Sigurlaug Andrésdóttir