Feykir - 10.07.1991, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Sauðárkrókur:
Aöstaöa slökkviliösins
oröin með því besta
á landinu
Jón Hjartarson skólameistari er hér í þann mund að stinga spaðanum í svörðinn að viðstöddum
héraðsnefndarmönnum, skólanefnd, fulltrúum byggingarverktaka og fleirum.
Fyrsta skóflustungan tekin
að bóknámshúsi
í vetur birtist fréttagrein í
Feyki um slæmt ástand
siökkvistöðvarinnar við Sæ-
mundargötu, sem Bjöm Sverris-
son eldvarnareftirlitsmaður
sagði að svipaði til margs um
ásigkomulag lögreglustöðvar-
innar í Stykkishólmi sem þá
var talsvert í fréttum. A
síðustu mánuðum hefur hins-
vegar verið gerð það rækileg
gangskör að lagfæringum
slökkvistöðvarinnar, að í dag
þykir aðstaða og búnaður
Slökkviliðs Sauðárkróks og
Brunavarna Skagafjarðar sú
besta á landinu utan stærstu
þéttbýliskjamanna, Stór-Revkja-
víkursvæðisins og Akureyrar.
Reyndar hafði lengi staðið
til að lagfæra Dúðahúsið við
Sæmundargötu þar sem
aðstaða slökkviliðsins er. Það
sem strandaði á var kerfislegt
vandamál milli Sauðárkróks-
bæjar og sýslunnar, seinna
héraðsnefndarinnar. Magnús
Sigurjónsson framkvæmda-
stjóri héraðsnefndar gekk
síðan vasklega fram í því í
vetur að koma þessum
Ráðinn hefur verið eftirmaður
Unnar Kristjánsdóttur í starf
iðnráðgjafa Norðurlands vestra
sem hefur aðsetur á Blönduósi.
Sá heitir Kristbjörn Björn
Garðarson tæknifræðingurfrá
Akureyri.
Kristbjörn tekur við starfi
Unnar í haust. Hann var
málum á hreint og Knútur
Aadnegaard byggingameist-
ari var fenginn til að
framkvæma þær lagfæringar
sem gera þurfti.
Skipt var um bárujárn á
þaki, sem orðið var hriplekt,
og stórum hluta húsnæðisins
umbylt. Er nú aðstaða
starfsmanna slök k viliðsins
og geymslur fyrir búnað til
stakrar fyrirmyndar. Slökkvi-
liðsstjóri og eldvarnareftirlits-
maður eru með sitthvora
skrifstofuna, salur er fyrir
fundi og námskeið slökkvi-
liðsmanna. Hreinlætisaðstaða
er mjög góð, t.d. geta nú
slökkviliðsmenn farið í sturtur
að loknum æfingumogútköllum,
í sumar verður byggð við
slökkvistöðina bílgeymsla fyrir
tvo slökkvibíla og í leiðinni
gerðar lagfæringar á bifreiða-
sal í slökkvistöðinni.
Að lokum má geta þess að
nýlokið er reykköfunarnám-
skeiði með slökkviliðsmönn-
um í Skagafirði sem Bruna-
málastofnun ríkisins stóð fyrir.
valinn úr hópi átta umsækjenda.
Starf iðnráðgjafa varð til við
stofnun Iðnþróunarfélags
Norðurlands vestra á sínum
tíma. Undanfarin ár hefur
mikill hluti vinnutíma hans
farið í aðstoð viðendurskipu-
lagningu á rekstri fyrirtækja
á svæðinu.
Síðasti miðvikudagur var stór
dagur hjá forsvarsmönnum
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki. Þann
dag gerðist það sem beðið
hafði verið eftir lengi, að
fyrsta skóflustungan var tekin
að nýju bóknámshúsi. Fyrr um
daginn voru undirritaðir samn-
ingar við Vestur- og Austur-
Húnvetninga, og verktaka-
samningur við Byggingarfélagið
Hlyn hf, sem reyndist með
hagstæðasta tilboð þegar
útboðsgögn voru opnuð í vor.
Jón F. Hjartarson skóla-
meistari dró hvergi af s.ér
þegar hann neytti þunga-
FNVÁS
vigtar sinnar við að þrýsta
stunguspaðanum margfræga
í svörðinn, sem svo lengi
hafði beðið í notkunarleysi
uppi á vegg. Þeytti Jón
jarðefnunum rösklega frá sér
og virtist ekkert liggja á að
hleypa afkastameiri tækjum
að greftrinum. Við þetta
tækifæri lét hann þau orð
falla, að æskan ætti eftir að
njóta í ríkum mæli í
framtíðinni þeirrar byggingar
er hér risi, en áætlanir gera
ráð fyrir að bóknámshúsið
verði tekið í notkun að fimm
árum liðnum.
Eins og fram kom í síðasta
Feyki samþykkti Héraðs-
nefnd Vestur-Húnvetninga á
vorfundi sínum að gerast
aðili að fjölbrautaskólanum
Fulltrúar þeirra undirrituðu
samning um uppbyggingu
skólans og byggingu bók-
námshússins og Austur-
Húnvetningar skrifuðu einnig
undir með fyrii-vara um
samþykki héraðsnefndar sinnar.
Ólafur B. Óskarsson formaður héraðsnefndar V.-Hún. og
Þorsteinn Ásgrímsson formaður héraðsnefndar Skagafjarðar
handsala samninga. Valgarður Hilmarsson formaður
héraðsnefndar A.-Hún. skrifaði undir með fyrirvara um
samþykki héraðsnefndar sinnar.
—KTen$?!f lljDI—
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SfMI: 95-35519» BÍLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bflaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
&
jDK'IbilQverhlgdi
SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141
Norðurland vestra:
Akureyringur ráðinn
í starf iðnfulltrúa