Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 11.–13. nóvember 2014
Á
flokksráðsfundi Sjálfstæðis-
flokksins 1. nóvember síð-
astliðinn var samþykkt að til-
lögu Bjarna Benediktssonar,
formanns flokksins, að stofn-
að skyldi embætti ritara. Um leið er
gert ráð fyrir að afnumið verði ann-
að tveggja embætta varaformanns
flokksins.
Þessi samþykkt lætur ef til vill
ekki mikið yfir sér og snýr fyrst og
fremst að skipulagi í yfirstjórn Sjálf-
stæðisflokksins. Sem kunnugt er
var Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður flokksins, kjörinn ritari á
fundinum með um 83 prósentum
atkvæða. Athygli vekur að enginn á
fundinum bauð sig fram gegn hon-
um. Er það mál manna, sem DV
hefur rætt við, að Guðlaugur Þór
hafi styrkt stöðu sína í flokksforyst-
unni og þá einkum á kostnað Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, varaformanns
flokksins og innanríkisráðherra,
sem stendur í ströngu meðal annars
vegna lekamálsins svonefnda. Þá
hefur Illugi Gunnarsson, mennta-
og menningarmálaráðherra, einnig
staðið nálægt formanninum og gæti
litið á tangarsókn Guðlaugs Þórs inn
í forystuhópinn sem ákveðna ógn við
sig.
Leitað mótframboða
Eftir því sem næst verður komist
reyndi fólk nákomið Illuga að finna
frambjóðanda úr röðum fundar-
gesta sem gæti boðið Guðlaugi Þór
birginn. Unnur Brá Konráðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og
Áslaug Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi
formaður Heimdallar, voru nefndar
sem mögulegir frambjóðendur.
Nafn Elliða Vignissonar, sem vann
eftirminnilegan sigur í bæjarstjórnar-
kosningunum í Vestmannaeyjum
síðastliðið vor, var einnig nefndur en
hann hafði þá þegar lofað Guðlaugi
Þór stuðningi í ritaraembættið. Allar
tilraunir til þess að finna mótfram-
bjóðanda gegn Guðlaugi Þór runnu
því út í sandinn og náði hann góðri
kosningu.
Heimildarmaður, sem sat um-
ræddan flokksráðsfund, telur ein-
boðið að Guðlaugur Þór láti ekki þar
við sitja og bjóði sig fram til varafor-
manns gegn Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur á næsta landsfundi sem að
líkindum fer fram á vormánuðum á
næsta ári.
Framtíð Hönnu Birnu á huldu
Framtíð Hönnu Birnu, núverandi
varaformanns Sjálfstæðisflokksins
og innanríkisráðherra, er á huldu.
Hún hefur átt á brattann að sækja
vegna lekamálsins svonefnda. Að-
stoðarmaður hennar, Gísli Freyr Val-
dórsson, var á endanum ákærður
vegna trúnaðarbrots í starfi og verst
nú í dómsölum.
Senn líður að því að umboðsmað-
ur Alþingis skili þinginu skýrslu um
málið í heild sinni. Í henni er tek-
ið á ýmsum þáttum málsins. Einn
þeirra snýr að samskiptum ráðherra
og ráðuneytis Hönnu Birnu við Stef-
án Eiríksson, fyrrverandi lögreglu-
stjóra höfuðborgarsvæðisins, eftir
að hann og embætti hans hafði feng-
ið málið í hendur og hafið lögreglu-
rannsókn. Þess má minnast að Björg
Thorarensen, lagaprófessor við Há-
skóla Íslands, tjáði sig opinberlega
og afdráttarlaust um það að rannsak-
andi og sá sem sætir rannsókn ættu
aldrei að ræðast við meðan á rann-
sókn stæði.
Hanna Birna stendur ekki held-
ur sérlega vel að vígi gagnvart Bjarna
Benediktssyni, formanni Sjálfstæðis-
flokksins. Á landsfundi flokksins 17.
til 20. nóvember 2011 bauð hún sig
fram gegn honum í formannskjöri.
Bjarni fór með sigur af hólmi með 55
prósentum atkvæða gegn 45.
Sótt að formanninum
Skömmu fyrir alþingiskosningarn-
ar 2013 dró aftur til tíðinda. Þá birti
Viðskiptablaðið niðurstöður skoð-
anakönnunar um stöðu Sjálfstæðis-
flokksins sem hefur öll árin eftir
hrun mátt sætta sig við um 25 pró-
senta fylgi á landsvísu í stað 33 til 40
prósenta fylgi vel fram á þessa öld.
Fram kom í niðurstöðum þessar-
ar könnunar að fleiri sögðust reiðu-
búnir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef
Hanna Birna Kristjánsdóttir, vara-
formaður flokksins, væri formaður
flokksins en ekki Bjarni. Á þessum
tíma starfaði Gísli Freyr Valdórsson,
síðar aðstoðarmaður Hönnu Birnu í
innanríkisráðuneytinu, á Viðskipta-
blaðinu.
Bjarni brást við niðurstöðum
þessarar skoðanakönnunar í fjöl-
miðlum. Í fréttum RÚV sagði hann
að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem
könnun sem þessi birtist í Viðskipta-
blaðinu, sem væri í eigu fyrrverandi
kosningastjóra Hönnu Birnu og
starfsmenn þar styddu hana. „Áður
en ég sá þessa könnun var ég ekkert
að velta þessum hlutum fyrir mér,“
sagði hann en kvaðst hafa orðið að
hugsa sig um eftir að könnunin kom
út. Ég hef áhyggjur af fylgi flokks-
ins, ég vil allt gera til að auka það,“
sagði Bjarni í Kastljósþætti. Hann
bætti við að hann væri ekki búinn að
taka ákvörðun um afsögn en kvaðst
hugsa það mál vandlega. „Í dag verð
ég að játa, í þessari krísu sem flokk-
urinn er í, að ég get ekki útilokað
neitt.“
Þessi framganga Bjarna í fjöl-
miðlum rétt fyrir kosningarnar 2013
bjargaði honum fyrir horn og gott
betur. En eftir sat Hanna Birna með
það hangandi yfir sér að stuðnings-
menn hennar hefðu reynt að vega að
Bjarna í hennar þágu. Þá er til þess
að líta að þótt Bjarni formaður hafi
sig ekki í frammi gegn henni er ekki
að sjá að hann veiti henni mikinn
stuðning í lekamálinu.
Guðlaugur Þór upp að hlið for-
mannsins
En nú bregður svo við að Guðlaug-
ur Þór Þórðarson er kominn upp að
hlið formannsins Bjarna Benedikts-
sonar og kann að hyggja á frekari
landvinninga. Vel er hugsanlegt að
sú leið hans verði grýtt. Kusk hefur
fallið á hvítflibba hans á æði löngum
pólitískum ferli, fyrst sem borgarfull-
trúi og síðar sem þingmaður og ráð-
herra. Hann hafði meðalgöngu um
mikla styrki til Sjálfstæðisflokksins
úr fjárhirslum Björgólfsfeðga meðan
þeir áttu og ráku Landsbankann fyr-
ir hrun. Sömuleiðis úr fjárhirslum FL
Group. Styrkirnir bárust í lok árs 2006
skömmu áður en ný lög um fjármál
stjórnmálaflokka tóku gildi. Málið
vakti mikinn usla í aðdraganda þing-
kosninganna árið 2009 og hét Bjarni
Benediktsson, þá nýkjörinn formað-
ur, því að skila styrkjunum, alls 55
milljónum króna. Guðlaugur Þór gaf
um síðir út yfirlýsingu vegna máls-
ins en þar sagði meðal annars: „Ég
harma að nafn mitt skuli vera dregið
með þessum hætti inn í umræðuna
og velti eðlilega fyrir mér hvaða hvat-
ir liggi þar að baki.“
Þá má einnig nefna mál sem upp
kom og snerti trúnaðarupplýsingar
um viðskipti Guðlaugs Þórs með fyr-
irtæki sem hann seldi. Gunnar Þ.
Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins (FME), viðurkenndi
fyrir dómi í mars 2013 að hafa kom-
ið trúnaðargögnum um Guðlaug Þór
á framfæri DV í því skyni að koma á
hann höggi. Málið varð hins vegar
til þess að Gunnar var saksóttur og
dæmdur fyrir að brjóta bankatrúnað
og missti starf sitt sem forstjóri FME.
Eggert Skúlason, blaðamaður og
almannatengill, ritar nú bók sem
kemur út á næstu mánuðum. Að-
spurður segir Eggert að þar sé fjallað
um Fjármálaeftirlitið og þessa sögu
alla.
Konur gætu staðið í veginum
Hvað sem þessu líður er það mál
manna innan Sjálfstæðisflokksins að
Guðlaugur Þór hafi styrkt stöðu sína
verulega innan flokksforystunnar að
undanförnu. Ekkert skal um það sagt
hvort hann býður sig fram til vara-
formanns flokksins á næsta ári og
þá gegn Hönnu Birnu. Halda verður
því til haga að ekki er öldungis víst
að Hanna Birna sitji enn á stóli vara-
formanns þegar að landsfundinum
kemur á næsta ári.
Jafnvel þótt það það kunni að
vera líklegt að Guðlaugur Þór sæk-
ist á endanum eftir varaformanns-
stólnum stendur samþykkt flokks-
ráðsfundarins um daginn ögn á móti
því að sú verði raunin. Í lokahluta
stjórnmálaályktunar fundarins segir
nefnilega orðrétt: „Næsti landsfund-
ur Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn
verður árið 2015, verður tileinkaður
konum í tilefni 100 ára afmælis kosn-
ingaréttar kvenna. Markvisst verður
unnið að því að efla hlut kvenna til
jafns við karla í trúnaðarstöðum inn-
an flokksins og áhrifastöðum í um-
boði hans.“ n
Væringar í Valhöll
n Guðlaugur Þór Þórðarson hefur styrkt stöðu sína í forystunni
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
„Eftir því sem næst
verður komist
reyndi fólk nákomið Illuga
að finna frambjóðanda úr
röðum fundargesta sem
gæti boðið Guðlaugi Þór
birginn.
Baráttumaðurinn
Guðlaugur Þór Þórðarson
þykir hafa styrkt stöðu sína
verulega innan Sjálfstæðis-
flokksins með iðni sinni og
útsjónarsemi.
Á brattann að sækja Örlög Hönnu Birnu Kristjánsdóttur kunna að ráðast þegar dómur
fellur í lekamálinu svonefnda og umboðsmaður Alþingis skilar skýrslu sinni um sama mál.
Formaðurinn Bjarni Benediktsson stendur nú traustum fótum sem formaður jafnvel þótt
fylgi flokksins sé miklu minna undanfarin ár en flokkurinn á að venjast. Mynd SiGtryGGur Ari