Feykir - 22.05.1991, Page 8
22. maí 1991, 19. tölublað 11. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
BÍLALEIGA SAUÐÁRKRÓKS
FYRIRTÆKI - STOFNANIR - EINSTAKLINGAR
TÖYOTA Hl - LUX DOUBLE CAB 1991
LEYSIR FLUTNINGSVANDAMÁLIN
GÓÐIR BÍLAR Á GÓÐUM KJÖRUM
SÍMAR 36050 - 35011 H.S ( Stefán )
GÆÐAFRAMKOLLUN
BÓKABÚD
BRYNJARS
Verðandi prestshjón á Skagaströnd, EgiII Hallgrímsson og
Olafía Sigurjónsdóttir ásamt sautján mánaða dóttur sinni
Sóleyju Lindu.
Skagstrendingar fá prest
og hjúkrunarfræðing
Prestleysi Skagstrendinga og
nágrannasókna er senn á
enda. I'ilvonandi sóknarprestur
Hólanes- Hofs- og Höskulds-
staðasóknar, séra Egill Hall-
grímsson, var sunnudaginn
12. maí sl. vígður til
prestsþjónustu ásamt fimm
öðrum prestsefnum í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík af
biskupi íslands herra Ólafi
Skúlasyni.
Séra Egill _er 36 ára
Hvergerðingur. I samtali við
Feyki sagði hann að reyndar
hefðu þau hjónin gælt við þá
hugmynd að setjast að á
Skagaströnd, alveg síðan
brauðið var auglýst laust til
umsóknar á síðasta _ vori.
Eiginkona Egils, Ólavía
Sigurjónsdóttir, er hjúkrunar-
fræðingur að mennt, og það
kemur sér vel þar sem
hjúkrunarfræðing hefur vant-
að um tíma á Skagaströnd.
„Eg kom í fyrsta skipti á
Skagströnd í febrúar í vetur,
skömmu áður en sóknar-
nefndin þar kallaði mig til
starfa. Þrátt fyrir stutt kynni
líst mérákaflegavelástaðinn
og þykist merkja jákvæðni og
bjartsýni meðal íbúanna. Við
erum full eftirvæntingar að
flytjast norður”, sagði Egill
sem bjóst við að það gerðist í
þessari eða næstu viku.
Séra Egill verður vígður til
starfa í sóknunum þrem
sunnudaginn 26. maí nk.
Athöfnin fer fram í Hólanes-
kirkju og mun prófasturinn
sr. Guðni Þór Ólafsson á
Melstað framkvæma vígsluna.
Þöksund verkmenntahússins taka við gífurlegu magni vatns.
Verknámshús fjölbrautar míglekur:
Vaskaföt og keröld
koma aö góðum notum
Þegar verknámshús fjölbrauta-
skólans var byggt á sínum
tíma, höfðu margir uppi
spádóma um að það yrði
ótrúlega „margra bala” hús.
Það er að segja niðurföllin úr
sundunum milli þakanna
myndu ekki hafa undan
vatnsrennslinu þegar úrkoma
væri mikil og snjór bráðnaði
hratt. Þetta hefur skapað
mikil not fyrir skúringarfötur
og önnur keröld í eigu skólans,
og þeim verið komið fyrir á
helstu úrkomustöðum íhúsinu
egar annig viðrar.
Jón skólameistari sagði frá
því í skólaslitaræðu sinni að
nýlega hefðu tveir húskarlar
menntamálaráðuneytisins komið
í heimsókn til að meta
fjárþörf skólans til búnaðar-
kaupa, viðhalds og húsa-
kosts. Hafi þeir orðið
undrandi að sjá vatnsfötur
víða við að fyllast, en hella
verður oft úr þeim þegar
rignir, því söfnunargeta
þeirra er minni er svarar
helgarskammti. Þótt þessu
ástandi hafi verið lýst í
bréfkornum suður þótti
þessum gestum frá mennta-
málaráðuneyti sjón sögu
ríkari.
Meistari sagði að árum
saman hefði fé til búnaðar-
kaupa og viðhalds verið mjög
lítið og valdið nokkurri
armæðu meðal starfsmanna
skólans. ,,En vonin um
bóknámshúsið herðir okkur”,
sagði Jón.
Framkvæmdir á Húnavöllum
Þessa dagana eiga sér stað
talsverðar endurbætur á skóla-
húsnæðinu á Húnavöllunt og
verður þeim lokið áður en
sumarhótelið tekur til starfa
viku af júní.
Böð og eldhús verða
nánast endurnýjuð. Nýjar
innréttingar og tæki koma í
eldhús og fullnaðarfrágangur
gerður á flísalögnum á
böðum.
Að sögn Valgarðar Hilmars-
sonar oddvita eru bókanir á
Edduhótelinu á Húnavöllum
góðar fyrir sumarið. Virðast
þær vera í sókn, voru talsvert
góðar í fyrra einnig.
Fljótamenn kaupa gamla löndunarkranann
Það fór aldrei svo að gamli
löndunarkraninn á Sauðárkróki
sem skemmdist á siðasta hausti
kæmi ekki einhverjum að gagni.
Nýlega keypti Fljótahreppur
kranann á 50 þúsund krónur og er
meiningin að þegar viðgerð hefur
farið fram verði honum komið
fyrir á bryggjunni í Haganesvík.
Eins og menn muna keng-
bognaði löndunarkraninn er
einn togarinn var að leggjast að
bryggju og rakst utan í hann.
Þar sem fyrir lá að sterkari krana
þyrfti til frambúðar var ekki
talið borga sig að gera við þann
gamla.
Kraninn á að fjarlægast af
hafnarbakkanum fyrir 1. júní,
en Örn Þórarinsson oddviti Frá Haganesvík, séð fram í Flókadalinn.
Fljótahrepps vonast til að
smáfrestur fáist, eða þar til
sauðburði lýkur. Talið er að
viðgerð á krananum felist í því
að þeir hlutarhans sem bognuðu
verði fjarlægðir og nýir settir í
þeirra stað.
Trillukarlar í Haganesvík
hafa til þessa þurft að beita
ýmsum tilfæringum viðaðkoma
gráslepputunnum og öðrum afla
úr bátunum og upp á bryggjuna.
Það verður því væntanlega allt
önnur og betri löndunaraðstaða
sem þeir búa við áður en langt
^wrllftur.
Hagnaður
á KVH
Sjö milljóna hagnaður varð af
rekstri Kaupfélags Vestur-
Húnvetninga á Hvammstanga
á síðasta ári. Er það nokkur
bati frá árinu á undan en þá
var útkoman rétt ofan við
núllið. Félagið kom út með 21
milljón króna í vaxtatekjur
sem sýnir betur en nokkuð
annað sterka eiginfjárstöðu
og hvað skuldir eru litlar.
Samt töpuðust einar 13
milljónir vegna gjaldþrota
viðskiptaaðila. Gunnar V.
Sigurðsson kaupfélagsstjóri
segir ytri aðstæður til
reksturs hafa verið mjög
góðar á síðasta ári, gengis-
stefnu hagstæða og lækkun
verðbólgunnar komið til
góða. Engra róttækra breyt-
inga væri að vænta hvað
þetta ár varðaði. „Við
göngum ekki með neina
stórveldisdrauma, en munum
reyna að hlúa að því sem fyrir
er hjá okkur”, sagði Gunnar.