Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Blaðsíða 10
10 Fréttir Vikublað 11.–13. nóvember 2014 Stelpurnar fá aukahlutverkin Í myndbandaráðum framhalds- skóla á Íslandi eru níu prósent stelpur og 91 prósent strákar. Þá einkennast birtingarmynd- ir kven- og karlímynda í mynd- bandaefni framhaldsskólanema af hefðbundnum staðalímyndum og víða er að finna skýra tilvísun í klámvæðinguna. Þetta er með- al þess sem kemur fram í úttekt á félagslífi framhaldsskólanema sem Kolbrún Hrund Sigurgeirs- dóttir og Rakel Magnúsdóttir, meistaranemar í kynjafræði, unnu fyrir Samband íslenskra fram- haldsskólanema og Mennta- og menningarráðuneytið. „Það kom okkur á óvart að sjá að þessi birtingarmynd kynjanna sem var í skólablöðunum hérna áður fyrr hefur færst yfir í myndböndin,“ segir Kolbrún Hrund í samtali við DV. Hún segir skólablöðin oft hafa verið gagnrýnd hér áður fyrr, sérstaklega fyrir birtingarmynd- ir kynjanna. Þau hafi sýnt stráka í valdastöðu en stelpur hlutgerðar og settar upp með kynferðislegum hætti. „Það kom okkur á óvart að sjá að þetta hefur færst algjörlega frá skólablöðunum yfir í mynd- böndin. Að sama skapi sjáum við að myndböndin fá miklu meiri út- breiðslu en skólablöðin fengu, því þau birtast meðal annars á You- tube.“ Ójöfn tækifæri Kolbrún Hrund segir heilmikið vald falið í þessum myndböndum og að þau skapi ákveðna menn- ingu innan skólanna. „Einnig skapar þetta þeim tækifæri og reynslu sem nýtist þeim í fram- tíðinni,“ segir hún og bendir á að þekkir menn á borð við Hrað- fréttamennina Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson, sjónvarps- manninn Björn Braga Arnarsson og tónlistar- og sjónvarpsmann- inn Friðrik Dór Jónsson hafi allir verið í myndbandaráði síns skóla. „Okkur þótti því áhugavert að sjá að stelpur virðast ekki hafa þetta sama tækifæri,“ segir Kolbrún Hrund. Í samtölum Kolbrúnar Hrundar og Rakelar við formenn nemenda- félaga kom í ljós að fáar stelpur sækja jafnan um í myndbanda- ráði. „Enda teljum við að það vanti fyrirmyndir fyrir stelpur á þess- um vettvangi,“ útskýrir Kolbrún og bendir á að þær fáu stelpur sem komast í myndbandaráðin fái líka hlutverk í takt við það. „Þær eru al- gjörir aukahlutir í myndböndun- um. Í einu myndbandinu syngja strákarnir um að þeir ætli heim með fjórar í takinu og að þeir fái steik og tott á föstudögum. Þá sést í stelpu undir borði að veita munn- mök. Þessi kvenhlutverk eru ekki beint til þess fallin að laða aðrar stelpur að,“ segir Kolbrún Hrund. Falla á Bechdel-prófinu Ellefu myndbönd frá myndbanda- félögum skólanna voru skoðuð með jafnrétti til hliðsjónar en það var gert með svokölluðu Bechdel- prófi. Eins og kunnugt er spyr Bechdel-prófið þriggja spurn- inga: Eru að minnsta kosti tvær nafngreindar konur í myndinni? Tala konurnar saman? Tala þær um eitthvað annað en karlmenn? Einungis þrjú myndbönd stóð- ust prófið. Kolbrún segir vanta fjölbreytni í myndböndin. „Þetta er alltaf sama týpan. Alltaf sama karlmennskan og sami kvenleik- inn sem er sýndur í öllum þessum myndböndum. Það eru allir gagn- kynhneigðir, allir grannir og falleg- ir. Og þetta er myndin sem yngri krakkar hafa af menningu og fé- lagslífi skólans.“ Myndböndin ritskoðuð En hvað er þá hægt að gera til þess að hvetja stelpur til að sækja um í myndbandaráðum? „Við hittum formennin á aðalþingi SÍF í ágúst. Þá komu þau með alls konar tillög- ur,“ svarar Kolbrún. „ Meðal annars stungu þau upp á að hafa jafnréttis- fulltrúa í skólunum sem myndi fara yfir myndböndin og þau yrðu ritskoðuð rétt eins og skólablöðin. Krakkarnir hafa svolítið komist upp með að setja þetta í loftið órit- skoðað. Þau töluðu einnig um að skikka ráðin til að taka inn stelp- ur,“ segir Kolbrún Hrund en vildi þó ekki nota orðið kynjakvóti í þessu samhengi. „Þeim fannst það alveg skelfilegt orð. En þau stungu upp á því að það yrði allavega þrýst á að það yrði reynt að taka inn af báðum kynjum. Ég veit að sumir skólar hafa einnig ákveðið að hafa jafnréttisfræðslu fyrir þá sem eru í ráðum og nefndum.“ Mikil umræða í framhaldsskólum Töluverð umræða og vitundar- vakning hefur verið um skakkt kynjahlutfall og birtingarmynd kynjanna í félagslífi framhalds- skóla á síðustu árum. Ákvörðun um að sérhvert lið í Gettu betur skuli vera skipað keppendum af báð- um kynjum vakti nokkrar deilur á síðasta ári og þá vakti atvik í Mor- fís, þar sem samskipti og ræður þóttu einkennast af kynferðisleg- um undirtón og kvenfyrirlitningu, mikla athygli fyrr á þessu ári. At- vikið varð til þess að stjórn Morfís samþykkti nýjar reglur sem eiga að fyrirbyggja klámkjaft og kvenfyrir- litningu í keppninni. Reglunni hef- ur þegar verið beitt þegar lið MH fékk viðvörun vegna framkomu sinnar í æfingakeppni sem fram fór í síðasta mánuði. „Það eru þarna greinilega ákveðnir pólar þar sem er gríðarlega mikill kynja- halli,“ segir Kolbrún. „Þessi um- ræða ýtir vonandi aðeins við okk- ur og við sjáum hversu mikilvægt það er að brjóta þetta aðeins upp og skoða hvort það sé ekki hægt að rétta þetta aðeins af. Við þurfum að vera vakandi og meðvituð um að auðvitað eigi allir að hafa jafnan rétt og jöfn tækifæri. Við erum alls konar og við viljum sjá fjölbreytni í félagslífinu.“ Ómetanleg reynsla Kolbrún og Rakel benda einnig á að margt jákvætt megi finna í fé- lagslífi framhaldsskólanema þegar kemur að jafnrétti kynjanna og augljóslega sé mikil fjölbreytni í félagslífinu almennt. „Það var mjög ánægjulegt að sjá það,“ segir Kolbrún. „Stelpur eru farnar að sækja í formannssæti nemenda- félaga, sem þær gerðu alls ekki hérna áður fyrr. Síðan er fjölgun femínistafélaga í framhaldsskól- um sem virðist haldast í hendur við kynjafræðikennslu. Kennslan virðist ýta við nemendum. Að auki má nefna æfingabúðir Gettu bet- ur fyrir stelpur sem haldnar voru síðastliðinn vetur en þær sóttu um fimmtíu stelpur. Fólk hefur ver- ið duglegt að segja að stelpur hafi bara ekki áhuga og að þær vilji ekki taka þátt, en þegar þetta er sett svona upp er hægt að sjá að auð- vitað hafa stelpur áhuga. Það þarf bara að skapa vettvanginn og opna á tækifærin. Það sama held ég að gildi um myndbandaráðin. Auð- vitað geta stelpur gert flotta sketsa eins og strákar, þær eru líka með húmor og geta sungið. Þetta er ómetanleg reynsla sem við viljum að allir hafi jafnan aðgang að og ég held að myndböndin yrðu bara mikið fjölbreyttari og skemmtilegri ef það væri meiri fjölbreytileiki í hópnum,“ segir Kolbrún Hrund að lokum. n n Verulegur kynjahalli í myndbandaráðum framhaldsskóla n 9% stelpur og 91% strákar Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is „Þær eru algjörir aukahlutir í myndböndunum „Þetta er ómetan- leg reynsla sem við viljum að allir hafi jafnan aðgang að. Verulegur kynjahalli Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir og Rakel Magn- úsdóttir gerðu úttekt á félagslífi framhalds- skólanema. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.