Feykir - 21.11.1990, Page 3
41/1990 FEYKIR 3
Lifað sér til gamans
í Auðkúlurctt á seinni búskaparárum.
Þegar mín kynslóð var ung.
sökkti hún sér niður í sögur af
Grími nokkrum grallara,
mjög svo hressilegum náunga.
Framhoð á bókum í þessum
dúr hefur verið fremur lítið á
undanförnum árum. en nú er
nýkomin út grallarasaga
mikil: Ég hef lifað mér til
gamans, heitir hún og geymir
lífshlaup kempunnar Björns
Fálssonar alþingismanns, hónda,
kaupfélagsstjóra o.fl. á Löngu-
mýri. Eflaust fýsir marga til
að eignast þessa hók og gefur
Feykir henni góða einkunn.
Þetta er ábyggilega með þeim
allra líflegustu og skemmti-
legustu xvisögum sem út hafa
komið lengi, enda hefur Björn
karlinn öðrum fremur kunnað
að krydda lífið og tilveruna.
Ekki skemmir söguna að
karlagrobbið virðist hafa
tekið sér bolfestu í gamla
liróinu á Löngumýri. Fyrir-
hyggjusemin er svo sannar-
lega við lýði á þeim bæ í
bókinni, meira að segja
hundarnir höfðu hana, gengu
afsíðis þegar þeir fundu að
hinsta stundin var komin.
Raunar er sagan miklu
meira en ævisaga Björns
sjálfs. Hún er saga forfeðra
hans og saga stjórnmála-
þróunar í tíð Björns, séð frá
hans sjónarhóli. Og Björn er
næmur á mannlegan breisk-
leika, hvort sem var í
sveitinni eða á þingi. Til að
mynda þegar hann nefnir til
sögunnar Gísla nokkurn á
Höllustöðum:
Skapaður til að ráða
..Einhverju sinni kemurGísli
í heimsókn og fer bónarveg
að mömmu. Hún tekur að
vanda vel á móti honum.
Húseign til sölu
Til sölu er lítil fjögurra
herbergja íbúö aö Skógar-
götu 6 neöri hæð.
Upplýsingar veitir Ágúst í
simum 35900 e.h. og 35889 á
kvöldin. Einnig Obba og
Reynir í síma 35457 i hádegi
og á kvöldin.
Til leigu
2ja herbergja ibúö til leigu
upp í Hverfi. Upplýsingar í
síma 36516, Margrét eða
Guðrún í sima 35782.
Til leigu á Sauðárkróki
herbergi með aðgangi að
eldhúsi, þvottavél og sjón-
varpi. Hálft fæði innifalið i
leigunni. Hentugt fyrir skóla-
fólk. Laust strax eða eftir
áramót. Upplýsingar í síma
35748 i hádeginu og á
kvöldin.
gefur honum kaffi og lofar að
hlaupa undir bagga með
honum, en les honum
jafnframt pistilinn. ,,Það er
ekkert vit í hvernig þú hegðar
þér Gísli minn”, segir hún.
„Þú verður að reyna aðsjá að
þér og fara að vinna eins og
við hin”.
..O. ó. að þú skulir tala
svona kona”. segir Gísli þá.
„Veistu ekki að ég er
skapaður til að ráða?” Þessi
ummæli hafa oft hvarflað að
mér á lífsleiðinni, ekki síst
meðan ég var að vasast í
pólitíkinni. Það er nefniléga
margur Gísli á Höllustöðum”.
Jón á Akri
Og Bjöm segir skemmtilega frá
kosningabaráttunni. 1959 vann
hann það afrek að fella hinn
gamalgróna þingmann Hún-
vetninga Jón Pálmason.
„Jón Pálmason stóð sig
eins og hetja; hann sagði við
þá. sem eftir voru við
talninguna, að þeir skyldu
vera kátir, koma með sér
fram að Akri og gera sér
glaðan dag.
Mér þótti leiðinlegt að
verða til þess að fella vin
minn Jón Pálmason; ég vissi
að honum sárnaði það. En
hann hafði nú leikið marga
frændur mína grátt: velt
þeim upp úr lambaspörðum
hverjum á fætur öðrum;
Guðmundi Ólafssyni í Ási
fyrst; síðan Jón í Stóradal; og
Hannesi bróður, hann fékk
nú marga byltuna hjá
honum.
Jón á Akri var enginn
engill. þótt margt væri gott
við hann; hann gat til dæmis
verið stóryrtur. efhann vildi
það \ ið hafa: þeirkunnu það
lleiri af Pálma-ættinni; ef
þeir skömmuðu menn á
annað borð. gerðu þeir það
ansi vel.
Hannes bar sig karlmann-
lega: Guðmundur í Asi tók
aftur nærri sér að falla. Þess
vegna fagnaði ekkja hans,
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
þegar ég var kosinn; hún var
rúmlega níræð. og sagði
sigurglöð: „Nú er Guð-
mundar míns hefnt; nú get ég
dáið róleg”. Litlu síðar
andaðist hún”.
Eykon himnasending
Það bar til tíðinda í
kosningunum 1967. aðdrott-
inn sendi mér Eykon, Eyjólf
Konráð Jónsson, sem skipaði
þriðja sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins; það var himna-
sending fyrir mig að fá hann;
þá þurfti ég ekki lengur að
slást eingöngu við Ragnar
Arnalds. Evjólfur er snagg-
aralegur maður. snúnings-
piltur og hefur trú á því að
hann hafl dálítið fjármálavit.
Á Hvammstangafundi sagði
ég, að hann væri besta efni í
smala, sem ég hefði kynnst;
og bændur höfðu gaman af
því. Einnig lét ég þess getið,
að ég hefði verið að baksa við
að koma lambi á spena. en
gengið illa; þá hefði mér verið
hugsað til Eykons, því hann
ætti svo gott með að beygja
sig!
Þegar ég sagði þetta. hlógu
bændumir; og Eykon skemmti
sér vel líka. Að fundinum
loknum biðu margireftir mér
niður á vegi og vildu spjalla
við mig; það gildir á
kosningafundum að koma
mönnum í gott skap”.
SAMVINNUBOKIN
Raunávöxtun Samvinnubókarinnar árið 1989 var 5.01 %
Nafnvextir Samvinnubókarinnar eru nú 10.75%
Ársávöxtun er því 11.04%
HAGSTÆÐ ÁVÖXTUN í HEIMABYGGÐ
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA