Feykir - 16.01.1991, Blaðsíða 3
2/1991 FEYKIR 3
„Þarf jafnvel í fleiri mál”
— lífj hýst við að l'é mitt verði
skorið á na'stu dögum þar sem
staðfest hefur verið riða í einni
kind, sayði Björn Pálsson á
I.öngumýri í samtali við
hlaðamann. Kiðan var stað-
l'est í tveggja vetra kind í búi
Björns að Vesturhlíð, en þar
hefur hann haft fjárbú
undanfarin ár þó hann hafí
haldið heimili heima á
l.öngumýri.
Þegar Björn var spurður
hvað hann tæki sér fyrir
hendur nú þegar hann hefði
ekki lengur fé til að hugsa um
sagði hann. ..Flestir menn
eru nú dauðir áður en þeir ná
mínum aldri, svo ég býst varla
\ ið að verða til stórræðanna
hér eftir”.
Ætlarðu þá ekki að leggja til
efni í fíciri bækur ?
— Nei. ætli það. Annars
ætti ég að skrifa innan-
sveitarkroniku eins og Kiljan.
Þar er af nógu efni að taka.
En ætli ég geri neitt í því.
Nú seldist bókin þín vel
fyrir jólin.
■HHI
Björn á Löngumýri er ekki
alveg af haki dottinn, þótt
háaldraður sé og þurfi nú að
sjá á bak fé sínu.
— Já það liefði verið hægt
að selja miklu fleiri eintök.
Hún var alls staðar uppseld
síðustu dagana fyrir jól. Þeir
voru svo kjarklausir útgef-
endurnir að þeir þorðu ekki
að láta prenta nógu mörg
eintök.
Ln ert þú alveg hættur að
standa í málaferlum ?
— Nei. ég er í máli út af
kvótanum. Það er voðalegt
hvernig farið hefur verið með
margar jarðir og kvótinn
hirtur af þeim. Ég held ég sc
ekki í fleiri málum núna. En
hver veit nema maður þurfi
einhvern málarekstur út af
þessum niðurskurði. Það er
ekki búið að gera neinn
samning um hann. Og svo
væri ástæða aðfara í mál út af
fasteignaskattinum. Ég þarf
að borga miklú meira af
þessari íbúð minni hér í
Svínavatnshreppi, en ég þarf
að borga af íbúð sem ég á í
Revkjavík. . -
’ MO.
Út um gluggann
Stundum þegar ég lít út
um gluggann á skrifstofu
minni. verð ég vitni að
aðdáunarverðri leikni og
öryggi hinna ungu öku-
manna á götum bæjarins.
Finn ég þá gjarnan fyrir
svolitlu stolti yfir því að búa í
sama bæ og þessir óttalausu
fulltrúar amerískra bíómynda.
þar sem hraði og spenná
einkenna leikinn.
Það er alveg dæmalaust
hvernig liægt er að skella sér i
framúrakstur á leiðinni suður
Skagflrðingabraut í fljúgandi
hálku og vita upp á hár að
bílarnirsem framúrá aðaka.
ætla ekki að beygja niður til
vinstri \ið næstu gatnamót
þar sem framúraksturinn
sjálfur kannski á sér stað.
Svo að ekki sé nú minnst á
umferðina sem á móti kemur
en það er nú sjálfsagt auðvelt
lyrir glöggt auga og vel
þjálfaðan heila að reikna
hana út.
Það sýnir einnig áræðni og
kjark ofurhuganna hversu
ótrúlega hratt þeir þora að
aka hérna innanbæjar. Þótt
ýmsar hættur gætu orðið á
vegi þeirra. t.d. aðrir bílarog
gangandi fólk. sem ekki
getur séð fótum sínum
forráð. þá láta þeir slíkt ekki
hræða sig og halda ótrauðir
sinu striki.
Manni gæti dottið í hug
hvort ekki væri nauðsynlegt
að auka við námsefnið í
ökuskólanum. t.d. æfingum í
uá I eysisle gu m f ra m ú raks t r i
og hressandi hraðaakstri í
seinna hundraðinu. til þess
að búa nemendur. og okkur
hin, enn betur undir spenn-
andi framtíð. Lögreglan gæti
svo aðstoðað liina nýútskrif-
uðu með vörpulegu afskipta-
leysi. (mðnuuulur Ragnarsson.
Guðniundur Halldórsson rithöfundur frá Bergstöðuni tekurvið
ávísuninni úr bendi Sæmundar Hermannssonar framkvæmda-
stjóra Sjúkrahúss Skagfírðinga.
Sauðárkrókur:
„Akademía” við sjúkrahúsið
,,Nú liafa forystuinenn þessarar
stofnunar aukið við nýjuni
þætti. Þeir liafa gerst nokkurs
konar akademía í bókmennt-
um og úthlutað höfðinglegum
verðlaunum. Það er ekki mitt
að dæma um hvernig til hefur
tekist með val á höfundi. En
eitt stendur fullkomlega fyrir
sínu, byggðasjónarmiðið".
Þannig fórust Guðmundi
Halldórssyni rithöfundi frá
Bergstöðum orð. þegar hann
á föstudag veitti viðtöku
viðurkenningu fvrir ritstörf
sín frá stjórn Sjúkrahúss
Skagfirðinga. Fimmtíu þús-
und króna ávísun sem
Sæmundur Heimannsson fram-
kvæmdastjóri afhenti honum.
Þetta er í fyrsta sinn sem
stjórn sjúkrahússins veitir
slíka viðurkenningu, cn á
þessu ári eru 30 ár liðin frá
því það flutti starfsemi sína á
Sauðárhæðir. Verður þess
minnst með ýmsum hætti á
árinu.
Guðmundur Halldórsson
hefur í 20 ár starfað við
sjúkrahúsið og haft þar með
höndum umsjón bókasafns,
en stundað ritstörfin í
hjáverkum. Sæmundur gat
þess í ávarpi sínu að stjórn
stofnunarinnar hefði löngu
verið ljóst að innan hennar
starfaði snjall rithöfundur.
sem ekki hefði verið metinn
sem skyldi hjá úthlutunar-
sjóðum listamannalauna. er
gjarnan væri stýrt af Reykja-
víkurvaldinu.
Bækur Guðmundar hefðu
samt oft á tíðum fengiðgóða
dóma gagnrýnenda, ogengin
þó eins og sú síðasta. í
afskekktinni, sem út kom nú
fyrir jólin. Til væru þeir
menn sem teldu hana lull
boðlega til útnefningar bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs, en það væri víst búið að
velja aðra bók til þess. Bað
Sæmundur Guðmund vel að
njóta og halda áfram á sömu
braut.
SAMVINNUBOKIN
Raunávöxtun Samvinnubókarinnar árið 1989 var 5.01 %
Nafnvextir Samvinnubókarinnar eru nú 10.75%
Ársávöxtun er því 11.04%
HAGSTÆÐ ÁVÖXTUN í HEIMABYGGÐ
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA