Feykir - 06.06.1990, Side 8
6.júní 1990, 21. töluhlað 10. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
Sýnum nýja bíla!
Til afgreiðslu strax
frá Ðrimborg og Volvo
Einnig úrval af notuðum bílum
Bílasalan Borgarflöt 5
Sími 95-35405 - Sauðárkróki
l>að verður (ekið til hönduiium í Spákonufellshorginni í sumar.
Skagaströnd:
Grænir fingur á lofti í sumar
Skagastrendingar færast ekki
lítið í fang í sumar, þegar
hyrjað verður að græða upp
Spákonufellsborgina með trjá-
gróðri. Akveðið var á síðasta
ári að l'riða Borgina og í
sumar verður komið fyrir 35
þúsund hirkiplöntum í hlíðum
hennar. Vegna þessa verður
að girða á að giska 5-6
Fyrir landsmót:
Svartá brúuð úr
stáli við Saurbæ
Ein þeirra framkvæmda sem
ráðist hefur verið í vegna
Landsmóts hestamanna, er
gerð brúar á Svartá við
Saurhæ. Kemur það til með að
létta mjög á umferð á
mótsstaðinn, en borið hefur
við að umferðarteppa myndist
á Hólmabrautinni þegar hesta-
mannamót eru á Vindheima-
melum.
Það er Lýtingsstaðahreppur
sem sér um brúarbygginguna,
en fær framlag til hennar frá
ríkinu. Þegar hefur verið
veitt ein milljón, en brúin
mun kosta tæpar fjórar
milljónir.
Það var stálsmiður í
Reykjavík, fæddur og uppal-
inn á bökkum Svartár,
Sveinn Pálmason frá Reykja-
völlum, sem setti fram
hugmynd um gerð stálbrúar
á Svartá. Tilboð hans þótti
hagkvæmt og var tekið.
Bruin sem er 30 metrar að
lengd. hefur verið srníðuð í
þrem hlutum syðra. Burðar-
virkið eru stálsúlur fylltar
steypu. Verða þær reknarog
grafnar niður um næstu
helgi, en þ\í verki þarf að
vera lokið fyrir miðjan
mánuð. áður en fiskigengd
byrjar í ána.
„Hreppsnefnd Lýtinsstaða-
hrepps hefur í rúman áratug
óskað eftir Ijárveitingu til
brúar þarna. Hreppurinn á
gott slæjuland rétt við
Melana. sem heitir Borgarey.
Þar hafa bændur úr hreppnum
fengið slæjur. og það hefur
\erið ákallega óþægilegt fyrir
þá að aka þennan stóra hring
niður í Hólminn”. sagði Elín
Siguiðardóttir odd\iti í Sölva-
nesi.
kílómetra langa girðingu, til
að verja nýgróðurinn ágangi
búfjár.
Það er ekki hægt að segja
annað en Skógræktarfélagið
á Skagaströnd. sem stofnað
var fyrir tveimur árum, starfi
af miklum krafti. I trjáreit
félagsins, við Hólaberg í
útjaðri bæjarins, verða í
sumar gróðursettar 4500
plöntur. Fékk félagið úthlutað
100 þúsund krónum úr
plastpokasjóði Landverndar
til þess verks.
Það er Höfðahreppur sem
stendur að trjágræðslunni i
Spákonufelli í samvinnu við
félaga í Skógræktarfélaginu.
Mun vinnuskólinn á Skaga-
strönd leggja þessu málefni
lið ásamt bæjarstarfsmönnum.
Það er því alveg greinilegt að
„grænu fingurnir”, verða
margir á Ströndinni í sumar.
Tombóla
Þessir krakkar héldu á
dögunum tombólu og létu
ágóðann 3000 kr. renna til
Hjúkrunar- og dvalarheimil-
isins. Frá vinstri: Einar
Þorbergur Tryggvason, Ingunn
Asta Jónsdóttir, Guðný
María Bragadóttir og Val-
gerður Jóna Jónbjörnsdóttir.
Sauðárkrókskirkja:
Framkvæmdir
hafnar
Nýlega hófust framkvæmdir
\ið lengingu Sauðárkróks-
kirkju. Verður kirkjan lengd
um 3,6 metra og er áætlað að
því verði lokið fyrri liluta
nóvembermánaðar.
Meðan á framkvæmdum
stendur verður messað í
Safnaðarheimilinu og Sjávar-
borgarkirkju.
I síðustu viku afhenti
Kvenfélag Sauðárkróks kr.
100.000,- í orgelsjóð Sauðár-
krókskirkju. Formaður orgel-
kaupanefndar, Gestur Þor-
steinsson, þakkaði góða gjöf.
Gat hann þess að vonirstæðu
til að nýtt orgel yrði komið í
kirkjuna við opnun að nýju
eftir viðgerð.
A myndinni eru frá vinstri:
Séra Hjálmar, Guðrún Andrés-
dóttir, Engilráð Sigurðar-
dóttir. Steinunn E. Friðþjófs-
dóttir, Gestur og Arni
Jónsson.
Kosið í 10
sveitahreppum
um næstu helgi
Kosið verður í 10 hreppum í
kjördæminu á laugardaginn
kemur, en sveitarstjórnir
þeirra sóttu um frestun á
kosningum til ráðuneytis.
Samkvæmt bestu vitnesku
Feykis eru listakosningar í
tveim hreppum; Skarðshreppi
í Skagafirði og Sveinsstaða-
hreppi í A-Llún, en á öðrum
stöðum er um óhluthundna
kosningu að ræða.
Hrepparnir eru þrír í
Skagafirði: Skarðshreppur,
Skefilsstaðahreppur og Lýtings-
staðahreppur. Tveir í A-
H ú n., S ve i n ss ta ða h rep pu r
og Skagahreppur. I V-LIún.
verður kosið í fimm hreppum:
Staðar-, Fremri-Torfustaða-,
Ytri-Torfustaða-, Kirkju-
hvamms-, og Þorkelshóls-
h reppur.
GÆÐAFRAMKOLLUN
BÓKABITO
BRYNJARS