Feykir - 16.01.1991, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 2/1991
Ámundi galdramaður
Ámundi hét galdrasnápur
nokkur á Kötlustöðum í
Vatnsdal. Vissi liann lítið i
kunnáttu sinni. en fór illa
með til að hrekkja og hrteða
l'ólk. Einhvern tíma hitti
liann mann sem var að leita
að fé. Skaut hann þá
göngustaf sínum afturá milli
fóta sér og narraði manninn
til að setja sig á stafinn fyrir
aftan sig. Reið hann svo á
stað og fram af Kötlustaða-
klettum. Lá þá manninum
við öngviti enda hafði
Ámundi gjört þetta til tið
hræða hann. Af völdum
Ámunda er mælt að smala-
maður hall líka orðið úti á
Sauðadalsdrögum. á vegin-
urn fyrir Axlir. milli Vatns-
dals og Svínadals. Þykir þar
síðan vandratað í myrkri og
kafaldi þ\í draugurinn villir
menn.
Um þessar mundir hjó
ekkja nokkur á Ciuðrúnar-
stöðum. Að henni sótti
Ámtmdi nti með göldrum
sínum. Gjörði liann það al’
illmennsku og rælni. því
engar sakir átti liann \ið
ekkjuna. Hafði l'ólk á þessum
bæ engan l'rið á sér og sumir
segja að maðurinn sem úti
varð á Sauðadalsdrögum
væri þaðan. Nágrönnum
Ámunda l’ór nú að standa
stuggur af. Fengu þeir þá Jón
frá Hellu að norðan (úr
Svarfaðardal?) á móti honum.
Jón þessi hal'ði numið galdur
af Sigurði á Urðum er sífellt
fékkst við ristingar og rúnir.
Það er sagt tim hann að
fingur hafi kalið af hohum.
Llélt hann þá keldusvíns-
tjöðrinni með töng og
skrifaði svo galdrarúnir.
Þegar htmn dó reið hann út
um sveitir á líkkistu sinni.
Aftur segja aðrir að
Sigurður þessi og .lón hali
átzt glettur við. en hvorugur
unnið á öðrum. .lón kom nú
vestur að Guðrúnarstöðum
að kviildi dags. Sá hann þá
hvar beljandi graðungur
kom og stefndi á liann. en
hann hleypti mórauðum rakka
undan hempufaldi sínum á
graðunginn t)g snéri hann þá
undan. .lón var um kvrrt í
þrjá daga. Sendi hann þá
enga sendingu l'rá sér. en
Ámundi sendi honum þrjár.
og tók Jón þær allar. Hafði
Ánnmdi þá ekki fieiri til.
Seinasta sendingin var
fluga: Settist hún á askbarm-
inn hjá Jóni þegar hann var
að drekka mjólk. Greip Jón
hana og magnaði og sendi
svo Ámunda aftur. Um
daginn var elduð súpa á
Kötlustöðum. Datt hælrófu-
biti niðtir hjá konurini þegar
hún ætlaði að láta hann í ask
Ámunda. Bar tluguna að í
þessu og skreið hún inn í
bitann. greip konan hann
upp aftur og lét í askinn.
Ámunda þótti bitinn góður.
gætti sin ekki og gein vfir
honum. en í sama bili flaug
sendingin upp í hann. Gaus
þá blóð út af nösum og
munni Ámunda og var hann
þegar dauður. .lón var
sæmdur góðum gjöl'um af
Vatnsdælum og sneri svo
heim aftur.
Páll galdramaður
Páll hét galdramaður nokkur
sem bjó á koti nokkru hjá
Stóruborg í Húnavatnssýslu.
sem lagðist í eyði eftir hans
dag. Páll drap konu sína með
göldrum þannig að hann risti
henni helrúnirá ostasneið og
drap smjöri yfir oggaf henni
svo aðsnæða. En þetta komst
upp um hann og var liann
dæmdur til að verða brenndur.
en það henti aldrei hina
Iróðari galdramenn. Hann
var brenndur á Nesbjörgum.
Þegar kannað var í öskunni
var hjartað óbrunnið. Var
það ril'ið sundur með járn-
krókum og hrukku þá
svartar pöddur út úr því:
síðan brann hjartað.
(Þjóðsögur Jóns Arnasonar)
Bæjarstjórn Blönduós:
Fundaði með Rarik og P&s
Afleiðingar ísingaveðursins:
Síminn fær
mikla gagnrýni
Bajarstjórn Blönduóss f'undaði
með forráðamönnum Pósts og
síma og Rafmagnsveitna
ríkisins í siðustu viku. en
Blönduósingar eru mjög óhressir
með það hvernig staðurinn
varð úti í ísingarveðrinu á
dögununi, sérstaklega þykja
öryggismálin hafa hrugðist.
..Við erum sáttir við þátt
Rafmagnsveitna ríkisins. og
teljum starfsmenn þeirra eiga
mikinn heiður skilið fyrir
mikinn dugnað og góða
framgöngu. Llinsvegar settum
við fram óskir um að
strengnum frá Laxárvatns-
virkjun verði komið í jörð. en
línan frá henni kubbaðist og
varð til þess að staðurinn var
rafmagnslaus í rúman sólar-
hring. Okkur var heitið því
að þetta yrði gert áður en
langt um liði.
Aftur á móti erum við
mjög óhressir með þátt Pósts
og síma og leituðum skýringa
á ýmsu sem þar brást.
Alvarleg bilun varð í stöðinni
á Blönduósi. og mun hand-
vömm við uppsetningu hennar
vera ástæðan. sem bætt
verður úr. Þá er ástæða þess
að Blönduós datt úr sambandi
\ið Reykjavík, þegar Ijós-
leiðarinn bilaði í Laxárdal.sú
að Sauðárkrókur er móður-
stöð fyrir bæði Blönduós og
Akureyri. Örbylgjusamband
á næsta hausti mun bæta
öiyggisleysið sem þetta veldur.
en það verður ekki tryggt að
fullu fyrr en hringtenging
kemst á Ijósleiðarakerfið
1994”. sagði Ófeigur Gests-
son bæjarstjóri á Blönduósi.
Símatruflanimar og samhands-
leysið, sem varð í llúnaþingi í
óveðrinu á dögunum hefur
verið mikið til umræðu manna
á nteðal siðan þá og almennt
gagnrýna menn það mun meir
en hilanirnar hjá rafmagns-
veitunum. Benda menn á að
víða hefðu getað oröið slys á
fólki og tjón á munum án þess
að þeir sem fyrir urðu gætu á
nokkurn hátt látið af' sér vita
eða leitað hjálpar. Eftirtalin
atriði eru alvarlegust í hugunt
Húnvetninga.
I fyrsta lagi að þegar
símakerfið bilará einum stað
skuli allt héraðið verða meira
og minna sambandslaust og
ekki unnt að hringja innan
ákveðinna svæða.
I öðru lagi er það mjög
gagnrýnt að móðurstöð fvrir
símtöl innan Húnaþings
skuli vera á Sauðárkróki í
stað þess að vera innan
héraðs.
1 þriðja lagi telja menn það
alveg forkastanlegt að Ijós-
leiðarinn skuli hafa verið
lagður yfir 200 m breiðan
árfarveg án þess að nokkur
burðarstrengur væri látinn
styrkja strenginn.
í ljórða lagi munu síma-
menn. sem lögðu strenginn
hafa viljað leggja hann yfir
ána nokkur hundruð metr-
um frá þeim stað. sem
teiknaður var á kortinu. Þá
hefði auðveldlega mátt grafa
strenginn undir árfarveginn
og engin bilun orðið í þessu
veðri. Nú mun hal'a verið
ákveðið að l'æra strenginn á
þann stað.
í fimmta lagi telja menn
ljóst að vararafmagn er of
lítið á mikilvægum stöðum í
símakerfinu miðað við það
hve síminn er mikið öryggis-
tæki og þarf að vera í lagi.
í sjötta lagivelta menn þ\ í
lyrir sér hvort tækniþekking
símamanna \íða um land
hatl verið aitkin í samræmi
við þær miklu breytingar.
sem orðið hafa á fjarskipta-
málum á síðustu árum.
Síðast en ekki síst hafa
menn rætt um þá staðreynd
að forráðamenn símans vildu
gera lítið úr símatruflunum
innan héraðs. Staðreynd var
að mörg mjög mikilvæg
númer voru óvirk langtímum
saman eins og t.d. hjá
lögreglu og sjúkrahúsi á
Blönduósi.
MÓ.
LAUST STARF
Starfsmaður í félagsmiðstöð unglinga
Félagsmálaráð Sauðárkróks auglýsir hér með starf í
félagsmiðstöð unglinga sem verður starfrækt í
félagsaðstöðunni í Grettisbæli í Gagnfræðaskólanum.
Um er að ræða nýtt starf. Viðkomandi starfsmaður
verður að geta hafið störf sem fyrst.
Félagsmálastjóri veitir nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
ber að koma til félagsmálastjóra, bæjarskrifstofu v/ Faxatorg
Umsóknarfrestur er framlengdur til 31. janúar.
___________________________Félagsmálastjóri.