Feykir


Feykir - 12.12.1990, Blaðsíða 8

Feykir - 12.12.1990, Blaðsíða 8
8 FEYKIR 44/1990 „Höfum komið Skagafirði inn á kort feröaskrifstofa" segir Jón Gauti Jónsson í Áningu, sem er að hefja störf að atvinnumálum Akureyrar „Ég hcf niikla ánægju af því að takast á við uppbyggingar- starf, og er mjög sáttur við að okkur Aningarmönnum skuli hafa tekist að ná þcim árangri í markaðssókn á þrem árum, sem ferðaskrifstofuaðilar töldu okkur þurfa fimm ár til. I>að má því segja að Aning standi á timamótuni í dag, uppbygg- ingarstarfinu sé að mestu lokið og ég treysti samstarfs- fólki mínu fullkomnlega til að lialda starfsemi Aningar áfram með ágætum. I>að freistaði því mjög þegar mér hauðst annað uppbyggingarstarf, að atvinnu- málum í mínum eiginlega heimabæ, Akureyri, og var ég ekki ýkja lengi að liugsa mig um. Þrátt fyrir að auðvitað komi maður til aðsakna ýmiss héðan”, segir ,Ión Gauti Jónsson kcnnari og fyrrum ritstjóri Feykis. Hann var nýlega valinn úr hópi nokkurra umsækjenda í nýtt starf, starfsmanns atvinnumálanefndar Akureyrarog tekur við því um áramótin. ..Það sem við höfum gert er að koma svæðinu inn á landakort ferðaskrifstofanna. Arangurinn hefur verið þannig. að gistinýting á sumarhótelinu í lieimavist FáS hefur aukist um nær 100% á hverju ári. þau þrjú ár sem Aning hefur haft það á leigu. og verður varla bætt til muna úr þessu, nema þá að júní og ágúst mættu vera betri. En við höfum svo sem lítið beitt okkur að hinni almennu umferð ferðamanna. Ég býst við að það sem Tindatóll hefur verið að gera undan- farið. árangur félagsins í körfuboltanum. sé sú besta auglýsing sem bærinn hefur fengið hin síðari ár, og það eigi eftir að skila sér í au k num ferða man nas tra u m i til bæjarins”. Því verður ekki á móti mælt að Jón Gauti Jónsson hefur nteð starfi sínu að markaðsmálum Aningar unnið ntikið og óeigingjart starf í þágu ferðamála Sauðárkróks og Skagafjarðar. ,.Jú, víst er maður búinn að eyða talsverðum tíma í þetta. en ég sé ekki eftir einni einustu mínútu. Það má segja að þetta hafi verið hreint sjállboðaliðastarf fyrsta árið. Mér reiknaðist til þegar ég gerði það upp. að ég hefði haft 20-30 krónur á tímann. Annað sumarið náðu endar hér um bil saman, en það er ekki fyrr en á þessu ári sem Aning skilar þokkalegri afkomu”. Og hvernig líst þér svo á nýja starfið? ,.Ég er bæði spenntur og kvíðinn. Þó ég hafi ýmislegt í pokahorninu. veit ég að það eru gerðar miklar kröfur til mín. og það reynir á að standa undir þeint. Annars held ég aðjgegnum störfmín sé ég vel undir þetta búinn. Skóla- og menntamál eiga sterk ítök í mér. og ég hef lengi haft áhuga á umhverfis- málum. Það er svo fjarri lagi að ég hafi einungis áhuga á ferðamálum. Ég hef áhuga á öllu sem snertir batn- andi mannlíf, einkanlega úti á landsbyggðinni”, sagði Jón Gauti að endingu. Feykir óskar honum góðs gengis í hinu nýja starfi. FUNDUR UM SORG OG SORGARVIÐBRÖGÐ VERÐUR í SAFNAÐARHEIMILINU Á SAUÐÁRKRÓKI MIÐVIKUDAGINN 12. DESEMBER KL. 21.00 ERINDI FLYTUR SIGURBJÖRN EINARSSON BISKUP, SEM HANN NEFNIR SORGINA OG GUÐ. ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR. VERSLIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI • SAMTÖK SÉRVERSLANA Á SAUÐÁRKRÓKI Oótatötito á og allt í mjúka pakkann MA f Cj etiö bornunum nytsama jólagjöf ^ Verslunin Kjukkakotid . Aðalgötu 21 - Sími 36636 J AMt tiÍ'SGWQ 7 ' (/fruatffard/nu&fina op atfá íJóia^atnaðinn (/ítníoðtc(k(a/þafcc(/nwc C tfttah uciótat Saumakistan ■ Sauöárkróksbúar Komiö og bragðiö bœjarins bestu Pizzur eöa takiö þœr rneö ykkur beim Jólaglögg og piparkökur Kakó og vöffíur meö rjóma Leyfiö braglaukunum aö njóta sín og komiö á HÓtel Mœlifell ÞÚ FÆRÐ JÓLAGJÖFINA HJÁ OKKUR ÞÚ ÞARFT •gy' BOKABUÐ VARLA ANNAÐ BKYNJARS J BLAFELL saudarkróki MUNH) VINSÆLU TOMMA hamborgarana okkar í jólaannríkinu Konfektí jólapakkann og til heimilisins Gott úrval á hagstæóu verði JÓLAFÖTIN OG GJAFIRNAR fyrir dömur og herra Fullt afnýjum vörum Gleðilegjól TÍSKUVERSLUN SKAGFIRÐINGABRAUT 9 SlMI 95-35899

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.