Feykir - 24.04.1991, Side 8
FEYKIR
> -BL Óháö frettablaö á Noröuriandi vestra
24. apríl 1991, 15. tölublað 11. árgangur
Auglvsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
BILALEIGA SAUÐARKROKS
FYRIRTÆKI - STOFNANIR - EINSTAKLINGAR
TOYOTA Hl - LUX DOUBLE CAB 1991
LEYSIR FLUTNINGSVANDAMÁLIN
GÓÐIR BÍLAR Á GÓÐUM KJÖRUM
SÍMAR 36050 - 35011 H.S ( Stefán )
Maður og kona á Hvammstanga
Leikflokkurinn á Hvamms-
tanga frumsýndi sl. föstudags-
kvöld Mann og konu í leikgerð
Emils Thoroddsen eftir sögu
Jóns Thoroddsen. Frumsýn-
ingin tókst með ágætum,
fjölmenni var og leikendum og
leikstjóra, Þresti Guðbjarts-
syni, vel tekið. Þetta er 21.
leikverkið sem leikflokkurinn
setur upp, en það fyrsta var
tekið til sýninga 1969.
Maður og kona var sýnt á
mánudagskvöld og þriðja
sýningin verður í félagsheimilinu
í Hvammstanga á morgun,
sumardaginn fyrsta. Farið
verður síðan með leikinn til
Skagastrandar á laugardaginn.
Leikendur í Manni og konu
eru Guðmundur Haukur
Sigurðsson, Eggert Karlsson,
Júlíus Guðni Antonsson,
Bergur Guðbjömsson, Hall-
mundur Guðmundsson, Jón
Sigurðsson, Þorbjörn Gísla-
son, Gísli Einarsson, Gunnar
Þorvaldsson, Brynja Bjarna-
dóttir, Sigurósk Garðarsdóttir,
Lilja Hjartardóttir, Helga
Hinriksdóttir og Bima María
Þorbjörnsdóttir. Níu aðrir
vinna að svnineunni auk
nokkurra annarra sem lagt
hafa leikflokknum lið með
einum eða öðrum hætti á
æfingatímanum.
Áframhaldandi landgræðsluátak
Á síðast liðnu ári hófst
umfangsmikið átak í upp-
græðslu lands á vegum
áhugamanna, félaga og ein-
staklinga. Skógræktarfélag
íslands hafði forgöngu en fékk
strax til liðs Skógrækt
ríkisins, Landgræðsluna og
Landbúnaðarráðuneytið. Mark-
miðið var að gefa hinum mikla
fjölda áhugafólks sem vill sjá
landið betur búið kost á að
klæða það í sameiginlegu
átaki. Vakin var athygli
fyrirtækja, stofnana og félaga-
samtaka á þessu fyrirhugaða
verkefni.
Vinna átaksins var þriþætt:
1) Kynning á ástandi landsins
og hvað væri hægt að gera.
2) Virkjun einstaklinga,
félaga og fyrirtækja í öflun
fjár.
3) Samningsbundin tramleiðsla
á umfangsmiklu magni af
skógarplöntum til gróður-
setningar á landi til að byrja á
uppgræðslu. Aðstoð við
heimaaðila við skipulagningu
og framkvæmd.
Takmarkið var að allir sem
unnu landinu sínu og vildu
taka þátt í þessu landgræðslu-
átaki fengju tækifæri til þess
hver á sinn hátt:
Með kaup á „grænu greininni”.
Með þátttöku í gróðursetningu.
Með beinu framlagi.
Undirtektir urðu ótrúlega
góðar og þúsundir fólks tóku
þátt í plöntun víðsvegar um
landið. Fé safnaðist til að
hægt væri að framleiða á 2.
milljón plantna. Gróðursetn-
ing fór fram á 74 stöðum í
landinu.
Hér í Skagafirði voru þrjú
svæði valin til uppgræðslu og
gróðursetningar á vegum
átaksins:
í Reykjarhólnum við Varma-
hlíð, við Sauðárkrók og í
stækkun skógræktargirðingar-
innar á Hólum.
Samtals var plantað liðlega
70 þús. trjáplöntum á
þessum stöðum. Ákveðið
hefur verið að Landgræðslu-
átakið haldi áfram í sumar.
Baráttan við að halda gróðri
landsins, bæta hann, styrkja
og efla er eilíf.
Með þátttöku í landgræðslu-
átaki skógræktarfélaganna
getur hver lagt sitt að
mörkum á sinn hátt.
1) Með framlagi.
2) Með því að kaupa „grænu
greinina” sem boðin verður
nú á sumardaginn fyrsta.
3) Með þátttöku í sjálfboða-
liðsvinnu í sumar að plöntun
og hiiðingu uppgræðslusvæð-
anna.
Framkvæmd þess verður
tilkynnt nánar síðar.
Góðir héraðsbúargleðilegt
átaksár í græðslu og fegrun
lands okkar.
Ragnar Arnalds:
„Við getum verið mjög
ánægðir með útkomuna hér í
kjördæminu, að ekki sé
minnst á fylgisaukninguna
síðan Gallupkönnunin var
gerð. Það er greinilegt að fólk
hefur metið það að við
sýndum skýra afstöðu í
hinum ýmsu málum, t.d.
hvernig við viljum að staðið
sé að uppbyggingu hafna hér
í kjördæminu. Ég held að það
mál hafi komið okkur til
góða. Þá hefur fólk greinilega
kunnað meta það að Alþýðu-
bandlagið var með skýra og
ákveðna stefnu í efnahags-
og skattamálum. Ég þakka
öllum þeim sem unnu með
okkur í baráttunni”.
Vilhjálmur Egilsson:
„Þetta var gífurlega spenn-
andi nótt. Það var greinilegt
þegar leið á talninguna að við
vorum í sókn og þetta hafðist
undir lokin. Ég var orðinn
mjög bjartsýnn þegar kom að
atkvæðunum úr Vestur-
Húnavatnssýslu, þar sem ég
vissi að við áttum mikið og
síðan var vitað að við áttum
mikið í utankjörstaðaatkvæð-
unum, vorum með frábæra
„maskínu” þar. Maður er
vitaskuld mjög glaður yfir
því að okkur skyldi takast
það sem að var stefnt, og
þakklátur öllu því fólki sem
lagði sitt _af mörkum í
baráttunni. Ég held að okkar
styrkur hafi falist í sterkum
lista, trúverðugum málflutn-
ingi frambjóðenda sem eru
tilbúnir að vinna kjördæm-
inu og þjóðinni vel”.
Stefán Guðmundsson:
„Okkur tókst ekki að fylgja
eftir þeim mikla sigri sem við
unnum í síðustu kosningum.
Hinir flokkarnir lögðu út af
og
Jón Sæmundur Sigurjónsson
„Þetta var spennandi
skemmtilegt þar til ég fékk
rothöggið undir morgun.
Það er vitaskuld alltaf
leiðinlegt að falla, en við
því í sinni baráttu að við
hefðum ekki möguleika á
þrem mönnum og ættum því
mikið af ónýttum atkvæðum.
Þetta bragð virðist hafa
heppnast hjá þeim. En staða
Framsóknarflokksins er enn
sterk hér í kjördæminu. Það
var mjög vel unnið hjá okkar
fólki í kosningabaráttunni
og ég held við getum alveg
verið þokkalega ánægðir. Nú
væri eðlilegast að þeir
flokkar sem stóðu að síðustu
ríkisstjórn reyndu að koma
sérniðurámálefnagrundvöir^
bættum við okkur fylgi og
það er hærra hlutfall bak við
mig en flokksbræður mína í
Austurlandi og á Vestfjörðum.
Það er því fjarri lagi að
kjósendur hafi hafnað mér,
enda fann ég fyrir jákvæðum
straumum í baráttunni og sá
ný andlit sem gengu til liðs
við flokkinn. Ég erþakklátur
þeim sem stóðu í baráttunni
með mér. Nú tekur við smá
hvíld og svo er bara að bíða
og sjá hvað gerist í sambandi
við stjórnarmyndunina. Ég
hef alltaf haft nóg að gera og
kvíði þvi ekki”.
GÆÐAFRAMKÖLLUN
BÓKABÚÐ
BBYNJARS