Feykir - 24.04.1991, Síða 3
15/1991 FEYKIR 3
Héraðsnefnd A.-Hún.:
Vill sjá framhaldsdeild
I Húnaþingi áður
en farið er að borga
Héraðsnefnd Austur-Húnvetn-
inga samþykkti á fundi nýlega
að binda aðild að byggingu
bóknámshússins, stofnun úti-
bús við skólann í Húnaþingi.
Greiðslur yrðu ekki inntar af
hendi fyrr en ári eftir að sú
deild liafi verið sett á stofn og
þær bundnar byggingarvísi-
tölu vaxtalaust. Héraðsnefnd-
'n byggir samþykkt sína á því
að í stofnsamningi skólans sé
gert ráð fyrir útibúum við
skólann í Húnaþingi og á
Siglufirði.
Valgarður Hilmarsson for-
maður héraðsnefndar segist
fyrir sitt leyti ekki ánægður
með þessa samþykkt héraðs-
nefndar og hefði talið æskilegra
að gerast aðili að byggingar-
samningnum strax. Þá taldi
hann það að Vestur-Húnvetn-
ingar hefðu enn ekki skrifað
undir neina samninga um
skólann, síður flýta máls-
meðferð og ákvarðanatöku
annarra aðila. Enn ein
ástæðan fyrir því að aðilar
hefðu ekki skrifað undir
samning um byggingu bók-
námshússins, væri sú að
kostnaðaráætlun hefði hækkað
frá því að skrifað var undir
stofnsaming skólans fyrir
áramótin í vetur. Á móti
hefði héraðsnefnd Skagafjarðar
komið með þá tryggingu að
greiða kostnað umfram norm,
en það tilboð samt ekki
ennþá dugað til að leiða aðila
til undirskrifta.
Hinsvegar sagði Valgarður
mikilvægt að framhaldsdeildir
kæmust á viðgrunnskólana á
Blönduósi eða Húnavöllum.
Fordæmi væri fyrir útibúum
frá öðrum fjölbrautaskólum
á landinu. Mætti þar nefna
að deild frá Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi væri í
Stykkishólmi. Þá væri í
buiðarliðnum deild frá Mennta-
skólanum á Isafirði á
Hólmavík. Af þessu gætu
menn ályktað að stofnun
útibúa við fjölbrautaskólann
hér í kjördæminu væri
raunhæft markmið.
Útibú í undirbúningi
í aðsigi eru viðræður milli
Blönduósinga og Siglfirðinga
um mögulega samvinnu þess-
ara staða um stofnun fram-
haldsdeilda á báðum þessum
stöðum, nokkurskonar útibúa
frá Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra á Sauðárkróki.
Að sögn Jóns F. Hjartar-
sonar skólameistara er vilji
skólans að útibú rísi á
þessum stöðum. og aðstoðað
verði við undirbúning eftir
bestu getu. Hinsvegar sé
hættan við stofnun slíkra
deilda sú, að nemendur velji
sér ekki nægjanlega skyld
námsefni, þannig að þeir
dreifist mjög á námsbrautir
og verulegt kennslulið þurfi
að koma til. Það sé það sem
margir sveitarstjórnarmenn
skilji ekki, að það er ekki nóg
að hafa 25 nemdendur til að
stofna framhaldsdeild, deilist
þeir síðan á mörg áhugasvið,
kannski þannig að tveir og
þrír nemendur verði á hverju
sviði.
Skiptar skoðanir hafa
verið um það meðal heima-
manna í Húnavatnssýslu
hvort framhaldsdeild fyrir
svæðið eigi að vera staðsett á
Húnavöllum eða Blönduósi.
Starfræksla framhaldsdeilda
hefur áður verið reynd á
Siglufirði og á Blönduósi. Til
þeirra var stofnað 1976 á
Siglufirði og 1978 á Blöndu-
ósi. Þær voru starfræktar í
nokkur ár en náðu ekki
fótfestu. Erfiðlega gekk að fá
hæfa kennara í allar greinar
og af þeim sökum dvínaði
áhugi nemenda, þannig að
aðsókn minnkaði er á leið.
Vestur-Hún.:
Ferðakort
af sýslunni
í vor
Vestur-Húnvetningar ætla að
kynna héraðið frekar fyrir
ferðamönnum með útgáfu
ferðakorts nú í vor. Sveitar-
stjórnir í sýslunni iiafa
sameinast um útgáfunagegnum
héraðsnefnd, sem hefur fengið
fyrirtækið Ferðaland í Reykja-
vik til að annast gerð kortsins.
Héraðsnefnd ver 250 þúsund-
um til útgáfunnar, en
útgáfufyrirtækið aflar auglýs-
inga frá fyrirtækjum á
svæðinu upp í kostnaðinn
Kortið mun veita upplýsingar
n alla þjónustu í sýslunni
og sýna merka staði og helstu
náttúruvætti. Það verður
gefið út í um 15 þúsund
eintökum og dreift á ferða-
skrifstofum og helstu ferða-
þjónustustöðum á landinu
„Ferðaþjónusta er vaxandi
atvinnugrein og við höfum
hug á að vera þar þátttakendur,
teljum að héraðið hafi upp
ýmislegt að bjóða og bráð-
nauðsynlegt að koma því
framfæri. Vonandi að þannig
dragi úr því að hraðaumferðin
um þjóðveg eitt, á leiðinni
Reykjavík-Ákureyri, renni
hér stanslaust í gegn”, segir
Ólafur Óskarsson formaður
héraðsnefndar.
hátíðarsamkomu í Safnaðarheimilinu sl. fimmtudagskvöld
var þess minnst að 58 ár eru liðin frá stofnun
Rauðakrossdeildar Skagafjarðar. Þar gerði sr. Gísli
Gunnarsson í Glaumbæ grein fyrir starfsemi alheimssamtak-
anna. Rannveig Þorvaldsdóttir ritari rakti sögu deildarinnar og
Hólmfríður Gísladóttir flutti kveðju frá Rauðakrossi Islands. Á
myndinni er stjórn Rauðakrossdeildarinnar ásamt Hólmfríði.
Frá vinstri: Guðbrandur Frímannsson, Hólmfríður Gísladóttir,
sr. Gísli Gunnarsson, Rannveig Þorvaldsdóttir og Gestur
Þorsteinsson.
Kiwanisklúbburinn Drangey afhenti í síðustu viku
Skagafjarðardeild SPOEX, Samtökum sporiasis og
exemsjúklinga, 150 þúsund krónur til kaupa á Ijósaskáp sem
samtökin eru að láta smíða og koma upp í Sjúkrahúsi
Skagfirðinga og tekinn verður í notkun í maí nk.
Ljósaskápurinn mun hafa gífurlega mikla þýðingu fyrirþá sem
þessir erfiðu sjúkdómar þjá hér um slóðir. Á mvndinni afhendir
Sigurgeir Angantýsson formaður Drangeyjar Guðmundi
Ragnarssyni formanni SPOEX ávísunina. Þess má geta að
Lionsklúbbur Sauðárkróks hefur einnig styrkt sjúkrahúsið
myndarlega í tilefni uppsetningar Ijósaskápsins.
SAMVINNUBOKIN
Nafnvextir Samvinnubókarinnar eru nú 13.10%
Ársávöxtun er því 13.53%
HAGSTÆÐ ÁVÖXTUN í HEIMABYGGÐ
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLACS SKAGFIRÐINGA