Feykir - 10.07.1991, Page 8
Mjög vel hefur viðrað til heyskapar undanfarið og margir
langt komnir með fyrri slátt, einstaka maður meira að segja
búinn. Það var hitamistur yfir Húnaþingi þegar Ijósmvndari
Feykis var þar á ferð um helgina. Vel gekk undan
heyskaparvólunum á sléttum velli á Hnausum í
Sveinsstaðahreppi.
Nýr sjúkrabíll til
Hvammstanga
Þann fimmta júlí sl. var til
sýnis á Hvammstanga nýr
>júkrabíll sem Hvammstanga-
ik ild RKÍ hefurfestkaupá. Er
pað Ford Econoline E- 350,
luiinn mjög fullkomnum út-
húnaði sem sjúkrabifreið.
I lægt er að flytja tvo sjúklinga
samtimis og sæti er fyrir lækni
eða fylgdarmann hjá sjúkling-
unum.
Gunnar Konráðsson er
formaður Hvammstangadeild-
ar RKI. Segist hann reikna
með að heildarkostnaður við
sjúkrabílakaupin verði eitt-
hvað á sjöundu milljón, en
það er óljóst enn þá.
Fjölmargir aðilar, fyrirtæki,
félög og einstaklingar hafa
styrkt þessi kaup og má segja
að mjög mikil samstaða hafi
verið um það meðal íbúa
héraðsins að gera þetta
mögulegt. Eitthvað vantar
þó upp á að safnast hafi upp í
kaupverðið.
Þjónustusvæði sjúkrabifreiðar-
innar er öll Vestur-Húnavatns-
sýsla og Bæjarhreppur í
Strandasýslu. Sjá má að
svæðið er stórt og þó íbúar
séu ekki mjög margir, voru á
síðastliðnu ári skráðir
88 sjúkraflutningar svo
þöifin fyrir fullkomna sjúkia-
bifreið er fyrir hendi. Gunnar
Konráðsson vildi koma á
framfæri þakklæti til allra
sem lagt hafa þessu máli lið,
og sagði að án þess hefði
þetta ekki orðið að veruleika.
EA.
Oháö fréttablaö á Noröurlandi vestra
10. júlí 1991, 26. tölublað 11. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á fóstudögum
BÍLALEIGA SAUÐÁRKRÓKS
FYRIRTÆKI - STOFNANIR - EINSTAKLINGAR
TOYOTA Hl -LUX DOUBLE CAB 1991
LEYSIR FLUTNINGSVANDAMÁLIN
GÓÐIR BÍLAR Á GÓÐUM KJÖRUM
SÍMAR 36050 - 35011 H.S. (STEFÁN)
Serkir hf. gjaldþrota
Dagaspursmál er hvenær
óskað verói eftir gjaldþrota-
skiptum á pappírspokaverk-
smiðjunni Serkjum á Blöndu-
ósi. Búist var jafnvel við að
það vrði gert á stjórnarfundi í
dag en að sögn Ofeigs
Gestssonar stjórnarformanns
er Ijóst að svo verður ekki.
Talið er að gjaldþrotið muni
nenia um 90 milljónum króna.
Öllum starfsmönnum Seikja.
átta að tölu, hefur verið sagt
upp störfum og hætti
verksmiðjan framleiðslu sl.
föstudag. Því hefur verið
haldið fram að einstaklingar
séu í miklum persónulegum
ábvrgðum í Serkjum, fyrir20
milljóna króna láni sem
fyrirtækið tók á sínum tíma.
Ófeigur sagði þetta ekki rétt,
veðbönd hvíldu ekki lengurá
þessum einstaklingum.
Heimamenn á Blönduósi
vonast til að unnt verði að
stofna nýtt fyrirtæki upp úr
gjaldþroti Serkja. Það fyrir-
tæki kæmi til með að
pappír. Talið er að mjög sem átt hefur sér stað um
góður markaður sé fyrirslíka vistvænar og óvistvænar
poka, eftir alla þá umræðu vörur að undanförnu.
Menn hafa ekki verið á eitt sáttir hvort þetta hús við
Kirkjutorgið eigi að standa eða ekki. Gárungarnirtöluðu um
það hvort gestamóttaka Sauðárkróksbæjar fyrir forseta-
heimsóknina yrði í Rússlandi? Samkvæmt dagskrá
heimsóknarinnar, sem getið verður í næsta blaði, verður svo
ekki.
Vegklæðning á Skagaströnd
Það fer ekki fram hjá þeim
sem aka inn til Skagastrandar
þessa dagana, að framkvæmdir
við gatnagerð standa yfir.
Stórvirk vinnutæki eru nú að
störfum á Fellsbraut, aðalgöt-
unni inn í þorpið, en á þann
hluta hennar sem eftir er að
binda varanlegu slitlagi, verður
lögð vegklæðning svo og
nokkrar aðrar götur í þorpinu.
Aðrar götur á Skagströnd eru
malbikaðar, svo hér er um
tilraun að ræða.
Samkvæmt upplýsingum
Magnúsar Jónssonar sveitar-
stjóra er heildarlengd gatna
sem vegklæðningin verður
lögð á um kílómeter. Þegar
þessari framkvæmd er lokið
verða velflestar götur á
Skagaströnd bundar varan-
legu slitlagi. Einnig er unnið
að gangstéttagerð og haldið
verður áfram í sumar
frágangi opinna svæða í
þorpinu. Umhverfismálum
hefur verið gefinn talsverður
gaumur á Skagslrönd á
undanförnum árum. ekki
aðeins inni í þorpinu heldur
einnig í nágrenni þess.
Skógræktarfélagið hefur þar
lagt sitt að mörkum og í fyrra
var t.d. hafin plöntun trjáa í
Spákonufellið og verður því
umfangsmikla verki haldið
áfram í sumar.