Feykir


Feykir - 15.05.1991, Blaðsíða 2

Feykir - 15.05.1991, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 18/1991 FEYKIR - Óháö fréttablaö á Noröurtandi vestra ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAOUR: Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95- 36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F. Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI: Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR- VERÐ: 100 krónur hvert tölublað; í lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvi’ku- dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Tilboö í byggingu bóknámshússins: Byggingarfélagið Hlynur lægstur Fjórir aðilar skiluðu inn tilboðum í byggingu bóknámshúss Fjölbrauta- skólans, en þau voru opnuð á fundi bygginarnefndar hússins í gær. Byggingarfélagið Hlynur reyndist með lægsta tilboðið 234,955 milljónir eða 87% af kostnaðar- áætlun, sem var 267,1 milljónir. Þar sem um mjög stórt útboðsverk var að ræða óttuðust heimamenn að verktakar héðan og þaðan af landinu mundu bjóða og jafnvel hreppa verkið. En einungis einn aðili sendi inn tilboð, SH verktakar frá Hafnar- firði og voru þeir með hæsta tilboðið. Hlynur er einnig með fráviks- tilboð upp á 230,34 millj. Friðrik Jónsson sf kom næstur með 245,131 milljónir, þá Trésmiðjan Borg með 246,585 millj. og frávikstilboð að upphæð 245,352 milljónir. Tilboð SH verktaka var 288,692 millj. og frávikstilboðið hljóðaði upp á 288,692 milljónir. Taka mun nokkra daga að yfirfara tilboðin áður en gengið verður til samninga við tilboðs- hafa. Telja verður Hlynsmenn þar líklega. ATVINNA! Svæðisstjórn fatlaðra á Norðurlandi vestra óskar eftir að ráða þrjá starfsmenn til að starfa við sumardvöl fatlaðra á Hólum í Hjaltadal tímabilið 1. júlí - 15. ágúst. Húsnæði er á staðnum Upplýsingar í síma 35002 Siemens innbygg- ingartæki í eldhús Hjá okkur fáið þið öll tœki á sama stað: Eldavél- ar, uppþvottavélar, kœliskápa, frystiskápa, ör- bylgjuofna, kaffivólar, hrærivélar, brauðristar og þannig mætti lengi telja. SIEMENS er trygging ykkar fyrir góðum tækjum og samræmdu útliti. íslenskir leiðarvísar fyigja með. ©rafsjá hf Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Sími 95-5481 SUMARVINNA '91 Eftirtalinn störf eru laus til umsóknan 75% ræst / búr, sjúkradeild, frá 23/5 75% - 80% Kjallari / deild 5, tímabil 26/5 - 2/9 '91 100% deild 5 (Frí um helgar) tímabil 22/7 - 28/8 52.5% deild 6 (vikuvinna og vikufrí) túnabil 14/6 - 28/8 Nánari upplýsingar veitir ræstingastjóri í s: 35270 EINNIG ERU LAUSAR STÖÐUR VIÐ AÐHLYNNINGU Tímabil: Júnflok til ágústloka. Upplýsingar veitir hjúkmnarforstjóri í s: 35270 Æskilegur aldur, 18 á ra og eldri Stóðhestasýning á Hólum Föstudaginn 24. maí nk. verða stóðhestar af stóð- hestatamningastöðinni á Hólum í Hjaltadal dæmdir. Jafnhliða gefst norðlenskum hesta- mönnum færi á að koma með stóðhesta til dóms hvort heldur að fá ungfola (3ja vetra) byggingardæmda og fullnaðardóm á eldri hesta. Skráning fer fram til 21. maí í síma 95-35962. Laugardaginn 25. maí verður svo yfirlits- sýning á hestunum og hefst hún kl. 14. Starfsmenn KS höfðingjar Starfsmenn Kaupfélags Skag- firðinga voru meðal hæstu gefenda í söfnunarátaki Rásar 2 og Landssambands floka- veikisjúklinga sem fram fór nýlega, en þar varsafnaðfyrir svokölluðum heilasírita sem auðvelda á mjög greiningu sjúkdómsins. Þau Ieiðu mistök áttu sér stað í síðasta blaði að vinnuveitandanum KS var eignaður þessi höíðingsskapur. Þó að sama sé hvaðan gott kemur er sjálfsagt og eðlilegt að þetta leiðréttist. Eru hlutaðeigandi aðilar beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum. Hlíðavillt var farið í frétt af skólaslitum Hólaskóla í síðasta blaði. Valdimar Óskar Sigmarsson er frá Sóheimum í Sæmundarhlíð en ekki Blönduhlíð. Fjölbrautaskólanum verður slitið laugardaginn 18. maí n.k. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Athöfnin hefst kl. 14. Allir velunnarar skólans eru velkomnir. Einkunnaafhending og prófsýning verður daginn áður kl. 14-15.30 í Verknámshúsi skólans. Innritun fyrir næsta skólaár lýkur föstudaginn 7. júní n.k. Vegna mikillar aðsóknar að heimavist er nemendum af Norðurlandi vestra ráðlagt að sækja um sem allra fyrst. Skólameistari

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.