Feykir


Feykir - 12.12.1990, Blaðsíða 1

Feykir - 12.12.1990, Blaðsíða 1
rafsja Sérverslun með raftæki Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Sauðárkróksbær gengst fyrir stofnun félags um vatnspökkun Sl. laugardag voru á Kirkjutorgi tendruð Ijósájólatrésem er gjöf frá Kongsbergi vinabæ Sauðárkróks í Noregi. Við það tækifæri flutti blásarasveit tónlistarskólans létt lög undir stjóm Guðbrands J. Guðbrandssonar og barnakór söng undir stjórn Pálínu Skúladóttur. Forseti bæjarstjómar Knútur Aadnegaard flutti ávarp og jólasveinarnir litu við að venju, þrátt fyrir annriki. í tilefni 30 ára á Sauðárhæðum: Listaverk við sjúkrahúsið Skagstrendingar viðbúnir hörðum vetri: Byggja „snjó- skýli” við húsin Hjá byggingaraðilum á Skaga- strönd liggja nú fyrir nokkrar beiðnir uni gerð „snjóskýla” við dyr húsa í staðnum. Bæjarbúar virðast reynslunni ríkari af niiklum snjóalögum í plássinu tvo undanfarna vetur, og ætla að fyrirbyggja að þeir þurfi á aðstoð nágrannanna að halda til að komast út úr húsum sínum eins og gerst hefur. Veðrið hefur leikið við byggingarmenn á Ströndinni í haust eins og aðra útivinnumenn. Næg atvinna er hjá þeim meðan tíðarfar helst, en hætt við að minna verði að gera ei'tir áramótin ef vetur leggst að. Reyndar er það engin nýlunda að byggingarmenn út um landið verði að stytta vinnutíma sinn yfir háveturinn, meðan aðeins er hægt að stunda innivinnu, en þegar kemur fram á veturinn og vorið nálgast fer venjulega að lifna yfir lilutunum að nýju. Löndunarkraninn á bryggju- kantinum á Króknum eyði- lagðist nánast i siðustu viku og er nú ónothæfur. Skafti rak sig í hann og kengbeygði þegar skipið var að leggjast að bryggju. Farið er að leggja drög að útvegun nýs krana, sem líklega verður settur upp í byrjun næsta árs. Reyndar var kraninn orðinn Á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku var samþvkkt að Sauðár- króksbær gengist fyrirstofnun undirbúningsfélags um bygg- ingu og rekstur vatnspökkunar- verksmiðju á Sauðárkróki. Jafnframt fól bæjarstjórn atvinnumálanefnd bæjarins að vinna að framgangi málsins og leita cftir hluthöfum. Fyrir liggur ákvörðun Byggðastofnunar um aðild að undirbúnings- félaginu. Bæjarfulltrúar lýstu áhuga sínum á framgangi þessa máls. Knútur Aadngaard forseti vildi samt vara við of miklum væntingum og lét þess getið að þrátt fyrir að Starfsfólk rækjuvinnslunnar Særúnar á Blönduósi fær jólafríið um næstu helgi, þar sem einungis verðurhráefni til vinnslu út þessa viku. Er það ákaflega lélegur. Skipin eru ekki vön að leggja svo innarlega í höfninni sem kraninn er, en nýafstaðin dýpkun hafnarinnar gerir það nú kleift. Skipstjómendur á Skafta vöruðu sig ekki á því hvað kraninn stendur framar- lega á bryggjunni, en það var nauðsynlegt vegna þess hve bóman er stutt. mjög fjársterkir aðilar syðra hefðu í tvö ár reynt fyrir sér í vatnsútflutningi hefði lítið miðað, og átti þar við Vatnsveitu Reykjavíkur ásamt Vífilfelli og Hagkaupum. Greinilegt er að margir hafa hug á útflutningi fersks lindarvatns. Akva hefurflutt út vatn frá Akureyri í smáum stíl, og a.m.k. þrír aðilar syðra eru í startholunum. Vatnsútflutningur frá Húsa- vík og Fáskrúðsfirði hefur komið til tals, og einnig eru uppi hugmyndir um útflutn- ing margra milljóna ára gamals vökva úr bræddum Vatnajökli. sökum þess að kvóti bátanna er uppurinn, bæði hjá Nökkva og Gissuri hvíta á úthafs- rækjunni og Húna á innfjarðar- rækjunni. Húni var að enda við það sem hann má veiða í Flóanum á þessu ári, en Nökkvi og Gissur eru komnir á fiskitroll. Þessa vikuna verður aðallega unnið úr frosinni rækju, „þýtt upp”, að sögn Kára Snorra- sonar framkvæmdastjóra. Hann segir innfjarðarrækjuna rnjög litla og lélegt hráefni. þó svo að hún sé heldur skárri en í fyrra, svona 290- 350 stykki í kílóinu. Ailt eins var búist við að starfsfólk Særúnar missti vinnu sína fyrr. en útkoman er ríflegt jólafrí og síðan er búist við að vinna hefjist aftur á fullu upp úr áramótum. Sjúkrahús Skagfirðinga hefur fengið leyfi til að koma fvrir útilistavcrki við anddyri Hjúkr- unar- og dvalarheimilisins. Verkið sem er eftir Sverri Olafsson, gert úrstáli, verður afhjúpað þegar minnst verður 30 ára veru sjúkrahússins á Sauðárhæðum, væntanlega á fyrri hluta næsta árs. Að sögn Sæmundar Her- mannssonar framkvæmda- stjóra sjúkrahússins fékkst stuðningur listskreytingasjóðs mennntamálaráðuneytisins við uppsetningu verksins. Um leið og bæjarfulltrúar lögðu blessun sína yfir leyfisveitingu byggingamefndar, fögnuðu þeir uppsetningu verksins og sögðu að meira mætti vera um útilistaverk i bænum. Það sýndi sig að í öðrum bæjum, þar sem útilistaverk eru nokkur, settu þau skemmtilegan svip á. Sauðárk róksh öf n: Löndunarkraninn kengboginn og ónýtur Blönduós: Jólafrí í rækjunni Bflaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði Réttingar - Sprautun SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141 Almenn rafverkatakaþjónusta Frysti- og kæliþjónusta Bfla- og skiparafmagn ____l^T/>un!ll --- Sími: 95-35519 Bílasími: 985-31419 Aðalgötu 26 Sauðárkróki_Fax: 95-36019___

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.