Feykir - 21.11.1990, Blaðsíða 5
41/1990 FLYKIR 5
Á Málmcyjarfjöru.
en fullorðna fólkið. Hann
skapaði mikla erfiðleika hjá
mörgum, það var hart í ári".
En hvernig var að \'era úti í
Málmey á dimmum vetrar-
kvöldum þegar verstu vetrar-
veðrin geisuðu. Og hvernig
var að halda jól þarna úti?
Brast máttur
við Jarðfallið
,.Ég man ekki eftir neinu
sérstöku í sambandi við
vetrarveður, og ég minnist
þess ekki að mér hafi
nokkurn tíma orðið kalt. Við
höfðum olíu larnpa svo
birtan var nóg. Pabbi sá til
þess að ekkert vantaði. Hann
smíðaði meira að segja
ákaflega fallegt jólatré, mál-
aði það og setti á það kerti.
vafði það lyngi svo að þetta
var eins og alvöru tré”.
Ástæðan fyrir því að
foreldrar Jónu, Frans og
Jóhanna, fluttu í land 1914.
var öðru fremur sviplegur
atburður sem átti sér stað 9.
janúar 1914.
..Þessi dagur líður mér
aldrei úr minni. Pabbi lá
veikur í rúminu og ég var úti
að snúast við kindurnar.
Hjálmar bróðir minn 14 ára
gamall og 16 ára vinnupiltur
hjá okkur. áttu aðfara niður í
fjöruna og tína ntor (smá-
spýtur). Kindurnar runnu
niður í Jarðfallið hjá mér og
þegar ég ætlaði að fara á eftir
þeim var eins og mig brysti
gjörsamlega máttur. Skömrnu
síðar sé ég svo að fólkið
kemur hlaupandi heiman frá
bænum og ég heyri á
hljóðunum í mömmu að
eitthvað voðalegt hafði gerst.
Fyrst að Hjálmar var ekki
nteð þeim hélt ég í fyrstu að
hrunið hefði úr björgunum
ofan á hann.
Daprir dagar
Strákanir höfðu þá stolið
byssu frá pabba og farið með
hana ofan í fjöru. Hvað þar
gerðist veit enginn almenni-
lega. en vinnupilturinn kom
heim og sagði blátt áfram við
mömmu: „Ég skaut Hjálmar.
— Hvernig heldurðu að hafi
verið fyrir hana að fá þetta
svona beint framan í sig? Það
var hinsvegar ekki að sjá á
piltinum að hann tæki þetta
mikið nærri sér. Strax tveim
dögum seinna þegar líkið
stóð uppi var hann farinn að
gantast við strákana. Svo á
jarðarförinni, fannst mér
óviðkunnanlegt að hann tróð
sér innst í kórinn hjá hinu
fólkinu. Þessi piltur var svo
sendur í land. pabbi taldi sig
ekki geta haft hann lengur úti
í eynni.
Hjálmar bróðir var öllum
mikill harmdauði. Við vorum
ákaflega samrýmd og mér
fannst lengi vel að hann væri
alltaf með mér. Margoft
birtist hann mér í draumi og
sagði mér þá gjarnan til um
það þegar gestir kæmu næsta
dag. Og það brást varla að
bátarnir birtust við Kögur-
inn hjá Þórðarhöfða á þeim
tíma sem hann hafði tilgreint.
Það vargestkvæmt í Málmey
þegar við vorum þar.
Það fer illa
um mig
Það var svo 20 árum seinna
sem Hjálmar birtist mér enn í
svefni. Þá voru jarðskálftamir
miklu við Dalvík nýafstaðnir.
Hann kvartar undan því að
færi illa um sig. Á sama tíma
deyr Sigurður uppeldisbróðir
minn. Hjálmar var grafinn í
tveggja manna gröf, sem nú
var grafin upp til að koma
kistu Sigurðar við hliðina.
Þegar mamma tók lokið af
gröfinni, kom í ljós að kista
Hjálmars hafði dottið ofan af
upphækkun sem komið var
fyrir undir kistunni og lá hún
á hiiðinni í gröfinni.
Við fluttum svo í land um
vorið. að Skálá í Sléttuhlíð.
En svo þoldu lóreldrar mínir
ekki að hafa eyna fyrir
augunum á hverjum degi og
fluttu aftur út að fjórum
árum liðnum”.
Og þau buðu líka þeirri
hjátrú byrginn, að ekki mætti
búa í 20 ár sainfleytt í eynni,
þá brynni íbúðarhúsið?
,..Iá. já. Pabbi var staddur
norður á Akureyri og var þá
spurður að því hvort að hann
ætlaði ekki að flytja áður en
þessi tímamót kæmu. Þá
sagði hann að þetta yrði
einmitt 20. veturinn sinn í
eynni. Og þeir urðu 22 án
þess að húsið brynni. Hann
byggði stórt tveggja hæða
hús í eynni”.
Gekk þrisvar til
Reykjavíkur
Jónu er tíðrætt um föðursinn
og hefur greinilega þótt
mikið til hans koma. Hann
þurfti að reyna ýmislegt á
lífsleiðinni og Jóna hefur
sömuleiðis þurft að hafa fyrir
hlutunum eins og margir.
Þegar hún á unglingsárum
þjáðist af exemi og þurfti að
fara suður til lækninga, vílaði
hún ekki fyrir sér að ganga til.
Reykjavíkur og til baka. Það
gerði hún í þrígang og var
stundum samferða landpóst-
inurn á ferðum sínum. Á
meðan á einni ferðinni stóð
geysaði spanska veikin. Jóna
veiktist í Reykjavík, lá viku
þar og þurfti síðan að fara í
sóttkví öðru hvoru ntegin við
Holtavörðuheiðina.
Ekki leist henni betur en
svo á tvo fylgdarmenn sem
urðu henni samferða norður í
Fornahvamm, en var hins-
vegar svo heppin að fá þar
ráðleggingar manns sem
útvegaði henni vetursetu á
Ospaksstöðum norðan heiðar-
innar. Þar var hún á þriðja
mánuð og hafði nóg að gera
við að hjálpa barnmargri
fjölskyldunni. Þegar Jóna
gekk heim um vorið fylgdi
hún símalínunni í Skaga-
fjörðinn niður í Gönguskörð
og kom að mógröfunum
skammt ofan Nafanna. Frá
þessu og ýrnsu l’leira hafði
Jóna G. Fransdóttiraðsegja.
en hér verður staðar numið
að þessu sinni.
Nýjar METBÆKUR:
Nú eru komnar METBÆKUR fyrir
börn og unglinga, með mynd af
bangsanum PADDINGTON á kápu,
ítveimurlitum, RAUÐARog BLÁAR.
Þeir eigendur METBÓKA, sem óska
geta skipt yfir í þessar bækur.
METBÓK er 18 mánaða sparibók.
Hver innborgun er aðeins bundin
í 18 mánuði.
Eftir það er hún ávallt laus til
útborgunar, en heldur engu að síður
óskertum vaxtakjörum.
EKKERT ÚTTEKTARGJALD.
Heildarávöxtun Metbókar 1989
var 26.36%
Verðtryggð kjör nú eru 5.75%
umfram verðbólgu
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI
Útibúið á Sauðárkróki
Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð