Feykir - 22.05.1991, Qupperneq 1
22. maí 1991, 19. tölublað 11. árgangur
Óháð fréttablað á Norðuriandi vestra
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Stofnun undirbúningsfélags um vatnspökkun:
Enn ekkert veriö aðhafst
Ógnar niðurskurðarhnífurinn fjölbraut:
„Nú þurfa verkin að tala og
hamarshöggin að dynja"
Enn hefur ekkert verið aðhafst
varðandi stofnun undirbúnings-
félags að vatnspökkunarverk-
smiðju á Sauðárkróki. Um
áramótin síðustu var atvinnu-
málanefnd bæjarins falið að
kanna hlutafjárþátttöku fyrir-
tækja og einstaklinga í
félaginu, en það var einmitt á
sama tíma og fyrirtæki í
bænum bundust samtökum um
stofnun atvinnuþróunarfélagsins
Ataks.
Stofnun Ataks er einmitt
ástæðan fyrir því að bæjar-
fulltrúar telja nú litlar líkur
til aðfyrirtæki ogeinstaklingar
í bænum hafi bolmagn til að
taka þátt ístofnun undirbún-
ingsfélags um vatnspökkunar-
verksmiðjuna. Það bendir
því allt til þess að bæjarsjóður
verði að standa undir
félaginu að 80% til að byrja
með a.m.k.. Byggðasjóður
hefur ákveðið að taka þátt í
félaginu að 20%.
Umræður um vatnspökkun-
ina komu til af því að
bæjarstjórn hefur ákveðið að
leysa til sín lóðina nr. 1 við
Vatneyri. Lóðarhafí, Hreinn
Sigurðsson, fær þó samkvæmt
samningi sem gerður hefur
verið við hann, níu mánaða
frest til að halda áfram
framkvæmdum á lóðinni, en
þær hafa legið niðri í nokkur
ár. Afturkallað verður upp-
boð á lóðinni.
Anna K. Gunnarsdóttir
bæjarfulltrúi lét bóka nauðsyn
þess að Hreini yrði gerðgrein
fyrir því að Sauðárkróksbær
ætlaði að halda áfram
undirbúningsathugunum á
hagkvæmni vatnspökkunar-
verksmiðju á Sauðárkróki.
Bæjarstjóri kvað enga
ástæðu að óttast lóðaleysi. Ef
Hreinn kæmi sínu verkefni á
framkvæmda- og útflutnings-
stig, mundi bærinn væntan-
lega reisa sína vatnspökkun
þar sem fiskeldisfyrirtækið
Fornós var með sína starf-
semi. -- Það skyldi þó aldrei
fara svo eftir öll þau ár sem
vatnsútflutningur frá Sauðár-
króki hefur verið í farvatninu,
að tvær vatnspökkunarverk-
smiðjur verði á Króknum í
framtíðinni?
Biskup Islands herra Olafur
Skúlason mun vísitera Skaga-
fjarðarprófastsdæmi á næstu
vikum. Vísitasían hefst á
sunnudaginn kemur, 26. maí, í
Sauðárkrókskirkju kl. 14 og
heimsækir hann siðan hvern
söfnuð prófastsdæmisins. Lýkur
heimsókn biskups með messum á
Skaga 7. júní.
Sú venja að biskup
heimsæki söfnuði kirkjunnar
er jafngömul kristninni, enda
„Nú er lag að hefjast handa.
Um byggingu bóknámshúss-
ins verður að standa vörð,
enginn niðurskurðarhnífur má
þar lagi ná vegna þess að
stjórnmálamenn er gæta eiga
hagsmunum kjördæmisins komi
ekki vörnum við. Nú þurfa
verkin að tala og hamarshögg-
in að dynja”, sagði Jón F.
Hjartarson skólameistari meðal
annars í skólaslitaræðu sinni
sl. laugardag. Greinilegt er að
þrátt fyrir
undirskrift samninga og að
útboð byggingar bóknáms-
hússins hefur farið fram,
óttast skólameistari hinn
illræmda niðurskurðarhníf stjóm-
valda, enda skólinn fengið að
kenna á brandi þeim meira en
góðu hófu gegnir.
„Bjartsýni okkar nærist af
tilhlökkuninni að sjá bók-
námshúsið rísa. Fregnir af
blikum á lofti vegna bágrar
stöðu ríkisbúsins varpa því
nokkrum skugga í vorbirt-
unni. I salarkynnum valdsins
heyrist óma, ógildum samn-
inga, skerum niður fjárveit-
ingar, minnkum rekstrarfé til
skólanna. A undanförnum
árum hefur niðurskurður
felst það í embættisheitinu
biskup (episcopus), sem
þýðir tilsjónarmaður, sam-
kvæmt upplýsingum prófasts
séra Hjálmars Jónssonar.
Biskup mun hitta allar
sóknarnefndir, skoða kirkjur
og hag þeirra. Við messurnar
munu sóknarprestar þjóna
fyrir altari ásamt biskupi sem
prédikar á öllum kirkjunum.
Síðasta vísitasía í Skaga-
firði var 1967 í tíð herra
verið gerður oftar en einu
sinni í sögu þessa skóla.
Jafnan kemur hann þyngst
niður á þeim, sem mest finna
fyrir honum, skólum í
uppbyggingu, skólum á
landsbyggðinni, skólum sem
búa við þröngan kost. I
stuttu máli skólum sem
þessum”, sagði skólameistari
Jón Hjartarson. Sagði hann
þörf skólans fyrir bóknáms-
húsið hafa verið brýna vorið
1982 og í dag væri hún
himinhrópandi mikil. Strax
þurfi að hefjast handa og
huga jafnframt að bráða-
birgðalausnum fyrir skólann
fram að þeim tíma að unnt
verði að taka húsið í notkun
að fjórum árum liðnum.
Reyndar sló Jón létt á
efasemdarstrengina með því
að vitna í Lestrarbók handa
alþýðu Islands eftir Þórarinn
Böðvarsson sem út kom og
var prentuð í Kaupmanna-
höfn fyrir 117 árum. Þar
sagði: „þolinmæðin gerir
móberjarblað að þykku silki”.
Jón sagði að nú væri komið
að því að spyrja: Gjörir
þolinmæðin teikningar að
Sigurbjöms Einarssonar bisk-
ups. Með nýlegri breytingu á
• lögum um skipan prestakalla
og prófastsdæma tilheyrir
Siglufjörður nú Skagafjarðar-
prófastsdæmi, en biskup
mun einmitt messa þar á
sjómannadaginn, 2. júní nk.
I fylgd með biskupshjónum,
herra Ólafi og frú Ebbu
Sigurðardóttur, verða prófsts-
hjónin séra Hjámar og frú
Signý Bjarnadóttir.
húsi?
Biskup heimsækir Skagafjaröarprófastsdæmi
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysti- og kæliþjónusta
Bíla- og skiparafmagn
Véla- og verkfæraþjónusta
___^tian!ll LOI--- Sími: 95-35519
HBilasími: 985-31419
Aðalgötu 26 Sauðárkróki Fax: 95-36019
Bílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141