Feykir - 15.05.1991, Blaðsíða 1
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysti- og kæliþjónusta
Ðíla- og skiparafmagn
Véla- og verkfæraþjónusta
___^TiUfllll Li^ll----- Sími: 95-35519
l^ltn^lM f*|^/| Bílasími: 985-31419
Aðalgötu 26 Sauðárkróki Fax: 95-36019
Ðílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141
Skagafjörður:
Undirbúningur forseta-
heimsóknar hafin
Væntanlega verður hátíðlegt
um að litast í Skagafirði
dagana 23.-25. ágúst í sumar,
þegar forseti Islands frú
Vigdís Finnbogadóttir heim-
sækir héraðið. Undirbúningur
heimsóknarinnar er þegar
hafínn og hefur gestgjafinn,
héraðsnefnd Skagaljarðar, skipað
fjögurra manna undirbúnings-
nefnd. Skagafjörður er með
síðustu héruðum landsins sem
Vigdís forseti heimsækir.
Magnús Sigurjónsson fram-
kvæmdastjóri héraðsnefndar
segir að menn hefðu lengi velt
því fyrir sér hvenær röðin
kæmi að Skagafirði, t.d.
minntist hann þess úr veru
sinni í bæjarstjórn Sauðár-
króks. Það væri hinsvegar
þannig að það þyrfti að bjóða
forsetanum. Þetta væri ekki
vegna oflátungsskapar forsetans,
heldur að það væri kostnaðar-
samt að taka á móti honum
og forsetinn vildi ekki
íþyngja sveitarfélögunum nema
þau óskuðu sjálf eftir því.
„Þetta vissu menn ekki. Eg
vissi þetta t.d. ekki fyrr en í
lok síðasta árs þegar héraðs-
nefnd bauð forsetanum hingað
í umboði Sauðárkróksbæjar
og hreppanna”, sagði Magnús.
Hvað tímasetningu heim-
sóknarinnar varðar, sagði
Magnús að hún hafi verið
ákveðin fyrir nokkru og
ástæðan fyrir því að heim-
sóknin væri svona síðla
sumars taldi hann vera
kosningarnar, Vigdís hafi
líklega viljað vera nokkuð
trygg með að búið væri að
mynda ríkisstjórn áður en
hún færi í Skagafjörðinn.
Undirbúningsnefnd fyrir
heimsóknina skipa þau Björn
Sigurbjömsson formaður bæjar-
ráðs, Halldór Þ. Jónsson
sýslumaður, Elín Sigurðar-
dóttir oddviti Sölvanesi og
Magnús Sigurjónsson. Dag-
skrána mun nefndin ákveða í
samráði við oddvita og
hreppstjóra í héraðinu. „Við
munum að sjálfsögðu veita
forsetanum skagfirskar mót-
tökur. Eg finn að það er
mikill hugur í mönnum að
taka vel á móti Vigdísi og
hennar fylgdarliði”, sagði
Magnús.
Malbikun á Hvammstanga:
Samið við Króksverk
Samningar Hvammstangahrepps
við Króksverk um malbikun
gatna í þorpinu eru á
lokastigi. Áætlað er að verkið
verði framkvæmt seinnipart
sumars og næsta vor. Þar með
verði lokið við að binda
núverandi gatnakerfí varan-
legu slitlagi. I sumar verður
einnig malbikaður hluti af
hafnarsvæðinu.
Bjarni Þór Einarsson sveitar-
stjóri kvað ástæðu fyrir því
að verkið var ekki boðið út þá
að malbikunarstöð Króks-
verks er sú eina færanlega á
stóru svæði, og malbiki verði
ekki ekið frá föstu stöðvunum
á Akureyri eða Reykjavík
sökum vegalengda. Króks-
verk keypti stöðina ekki alls
fyrir löngu af Malbiki hf en
það félag var á sínum tíma
stofnað af þéttbýlisstöðunum á
Norðurlandi vestra.
Endurskipulagning hjá Serkjum
„Það mun skýrast væntanlega
innan fárra vikna. Ég hef góða
von um að þetta takist’’, sagði
Ágúst Sigurðsson framkvæmda-
stjóri pappírspokaverksmiðjunn-
ar Serkja á Blönduósi um
fjárhagslega endurskipulagn-
ingu fyrirtækisins sem nú
stendur fyrir dyrum, en
þrálátur orðrómur hefur verið
á kreiki um að Serkir verði
teknir til gjaldþrotaskipta á
næstu dögum.
„Það er ekkert meira á
hausnum núna en það hefur
verið lengi”, sagði Ágúst um
stöðu fyrirtækisins. Hann
sagðist ekki geta greint frá
því í hverju endurskipulagn-
ingin fælist, með því væri
hann að skerða viðskipta-
hagsmuni umbjóðenda sinna.
„Það sem hefur háð okkur
er of lítill markaður. Við
erum bjartsýnir á að geta
aukið hann og ef okkar
útreikningar ganga upp gæti
fyrirtækið orðið arðvænt í
betra lagi”.
I undirbúningi er fram-
leiðsla á pappírspokum undir
sorp. Ágúst telur engan vafa
að sú staðreynd, að umhverfis-
mál séu að verða æ
mikilsmetnari þáttur hér á
landi, eigi eftir að koma
verksmiðjunni mjög til góða.
„Pappírinn hefur það umfram
plastið að hann eyðist og það
er þessvegna sem pappírs-
pokar eru notaðir undir
sorp í nágrannalöndunum
en notkun plastpoka
bönnuð. Spurningin er hvaða
stefnu íslensk stjórnvöld
taka. Sorphirðumálin héreru
að taka á sig nýja og breytta
mynd, með flokkun sorps
sem nú er að hefjast á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Ég tel
að þarna vinni tíminn með
okkur”, sagði ÁgústSigurðs-
son frá Geitaskarði fram-
kvæmdastjóri Serkja.
Tilboö í gatnagerð
á Hvammstanga:
Öllum hafnað
Á hreppsnefndarfundi í síðustu
viku var hafnað öllum
tilboðum er borist höfðu í
gatnagerðarframkvæmdir á
Hvammstanga.
Að sögn Guðmundar
Hauks Sigurðssonar oddvita
er hugmyndin að ganga til
samninga við heimamenn á
grundvelli kostnaðaráætlunar
og lýstu þeir sig reiðubúna til
viðræðna á þeim nótum, en
kostnaðaráætlun er nokkuð
hærri en lægsta tilboðið í
þessar framkvæmdir.
EA
rœr w ■ 'v.
'f' 4 & -
Tilbúin í
skólaferðalagið
Prófum er nú sem óðast að ljúka og sumarvinnan framundan.
Þessi glaðværi hópur hafði verið prófaður og var að leggja
upp í skólaferðalagið þegar mvndin var tekin á
mánudagsmorgun. Þetta er 10. bekkur Gagnfræðaskóla
Sauðárkróks. Ferðinni var heitið til Suðurlands og
Vestmannaeyja. í Eyjum njóta krakkarnir leiðsagnar þess
manns sem nýlega var útnefndur ferðamálafrömuður ársins.
15. maí 1991, 18. tölublað 11. árgangur
Óháð fréttablað á Norðuiiandi vestra
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki