Feykir - 06.06.1990, Qupperneq 1
6. júní 1990, 21. tölublað 10. árgangur
Óháð fréttablað á Norðuiiandi vestra
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
„Kvótakaup besta fjárfestingin”
segir Einar Svansson framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar,
sem stefnir að kaupum 1000 tonna á árinu
„Ég var nijög ána'gður þegar
ég koni heim og heyrði að
menn hefðu verið að bjóðasl
til að kaupa 2000 tonna kvóta.
A þessu sér maður að það er
skilningur hérna i hænum fyrir
kvótakaupum og ég hef trú á
að fleiri aðilar eigi eftir að
koma inn í þetta mál. Því
1000-1500 tonn í kvóta er
Allt á fullu fyrir landsmótið og svimandi
upphæðir boðnar fyrir húsnæði:
„Aðeins heyrst álíka í
gömlu ævintýrunum”
Óðum styttist í l.andsmót
hestamanna sem fram fer á
Vindheimamelum i hyrjun júlí.
I'ftirspurn eftir húsnæði í
nágrenni mótssvæðisins hefur
verið gifurleg og af leigugjaldi
sem hoðið er, heyrast stjarnfræði-
legar tölur. Óstaðfestar fréttir
herma að þvskur harón sé húinn
að leigja húsnæði á Sauðárkróki
og greiði fyrir það .100 þúsund
krónur. Dálagleg summa fyrir
eina helgi, ef satt er. Ekki að
undra að einn ágætur hestamaður
i héraðinu liafi sagt: „ Það eru svo
ótrúlegir peningar kringum sportið
hjá þessu fólki, að maður hefur
hara heyrt um svoleiðis í gömlu
ævintýrunum.
Sveinn Guðmundsson lor-
maður 18 manna framkvæmda-
nefndar mótsins gat hinsvegar
staðfest að erfiðlega getigi að
útvega þeim gesturn húspláss.
sem þess óskuðu. Mótsstjórnin
gerir ráð fyrir um 10-12 þúsund
gestum. þar af einhverjum
þúsundum erlendis frá.
Undirbúningur mótsins er
búinn að standa yfir i mörg ár og
hefur kostað ómælda vinnu.
Verklegar framkvæmdir á móts-
svæðinu á Vindheimamelum
hafa kostað einhvers staðar á
bilinu 10-20 milljónir. Vonast er
til að þeir peningar skili 'sér og
vel það. Aðgangseyrir verður
4500 krónur fyrir fullorðna yfir
allan mótstímann. Þannig að el
aðsóknarspá stenst verður velta
mótsins bara í aðgangseyrinum
40-50 milljónir.
Gífurlegt starfslið þarf i
kringum mótið. Félagar i
hestamannafélögunum í hérað-
inu. Stíganda. Léttfeta og Svaða
mtinu inna af liendi 8 tíma
vaktir. að fjölda til 900-1000
dagsverk.
alveg á við eina steinullar-
verksmiðju fyrir hyggðalagið”,
sagði Einar Svansson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar.
„Jú, við erum alltaf að
brasa í kvótakaupum. Það er
erfitt að segja nákvæmlega til
um hvað við erum búnir að
kaupa mikið, en á að giska er
það 4-500 tonn í framtíðar-
kvóta, fyrir utan 300 sem
munu bara nýtast okkur í ár.
Við ætlum okkur að kaupa
1000 tonn í ár, en sjálfsagt er
það rétt hjá Brynjari og þeim
K-listamönnum að vanti
2000 tonn til viðbótar”, sagði
Einar um kvótakaup Fiskiðj-
unnar.
Einar var spurður að því
hvort Hraðfrystihúsið á
Hofsósi sem er einn eignar-
aðili að Skagfirðingi, kæmi til
með að fá eitthvað af þessum
kvóta til vinnslu. Kvað hann
svo ekki vera: „Menn verða
að greiða fyrir kvótann, það
gefur hann enginn”.
Að sögn Einars hefur ekki
fallið úr dagur hjá Fiskiðjunni
síðan einhvern tímann í
vetur, og hann byggist við að
nóg yrði að gera hjá
fvrirtækinu það sem eftir
væri ársins. Fiskirí var
dræmt hjá togurunum í maí,
en hráefnisöflunin bjargaðist
með því að fá skip að með
fisk. sem veiddur var upp í
keyptan kvóta.
Pétur Sævarsson verkstjóri HFH:
Lítil hagræðing í því að við
fáum of lítið af togurunum
„Jú, það hefur hangið í því að
lialda uppi vinnu fyrir fast-
ráðna fólkið undanfarið, en
annars höfum við haft alltof
lítiö hráefni alveg frá áramót-
um. Þær voru nokkrar
vikurnar í vetur sem lítið sem
ekkert var að gera hjá okkur.
Málið er það að við fáum
alltof litinn hlut af afla
togaranna", sagði PéturSævars-
son verkstjóri í Hraðfrystihúsinu
á Hofsósi.
Fastráðið fólk í HFH er
um 20 að sögn Péturs og um
15 lausráðnir. „Það hefur
stundum verið þannig að það
hefur þurft yfirtíð í Fiskiðjunni
til að vinna fiskinn. Okkur
finnst það skrýtin hagræðing
hjá þeim kaupfélagsmönn-
um, því við erum gegnum-
sneytt með um 39f meiri
framlegð úr vinnslunni en
þeir hjá Fiskiðjunni og alveg
jafngóða nýtingu”, sagði
Pétur.
Ástæðuna fyrir rneiri fram-
legð hjá HFH segir Pétur
vera vant starfsfólk. „Hér
erum við búnir að vera með
sama fólkið í mörg ár og
afköstin eru góð. Hjá þeim á
Króknum er meira afóvönu
tölki. unglingum, ogafköstin
því ekkijafngóð’ksagði Pétur.
Birni Sverrissyni eldvarnareftirlitsmanni á Sauðárkróki er
ýmislegt fleira til lista lagt en fella hreindýr á ofsahraða.
Hann er hreint snillingur að gera upp gamla bíla, eins og
þennan Ford '30 sem mun birtast á götum bæjarins von
bráðar. Sjá viðtal við Björn á 4. síðu.
Meirihlutinn fæddur
víðast hvar
Meirihluti liefur verið mynd-
aður innan bæjarstjórnanna á
Blönduósi, Siglufirði og Sauðár-
króki. Viðræður eru langt
komnará Hvammstanga, en á
Skagaströnd eru viðræður
Alþýðuflokks, framsóknar og
framfarasinnaðra í biðstöðu
eftir að Alþýðubandalagsmenn
kærðu úrskurð á ógildingu
utankjörstaðaratkvæðis. Það
gæti breytt niðurstöðu kosn-
inganna.
D-listi sjálfstæðisflokks og
H-listi vinstri manna og
óháðra hafa náð samkomu-
lagi um meirihlutasamstarf í
bæjarstjóm Blönduóss. Ofeigur
Gestsson verður áfram bæjar-
stjóri og Pétur Arnar
Pétursson af H-lista forseti
bæjarstjómar. K-listi, félags-
hyggjufólks verður þ\í í
minnihluta á Blönduósi, en
hann var í meirihluta með H-
lista á síðasta kjörtímabili.
Það var ágreiningur um
áherslur í hafnarmálum sem
kom í veg fyrir áframhald-
andi samstarf þessara aðila.
Eins og frá var greint í
síðasta Fevki verður valda-
jafnvægi á Króknum óbreytt
frá síðasta kjörtímabili. Sjálf-
stæðið, jafnaðarmenn og
óháðir í meirihluta. og
allaballar og framsókn í
minnihluta. Knútur Aadnegard
D verður forseti bæjarstómar.
Björn Sigurbjörnsson A
formaður bæjarráðs og K-ið
verður með formennsku i
veitu- og hafnarstjörn.
Alþýðuílokkur og óháðir
hafa myndað meirihluta á
Siglufirði. I kjölfar þess mun
Björn Valdimarsson taka við
starfi bæjarstjóra af ísaki
Olafssyni. Siglfirðingar metti
reynslu Björns af fjárhags-
legri endurskipulagningu fyrir-
tækja, en hann hefur undan-
farið verið verkelnisstjóri
þróunarverkefnis á sviði
atvinnumála á Siglufirði.
Flest bendir til að G-lisii
Alþýðubandalags og óháðrti
og H-listi félagshyggjufólks
verði áfram í meirihluta á
Hvammstanga. Meirhlutinn
verður ekki eins sterkur þetta
kjörtímabil á Hvanimstanga
og það síðasta. hefur nú 3 i
sttið 4 áður.