Feykir - 16.01.1991, Blaðsíða 1
FEYKIR
I 16.janúar 1991, 2. tölublað 11. árgangur
JæL. Óháö fréttablað á Norðuriandi vestra
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Góð rækjuveiði í Húnaflóa:
Fimm tonn í veiðiferð
„Einstakt í svartasta skammdeginu
segir Ómar á Hafeminum
„Það er búin að vera ofsalega
góð rækjuveiði síðustu daga
og í allt haust. Ovenjulega
góð, þetta jafnast alveg á við
það þegar veiðin var best fyrir
nokkrum árum. Það er
einstakt í svartasta skammdeg-
inu að fá upp í fimm tonn i
veiðiferð, og þrjú og hálft tonn
í einu holi eins og gerðist hjá
okkur. Jú, þær hafa oft verið
stuttar veiðiferðinar”, sagði
Omar Karlsson skipstjóri á
rækjubátnum Haferni frá
Hvammstanga.
Þeir voru bara tveir
bátarnir frá Hvammstanga á
rækjunni fyrir áramótin.
veiddu um 60 tonn hvor á
rúmum mánuði, og eiga
einungis eftir rúm 25 tonnaf
kvótanum, en staðarkvótinn
er 360 tonn. Káraborgin sem
var á línu á eftir allan sinn
kvóta, og Jón Kjartan
meenið.
Omar á Haferni segir
rækjuna ekki líkt því eins
smáa og lélegt hráefni eins og
menn hafa látið af. Yfirleitt
hefði verið 270-320 rækjur í
kílóinu, einungis fjórum
sinnum farið yfir 290. Omar
sagði óvíst hvað þeir gerðu
þegar rækjan væri búin. en
líklega vrði í'arið á línu og
Haförn og Neisti. Báðir síðan net ef kvóti fengist.
Suðaustanveðrið í Lýtingsstaðahreppi:
Hlöðuþökin gáfu sig
Suða ustanhvassviðrið sem gekk
yfir landið á sunnudag, virðist
hafa verið til friðs víðast hvar
nyðra, nema í Lýtingsstaða-
hreppi þar sem nokkurt tjón
varð á þrem hæjum. Um
hádegishilið var ekki stætt á
þessum slóðum og tveggja
drifa dráttarvél eina tækið
sem hreyfandi var. Sem dæmi
um veðurofsann sviptist fjögurra
metra þaklengja af hlöðu með
langhöndum og öllu saman og
flaug 200 metra án viðkomu.
Þetta var á bænum
Goðdölum og þakhluti fauk
einnig af annarri hlöðu á
bænum. A Hofsvöllum og
Brúnastöðum í nágrenninu
varð einnig nokkurt tjón. en
óverulegt annars staðar í
sveitinni.
..Miðað við það hvernig á
horl'ðist slapp þetta furðan-
lega vel. Við fengum aðstoð
frá flugbjörgunarsveitarmönn-
um úr Varmahlíð og þeir
björguðu málum ótrúlega
vel. Það er síðan vinnutlokkur
að koma í hlaðið og
meiningin eraðloka þessu og
laga fyrir morgundaginn. Þá
er víst spáð hvössu aftur”,
sagði Rósa Guðmundsdóttir
húsreyja í Goðdölum í
samtali við Feyki á mánu-
dagsmorgun.
Nú eru viðsjárverðir tímar. Þegar blaðið fór í prentun rambaði heimurinn á barmi stærstu
stvrjaldar frá seinni heimsstyrjöld, Persaflóastríðsins. Bænastund fór fram í öllum skólum
landsins á mánudag. Grunnskólaneniar á Sauðárkróki ásamt kennurum komu saman í
Sauðárkrókskirkju. Greinilegt varað nemendurskvnjuðu alvöru þessararstundarog vonandi
að jafnaldrar þeirra við Persaflóann þurfi ekki að þjást vegna skammsýni þeirra sem eldri
„Dragið nú ef þið þorið”
„Þegar verktakar ætluðu að
fjarlægja dráttarvélar mínar
með því að draga þær hurtu,
hljóp ég að, hrá dráttartaug-
inni um háls mér og öskraði:
„Dragið nú ef þið þorið”. Þá
stoppuðu þeir en ég sagðist
ekki fara úr snörunni nema
þeir lofuðu að láta dráttar-
vélarnar kyrrar meðan ég færi
og næði í lögreglu. Það loforð
sviku þeir síðar". A þennan
hátt lýsir Sigurður Ingvi
Björnsson viðskiptum sínum
við verktaka Blöndm irkjunar.
Atakið annað kvöid
Stofnfundur félags um átak í
atvinnumálum á Sauðárkróki
verður haldinn í Safnahúsinu
annað kvöld. Markmiðið með
félaginu er að fjölga atvinnu-
tækifærum í bænum, með
stofnun nýrra fyrirtækja og
nýta þá möguleika sem fvrir
eru í starfandi fvrirtækjum.
Undirtektir í bænum munu
vera rnjög góðar fyrir
stofnun félagsins. Engu að
síður hafa nokkrir aðilar ekki
enn staðfest þátttöku, en geta
gert það á stofnfundinum.
„Það er rétt að það hefur
ekki náðst samkomulag um
bætur vegna frárennslisskurð-
arins í Blöndu”, sagði Páll
Ólafsson hjá Landsvirkjun i
samtali við Feyki. „Því
deilumáli hefur verið vísað til
nefndar sem meta á bætur
þegar samningar nást ekki.
Sú nefnd úrskurðaði 15. des.
sl. að Landsvirkjun og
verktakar á hennar vegurn
mættu hefja framkvæmdir
við þennan skurð þó úrksuiður
um bætur lægju ekki fyrir. A
grundvelli þessa úrskurðar
teljum við okkur heimilt að
fara yfir land Sigurðar til
þess að komast að fram-
kvæmdastað. En ég vil taka
fram að Landsvirkjun mun
að sjálfsögðu greiða fullar
bætur fyrir þau landspjöll
sem þessi f'ramkvæmd kann
að valda”, sagði Páll Ólafs-
son.
„Það er alls staðar sama
sagan hjá Landsvirkjunar-
mönnum. Þeir draga allt
fram á síðustu stundu, og
þeir fara svo langt sem þeir
geta án nokkurra samninga”.
sagði Sigurður Ingvi. „Það er
hægt að komast að umrædd-
um stað við Blöndu eftir
annarri leið. Eins vil ég taka
fram að ég hef boðið þeim að
hefja samninga um þennan
umferðarrétt. Það er óskilt
mál greftrinum í árbotninum.
I mínum huga er þetta
,,prinsip”mál og spurning
um eðlileg samskipti. en ekki
um bætur, því þærgeta aldrei
orðið rniklar. Semji þeirekki.
reikna ég með að setja
lögbann á f'ramkvæmdir”.
sagði Sigurður.
„Við getum ekki samið um
mál”, sem við höfum skotið
til matsnefndar”, sagði Páll
Ólafsson. Gröftur skurðar-
ins og umferðarréttur að
vinnustað er eitt og sama
málið.
MÓ.
Bílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
e
jflJ^JbilaverfÉjj
SÆMUNDARGÖTU - SÍMI 35141
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysti- og kæliþjónusta
Bíla- og skiparafmagn
HCTen?i!l kph-
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
Sími: 95-35519
Bílasími: 985-31419
Fax: 95-36019