Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 14
Vikublað 11.–13. nóvember 201414 Fréttir Íbúar nýttu Facebook frekar en Neyðarlínuna R úmlega helmingur íbúa höf­ uðborgarsvæðisins leitaði eftir aðstoð, upplýsingum eða fræðslu hjá lögreglu í gegnum samfélagsmiðlana Facebook og Twitter á meðan tæp­ lega 38 prósent hringdu í Neyðar­ línuna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðhorfskönnun lögreglunnar sem unnin er í samstarfi við ríkislög­ reglustjóra og er oft kölluð þolenda­ könnun. Með könnuninni er verið að meta störf lögreglunnar og árang­ ur hennar á landsvísu. Í skýrslunni segir að meðal annars sé verið að greina reynslu borgaranna af afbrot­ um og öryggistilfinningu þeirra í eig­ in hverfi, byggðarlagi og miðborg Reykjavíkur. Þolendakönnunin var framkvæmd í maí og júní á þessu ári og sá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmdina. Úrtakið var fjögur þúsund manns á landinu öllu, 18 til 76 ára, þar af tvö þúsund manns af höfuðborgarsvæðinu en svarhlutfall var 65 prósent. Lítil öryggistilfinning í miðborginni Í könnuninni er meðal annars spurt um hversu öruggir eða óöruggir íbú­ um fannst þeir vera þegar þeir væru einir á ferli í hverfinu sínu/byggðar­ lagi þegar myrkur er skollið á. Á heildina litið telja flestir sig mjög ör­ ugga, 45,8 prósent eða frekar örugga, 46,4 prósent. Það breytist hins vegar töluvert þegar litið er til miðborgar Reykjavíkur þar sem meirihluti telur sig mjög eða frekar óöruggan eða 50,2 prósent. Flestir á Suðurnesjum töldu sig frekar eða mjög óörugga á ferli að nóttu til eða 12,5 prósent á meðan flestir töldu sig frekar eða mjög ör­ ugga á Austurlandi eða 97,9 prósent. Flestir ósáttir á Norðurlandi Þá var spurt um, þegar á heildina væri litið, hversu góðu eða slæmu starfi viðkomandi hafi fundist lögreglan hafa skilað í sínu hverfi/byggðar­ lagi til að stemma stigu við afbrotum. Mest óánægja mældist með störf lög­ reglunnar fyrir norðan en þar sögðu 16,6 prósent að lögreglan hafi skilað frekar eða mjög slæmu starfi. Suðurland fylgir þar fast á eftir með 16,4 prósent. Íbúar á Vesturlandi og Vestfjörð­ um voru ánægðastir með störf lög­ reglunnar samkvæmt könnuninni en þar töldu 95,2 prósent íbúa að lögreglan hafi skilað mjög eða frekar góðu starfi. Litlu munaði þó á þeim og höfuð­ borgarsvæðinu því 92,2 prósent íbúa þar sögðu lögreglu hafa skilað mjög eða frekar góðu starfi. Sýnilegust á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum virðist sýnilegust allra embætta á landinu en 72,3 prósent íbúa sögðust sjá lög­ reglumann eða lögreglubíl í bæjarfé­ lagi sínu oftar en einu sinni í viku. Þar samt sem áður höfðu 38,3 prósent íbúa meiri áhyggjur en minni af því að verða fyrir afbroti árið 2013. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu sjá lögregluna, ef yfir heildina er litið, í færri skipti en aðrir íbúar lands­ ins en þar sögðust 39,4 prósent sjá lögregluna einu sinni í mánuði eða sjaldnar. 6,5 prósent íbúa höfuð­ borgarsvæðisins sögðust aldrei sjá lögregluna. Þar hafði 32,1 prósent íbúa meiri áhyggjur af því en minni að verða fyrir afbroti árið 2013. Nokkrir fengu sér varðhund Þá voru íbúar einnig spurðir að því hvort þeir hafi gripið til einhverra aðgerða til að verja heimili sitt eða dvalarstað fyrir afbrotum. Þar er margt áhugavert sem kemur í ljós en fjöldi svarenda var 2.521. Flestir á Austurlandi gripu ekki til aðgerða samkvæmt könnuninni eða 82,5 prósent á meðan flestir íbúa á Suðurnesjum gripu til aðgerða. Þeir svarendur sem gripu til aðgerða voru spurðir til hvaða aðgerða þeir gripu en hægt var að merkja við alla þá svar­ möguleika sem áttu við. Flestir af þeim sem gripu til aðgerða tóku þátt í vina­ legu skipulagi milli nágranna um að vakta hús hvor annars eða 360. Þá voru 147 sem settu upp þjófavörn eða ör­ yggiskerfi og 94 sem tóku þátt í form­ legri nágrannavörslu. 64 settu upp sér­ staka hurðarlása á meðan 55 settu upp sérstaka glugga, læsingar og/eða rimla. Þá voru 43 sem fengu sér varð­ hund á meðan 10 létu það nægja að setja upp hátt grindverk. Töldu sig vanta sannanir í kynferðisbroti Það vekur athygli í niðurstöðum könnunarinnar að 22,2 prósent þeirra sem urðu fyrir kynferðisbroti árið 2013 tilkynntu það ekki þar sem þeir töldu að lögreglan gæti ekkert aðhafst í mál­ inu þar sem það vantaði sannanir. Þá sögðust 14,7 prósent þeirra sem höfðu orðið fyrir kynferðisbroti ekki hafa haft samband við lögreglu þar sem viðkomandi taldi hana ekki vilja gera neitt í málinu. Ein helsta ástæða þess að viðkomandi sem varð fyrir kynferðisbroti hafði ekki sam­ band við lögreglu var vegna þess að sá taldi ekki brotið nægilega alvarlegt eða 29,7 prósent. Þeir sem tilkynntu kynferðisbrot á árinu 2013 gerðu það flestir vegna þess að þeir vildu að gerandi fengi refsingu eða 35 prósent á meðan 32 prósent sögðu ástæðuna vera til að upplýsa og/eða fyrirbyggja frekari brot. Önnur 32 prósent sögðu aðrar ástæður liggja þar að baki. Þetta er í fimmta skiptið sem könnunin er gerð og var hún að þessu sinni í formi netkönnun­ ar. Upphaflegt úrtak var fjögur þús­ und manns en fjöldi svarenda var 2.605 og því um 65 prósent svarhlut­ fall. Lögregluembættin voru flokkuð eftir búsetu en undir höfuðborgar­ svæðið fellur lögreglan á höfuð­ borgarsvæðinu, undir Suðurnes fell­ ur lögreglan á Suðurnesjum, undir Vesturland/Vestfirði fellur lögreglan á Vest fjörðum, Snæfellsnesi, í Borgar­ nesi og á Akranesi. Á Norðurlandi eru það embættin á Akureyri, Blönduósi, Húsavík og Sauðárkróki. Á Austur­ landi eru það embættin á Eskifirði og Seyðisfirði en Suðurlandi embættin á Selfossi, Hvolsvelli og Vestmanna­ eyjum. n Helmingur landsmanna upplifir óöryggi á gangi um miðborg Reykjavíkur eftir að rökkva tekur Innbrot Þjófnaður Ofbeldisbrot Eignaspjöll Kynferðisbrot Brotið var alvarlegt 14% 6% 29% 11% 0% Vildi að gerandi fengi refsingu 27% 19% 29% 24% 35% Vildi fá bætur frá tryggingarfélagi Vildi fá viðurkenningu á því að 18% 29% 0% 27% 0% það hafi verið brotið gegn mér 32% 18% 14% 25% 0% Aðrar ástæður 6% 14% 26% 10% 32% Til að fyrirbyggja frekari brot 3% 1% 3% 3% 32% Til að endurheimta muni/þýfi 0% 12% 0% 0% 0% Ástæður fyrir því að lögreglu var tilkynnt um brot Ástæður fyrir því að lögreglu var ekki tilkynnt um brot Innbrot Þjófnaður Ofbeldisbrot Eignaspjöll Kynferðisbrot Brot var ekki nægilega alvarlegt 23,5% 26,5% 32,8% 30,1% 29,7% Leysti málið sjálf(ur), vissi 7,3% 7,9% 16,2% 4,7% 10,1% hver brotamaðurinn var Lögregla ekki nauðsynleg 1,4% 6,0% 17,5% 9,3% 17,3% Tilkynnti atvikið til 0,0% 1,6% 1,6% 1,0% 1,5% annarra yfirvalda Fæ tjónið ekki bætt 13,2% 16,5% 0,0% 15,0% 0,0% frá tryggingarfélagi Taldi að lögregla gæti ekkert 23,9% 23,0% 17,0% 24,4% 22,2% aðhafst, vantaði sannanir Taldi að lögregla myndi ekki 20,1% 11,3% 8,5% 14,1% 14,7% vilja gera neitt í málinu Var hrædd(ur) við lögreglu, 0,0% 0,0% 0,0% 0,1% 2,6% vildi ekki blanda henni í málið Þorði ekki að hafa samband við 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 1,1% lögreglu vegna ótta við gerenda Aðrar ástæður 10,6% 7,2% 6,3% 1,4% 0,8% Atli Már Gylfason atli@dv.is Ofbeldi/líkamsárás Efnahagsbroti n 2013 n 2012 n 2010 Hvers konar afbroti hafðir þú mestar áhyggjur af að verða fyrir Eignaspjöllum Fjársvikum, svikum í viðskiptum Innbroti Kynferðisbroti Ráni Þjófnaði Öðru Engu 0% 20% 40% 60% 15,1 2,3 19 6,2 38,2 2 9,1 7,7 14,6 2,7 17,6 5,9 38 1,5 9,3 9,5 11,8 3,3 20,5 3,6 47,5 4,2 7,8 0,3 0,3 0,9 0,2 0,3 0,3 Nýtti mér samfélagsmiðla lögreglunnar (t.d. Facebook eða Twitter) 50,4% 37,1% 36,2% 24,9% 17,6% Hringdi í Neyðarlínuna (112) Hringdi í lögregluna Fór á heimasíðu lögreglunnar Fór á lögreglustöð 847 óöruggur1.280 öruggur Þolendakönnun Þetta er í fimmta skiptið sem ríkislög- reglustjóri og lögregluembættin á landinu kanna viðhorf íbúa til starfa lögreglunnar. MyNd SIGTryGGur ArI Fra Hyrjarhöfði 2 - 110, Reykjavík / s: 848 7007 og 776 8600 / www.glerpro.is / glerpro@gmail.com Allar viðgerðir á framrúðum eru bíleiganda að kostnaðarlau su. Vinnum fyrir öll tryggingaf élög.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.